Vikan

Útgáva

Vikan - 17.06.1976, Síða 22

Vikan - 17.06.1976, Síða 22
,,Svo er skilaboðunum frá Absa- lom fyrir að þakka, að blöðin vita ekkert í þetta skiptið. Eða réttara sagt, þau vissu um málið, en ekki þýðingu þess.“ Hann rétti henni blaðaúrklippu þar sem sagt var frá því, að starfs- maður CIA hefði látist í bílslysi á George Washington Parkway. Susaniia hristi höfuðið. ,,Ég verð að játa að ég skií þetta ekki heldur," sagði hún og rétti honum blaðaúrklippuna aftur. „Ég mun fljótlega útskýra það fyrir þér. En fyrst vil ég fá að heyra frásögn þína. Hún er mikils virði.“ „Það er ekki mikið sem ég get sagt. Ég kannaðist við John Novak fráþví að ég vann fyrir CIA. Það eina, sem ég vissi um hann, var að hann vann í austan- tjaldslöndunum, þar til við hitt- umst aftur í Sofia. Hann kom upp á hótelherbergið mitt, og bað mig um að sækja upplýsingar fyrir sig. Bókina „Hroki og Hleypi- dómar,“ með skilaboðunum frá Absalom. Hann ætlaði að bíða eftir mér, en sagði, að ef eitthvað kæmi fyrir sig ætti ég að fara með bókina til Hvíta hússins. Novak var skotinn fyrir framan hótelið nokkrum mínútum eftir að ég kom til baka. Svo að ég gerði eins og hann hafði lagt fyrir mig.“ „Reyndi enginn að stöðva þig?“ Súsanna brosti. „Jú.“ Henni varð hugsað til Azarovs. Hvernig hann hafði elt hana, hrætt hana, og að lokum bjargað henni. „Segðu mér frá því.“ Hún hafði einhverstaðar lesið að hann væri lítið fyrir lang- dregnar frásagnir, svo að hún reyndi að vera stuttorð. Forsetinn hlustaði af athygli. „Hvað vissir þú mikið um Absa- lommálið?“ spurði hann þegar hún lauk máli sínu. „Sama og ekkert. John Novak var njósnari frá okkur. Yfirmaður hans í leyniþjónust- unni var Jess Simpson. Novak áleit að hann hefði verið myrtur. Svo var það maður að nafni Peter Atkins. Hann var — undarlegur — vægast sagt. Hann þóttist vinna fyrir CIA, en ég hafði grun um að hann væri á einhvern hátt tengdur KGB. Eg var í vafa þar til hann var myrtur. Nú veit ég ekki hvað ég á að halda.“ „Peter Atkins,“ tautaði forset- inn. „Það var rétt hjá þér að treysta honum ekki. Hann var tvöfaldur njósnari, og ekki trúr neinum, nema þeim, sem síðast hafði greitt honum. Hvað um kommúnistana sem þú hittir, segðu mér frá þeim.“ „Atkins sagði mér að Aleksei Azarov væri yfirmaður hjá KGB, og kynni mín af honum staðfestu það. Ég held að Melinski, hinn kommúnistinn sem ég hafði kynni af, hafi verið úr lögregludeild KGB. Það var tvímælalaust rígur milli þeirra tveggja. Þeir voru. . . harðir.“ „En þú slappst úr landi með skilaboðin." Forsetinn starði inn í eldinn. Súsanna þagði. Þá stóð hann upp, og kastaði viðarkubb inn í deyj- andi glæðurnar. „Hefurðu nokkra hugmynd um hver Absalom er?“ spurði hann um leið og hann settist aftur. Súsanna starði á hann. „Hver Absalom er? Er einhver Absalom til? Ég hélt að „Skilaboð frá Absa- lom“ væri dulnefni á einhverjum sérstökum upplýsingum.“ Forsetinn brosti dauflega. „Nei frk. Clarke. Absalom er svo sannarlega til, og skilaboðin komu beint frá honum. Upplýsingarnar frá honum voru lífsnauðsynlegar fyrir CIA. Absa- lom er okkar besti njósnari.“ Hann leit á hana „Ég skal segja þér frá Absalom Utz, frk. Clarke. Hann er einstákur í sinni röð.“ „Hann er fæddur og uppalinn á samyrkjubúi, rétt fyrir utan Moskvu. Lífið var honum erfitt, erfiðara en við getum ímyndað okkur — og erfiðleikar hans jukust enn meira þegar móðir hans dó, og faðir hans var þving- aður í herinn. Absalom var þá aðeins sjö ára. Einhvern veginn tókst honum þó að klóra í bakkann, með þv! að strjúka og elta hermennina uppi. Hann hljóp í sendiferðir fyrir þa fyrir smápeninga. Þá kom til sög- unnar háttsettur liðsforingi, Sergeyev, sem áleit drenginn geta lært. Absalom hlaut menntun sína í góðum herskóla, og kom að lokum út með fyrstu einkunn úr njósnaskóla KGB. En hani) sýndi — að því er yfirmönnum hans þótb— of mikið af sjálfstæðri hugsun og fram- kvæmdasemi. En þar sem þetta beindist ekki gegn flokknum, var ekkert gert í málinu. Sergeyev hélt sig að mestu í bakgrunni lífs Absaloms til að byrja með, en eftir því sem árin iiðu, og hæfileikar Absaloms komu í ljós, urðu þeir meiri vinir, og að lokum næstum eins og faðir og sonur. Afrek Absaloms voru mörg hjá KGB, og hann Jiækkaði brátt í tign. og reyna sem minnst á mig og nú er búið að reka mig úr vinnunni. GISSOR GULLRAS5 B/lL KAVANAGU & FRANK FLETCUBR Ég verð að hætta núna, elskan. Ég get ekki meira! Leiktu nokkrar lotur.. ég meina lög... til viðbótar! Hvers vegna spyrðu? ÆTLAÐIRÐU AÐ BJÓÐAMER1BIÓ_ Ha...nei! Mei JT7 ' hug, að við ættum að v—| vera heima i kvöld og hvilaokkur! Hvernig stendur á þvi, að Gissur J biður mig um að leika á pianóið! L , Ætli hann sé loksins farinn að kunna að meta tónlist? 22 VIKAN 25. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.