Vikan

Eksemplar

Vikan - 15.07.1976, Side 25

Vikan - 15.07.1976, Side 25
KV LnHCT UNDAN ! I (.Mynd af spilum á borÖi) Meiri sverta í spilunum en áöur, segir spákonan. — Og dauðinn er verstur. Er það ekki hann, sem eyðileggur allt? Spyr hann um hvað fólk vill? Lífið hefur breyst mikið síðustu áratug- ina. Nú er það djöfullinn, sem ræður. Ég finn á mér, að heimsend- ir er ekki langt undan. Það er meiri sverta í spilunum nú en áður. En ég þarf svo sem ekki spilin til þess að sjá þetta út. Ég finn ýmislegt á mér og á auðvelt með að reikna manneskju út eftir að hafa spjallað við hana stundarkorn. — Hefur þér einhvern tíma fundist óþægilegt að spá? — Já oft hefur mér fundist það. Ekki alls fyrir löngu spáði ég fyrir manni, sem dró mörg svört spil. Ég sá morð í spilunum, án þess þó að sjá við hvern þetta morð ætti nákvæmlega. En ég sá, að morðið átti við einhvern, sem var skyldur þessum manni, og að morðinginn væri ung stúlka. Ungi maðurinn sagði mér, að hann væri náskyldur ungum sjómanni, sem myrtur hefði verið af ungri stúlku skömmu áður. Þetta fékk mikið á hann, þvi að hann hafði aldrei talað við mig, né þekkt mig nokkuð áður. Frásagnir af þessu morði komu að sjálfsögðu í Spjallað við spákonu á Grímsstaða holtinu. blöðunum svo að margir ættu að kannast við það. ÞAÐ ER ALLTAF TIL NÓG AF ILLVILJUÐU FÖLKI. Við helltum aftur x bollana, og dóttir spákonunnar, sem hefur verið búsett í Bandaríkjunum í mörg ár, og var stödd hér í heimsókn, settist við borðið hjá okkur. — Mamma er afskaplega dulvitur kona, og það var systir hennar og faðir líka. Það eru dulrænir hæfileikar i ættinni. Ég hef oft verið vitni að ýmsu, sem móður min hefur séð fyrir og sagt um. — Já, það eru alls staðar andar og straumar, segir móðirin. Það mætti segja mér, að fleiri en ég hafi séð huldufólk og álfa. — Eru spákonur litnar illu auga? — Já, ég býst við þvi. Það er fáfræði og öfundsýki, sem liggur að baki þeirri tilraun að gera spákonu- heitið niðrandi. Það er alltaf til nóg af illviljuðu fólki. — Nú hefur þú viðurnefni, finnst þér það vera niðrandi? — Já, ég býst við því. Það fór i taugarnar á mörgum í gamla daga, hversu smekklega ég var klædd og vel til höfð. Það hefur sjálfsagt orðið til þess, að ég fékk viður- nefnið. Við drukkum mikið kaffi og húsmóðirin skrapp fram í geymslu til þess að ná í mjólk. — Ég hef aldrei átt ísskáp og langar ekki vitund I hann, sagði hún, þegar hún kom til baka. — fsskápur tilheyrir veraldlegu drasli, og mér finnst allt slíkt vera hégómi. Og ekki tökum við hégómann með okkur, eða hvað? Ég lít út um glugganniá eldhúsinu og sé, að þar sem litil einbýlishús stóðuáður, er búið að reisa stórt sambýlishús. — Já, það hefur margt breyst síðustu árin, segir hún. Ég þekki engan hérna á holtinu lengur. Allir, sem ég þekkti, eru dánir eða farnir eitthvert langt í burtu. Ég hef lifað svo marga. 29. TBL. VIKAN 25

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.