Vikan

Eksemplar

Vikan - 15.07.1976, Side 20

Vikan - 15.07.1976, Side 20
............................ < VILTU HÆTTA AÐ REYKJA? TABMINT tyggigúmmí og viljastyrkur í 3 vikur og þú hefur yfirstigiö tóbaksávanann. TABMINT tyggigúmmíið hjálpar þér til aO hætta að reykja. Skildusígarettupakkanneftirheima, entaktu TABMINT pakkann meö þér í vinnuna og hvert sem þú ferð. Notaðu 1 —4 „tyggjó" plöturá dag. Tyggigúmmfið heldur einnig aftur af lönguninni til aö borðasælgætieöaaðraaukabita. HafðuhugfastaðTABMINT er hjálparmeöal. Viljann til að hætta reykingum verður einnig að vera fyrir hendi. APÓTEK OG LYFSÖLUR UM ALLT LAND. >. i 4 Istaðinn höfðu komið stereótæki og hátalarar, nokkrir hæginda- stólar á bert trégólfið, leslampar og sjónauki, svo hann gæti horft á stjörnurnar. Hér gat hann unnið miklu betur en i borginni, jafnvel þótt hann spilaði nokkrar holur í golfi, fengi sér gönguferð á ströndinni eða færi í sólbað. Svo voru það kvöldverðirnir með tild- urrófunum, sem komu á sumrin tii þess að verða fallega brúnar. Ungar stúlkur blómstruðu jafn ört og rósir á þessum hluta l^ong Island. Fjögur ár hefðu verið fljót að líða. Borgin var honum auðvitað nauðsyn. Þar vann hann sem tón- listargagnrýnandi hjá The Re- corder, mánaðarriti með þrosk- aðan smekk, bæði fyrir sígilda og nútímatónlist, djass eða rokk, ljóðasöng eða þjóðlagamúsík, óperur og sinfóníur. David Mennery lagði The Recorder til efni reglulega, einn eða tvo dálka af almennri gagn- rýni í hverju tölublaði. Þar að auki var hann með sér- stakan greinaflokk, sem hann hafði áunnið sér, vegna þess að hann hafði skrifað bók, er fjallaði um tónlistarhátíðir. Hann hafði sameinað tvö megináhugamál sín, tónlist og ferðalög og uppgötvað að þúsundir ameríkana, sem unnu tónlist voru einnig með ferðadellu. Músík á staðnum hafði komið á hann því orði, að hann væri gagnrýnandi með al- hliða smekk og stöðugt á faralds- fæti. Hitt var þó þýðingarmeira að vegna þessa greinaflokks gat hann bæði ferðast og borgað reikninginn hjá kaupmanninum og haldið við húsinu sínu. Hann hafði aldrei skilið til fulls hvernig bók sem hann hafði haft svo gaman af að skrifa gat fært honum bæði peninga og opnað honum leið til öruggrar fram- tíðar. Sú lausamennsku gagnrýni, sem hann hafði fengist við áður en bókin kom út hafði verið afsak- anleg á meðan hann var enn á þrítugsaldri, ungur og leitandi. Nú var hann 39 ára og vissi hvað hann gat eða gat ekki. Honum var nokkurn veginn ljóst hvar hann stóð. Hann sætti sig við það og leit jafnvel svo á, að hann væri heppinn. (En hann þurfti ekki að vera svona hógvær. Hann skrifaði lipurlega, var gagnrýn- andi sem kunni að glefsa í hæl- inn. Hann gerði vissar kröfur og var ekki hræddur við að dæma i samræmi við þær. Hann hafði staðgóða þekkingu á tónlist, tón- skáldum, stjórnendum og tón- listarmönnum. Hann tilheyrði ekki neinni sérstakri klíku né tískustefnu. Hann var sinn eigin herra.) Hann hafði nú lokið við að ydda síðasta blýantinn og sótti sér kaldan bjór. Nú voru ekki fleiri afsakanir og hann varð að hefja hina sársaukafullu grisjun á efn- inu. Hann strikaði út óþarfa setn- ingar og glamuryrði og endur- skrifaði út á jaðarinn. Málsgrein, sem í gær hafði virst kæn og vel við hæfi, stóðst ekki kalda gagn- rýni dagsins í dag, reyndist ekki annað en ósvikið andlegt saurlífi. Honum var engin leið að fara silkihönskum um nútíma tón- skáld, ef verkið var bæði lélegt og leiðinlegt. Vingjarnlegast var að benda slíkum manni á að snúa við úr blindgötunni, forðast ódýru brellurnar og reyna að komast aftur á réttan kjöl. Tónlist var annað og meira en samansafn af hljóðum. Hann hélt áfram að vinna og gleymdi sjávarhljóðinu og sólinni úti fyrir, sömuleiðis timanum. Hann endurskrifaði alla greinina, kom lagi á hana og hreinritaði hana síðan. Hann vildi skila henni af sér í fyrramálið áður en hann færi á tónlistarhátíðina í Salzburg. Allt í einu hringdi sfm- inn. Um leið og hann stóð upp leit hann á klukkuna sem stóð á borðinu og varð undrandi á að hún skyldi vera orðin sex. Hann tók upp símtólið. Kokteiltími, hugsaði hann, þessi venjulegu, óformlegu heimboð. Hann var til- búinn með góða afsökun, en hann þurfti ekki á henni að halda. Sím- talið var frá New York. 1 fyrstu þekkti hann ekki rödd Mark Bohns, hafði alls ekki átt von á henni. Bohn var blaðamaður, sem hélt sig að mestu í Washington, sér- fræðingur í utanríkismálum og ferðaðist mikið. Hann var gamall vinur, en lét ekki sjá sig nema með höppum og glöppum. Líklega voru ein fjögur ár frá þvi að þeir höfðu hist síðast. Og þarna hljóm- aði röddin, snaggaraleg og jarð- bundin að venju, sagði, að það væri nú meiri eltingaleikurinn að ná í hann. Hann hefði hringt heim til Davids í New York nokkrum sinnum, en síðan í yfir- mann hans og loksins getað togað út úr honum leyninúmerið í East Hampton. „Og,“ sagði Bohn i ávítunartón, ,,ég fékk það aðeins upp úr honum með því að segja, að bróðir þinn hefði lent i slysi og að ég væri heimilislæknirinn." „James bróðir minn verður víst ekkert hrifinn af þessu. Hvers konar slys?“ „Bílslys. Ef hann er líkur þér, er hann áreiðanlega með bíla- dellu.“ Bohn hafði þennan háttinn á að segja, að David hefði gaman að því að aka, en hann ekki. David sagði ekkert. Hann var nú búinn að jafna sig eftir undrunina. En hvers vegna hafði hann hringt? Bohn í New York, þar sem hitinn og rakinn var jafn óþolandi og 1 Washington. Kannski ætlaði hann að fá lánað sumarhús við svala sjávarsiðuna í nokkra daga. Bohn lét dæluna ganga. „Ég þarf nauðsynlega að hitta þig, Dave. Hvenær kemurðu til borgarinnar?" „I fyrramálið." „Má ég koma við heima hjá þér um tólfleytið?" „Ekki hægt. Ég þarf að ganga frá ýmsu hjá The Recorder.“ „En eftir hádegisverð, klukkan tvö....eða þrjú?“ „Nei, ég þarf að ná í flug snemma annað kvöld og þarf að láta niður í töskurnar mínar. Ég er á leið til Salzburg." „Ég veit, ég veit,“ sagði Bohn snöggt, eins og hann væri áhyggjufullur eða argur. „Þú ætlar á tónlistarhátíðina." „Hvernig veistu það?“ „Ég les The Recorder og hlusta 20 VIKAN 29. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.