Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 15.07.1976, Qupperneq 26

Vikan - 15.07.1976, Qupperneq 26
EKKI HÉGÓMI AÐ SPÁ. En það er ennþá gestkvxmt hjá þessari öldruðu spákonu, og ég spyr hana, hvort spádómurinn drýgi ekki tekjurnar. — Ó, það er nú lítið. Ég lifi aðallega á elliiíf- eyrinum. — Er það ekki hégómi að spá í spil? ó, nei mín ksera. Ég get meira að segja sagt þér sögu til þess að sanna það. — Það var hér eina nóttina skömmu áður en maðurinn minn sálugi dó, að það er eins og hvíslað sé að mér að spá í mín eigin spil. Ekki sinnti ég þessu til að byrja með, en ég fékk engan frið, svo að ég rölti fram í eldhús og lagði spilin. Sé ég þá ekki dauðaspilin og þau meira að segja tengd einhverj- um mér mjög nákomnum. Mér varð náttúrlega mjög hverft við en vildi þó engu trúa, sérstaklega þar sem ég las það líka úr spilum mlnum, að ég setti ferðalag til útlanda í vændum. Það þótti mér heldur ótrúlegt svona á gamals aldri, svo að ég hélt þetta bara tóma ímyndun í mér allt saman. En það fór svo, að maðurinn minn lést skömmu síðar, og eftir jarðarförina hélt ég til Danmerkur ásamt dóttur minni. Nú berst talið að Kaupmanna- höfn, og ég spyr gömlu konuna um systur hennar Guðný Vestfjörð, sem bjó þar mestan hluta ævi sinnar. — Guðný var þekktur miðill I Kaupmannahöfn, og til hennar komu margir danir I leit að andlegri hjálp. Hún var I mörg ár búsett I Fredriksbergvej, og þangað kom margt frægt fólk og þekkt I Danmörku. Guðný hafði ekki að- eins miðilshæfileika, hún gat llka sagt fyrir um örlög fólks og hagi. Hún gat til dæmis sagt fyrir um hluti með þvl aðeins að líta á hring af viðkomandi manneskju. Það þótti mörgum alveg sérstakt, og það efldi trú manna á dulrænum hæfi- Þrastargata 9, þar sem spákonan á heima. leikum hennar. Ég gæti trúað, að margir íslendingar könnuðust við Guðnýju, því að hún kom hingað fyrir mörgum árum, og sýndi kvikmyndir af miðilsfundum I Trípólibíói, sem nú er búið að rífa. SVONA ER ÞAÐ MEÐ DULSPEKINA. — Já, það er ekki að efa, að dulrænir hæfileikar eru erfðaeigin- leikar. Hann faðir minn sá ýmislegt ókomið fyrir. Ég gleymi því seint, þegar ég eitt sinn var I gönguför með honum suður I Skerjafirði, þegar hann bendir allt I einu I þá átt, sem flugvöllurinn er nú, og sagði: — Þarna á eftir að rlsa stórt hús, og I sambandi við það verður mikið að gera, ys og þys og hávaði. — Þetta var löngu áður en flugið kom til sögunnar, svo að mér þótti þetta heldur skrýtin fullyrðing. En hvað gerðist ekki? Já, svona er það með dulspekina. Fólk, sem hefur hæfileika á við hana Guðnýju systur og pabba minn er ekki á hverju strái. — Nei, ég hef aldrei lært að spá og aldrei lesið neitt um dulspeki. Ég lærði að lesa hjá honum Þorleifi barnakennara I Grjótagötunni, það er nú allt, sem ég hef afrekað á menntabrautinni, segir spákonan og brosir. Það þarf heldur ekki menntun til þess að sjá feigð á mönnum, um það getur þessi aldraða kona borið. — Morgunn einn fyrir fáum árum vorum við hjónakornin hér heima, og maðurinn minn ætlaði út I búð. Hann var að fara I skóna, þegar mér verður litið á hann, og mér sýndist hann eiga I erfiðleikum með að komast I þá. Þegar ég leit betur á hann, fannst mér ég sjá einhvern óskaplegan hrylling yfir honum upp af höfðinu. Ekki get ég lýst þvl I hverju hann var fólginn þessi hryllingur. Þegar ég stakk upp á þvl við hann, að ég færi út I búð, vildi hann það ekki. Þetta var I síðasta skipti, sem hann gekk út úr þessu húsi, því að hann datt I búðarferðinni og slasaðist. Hann var fluttur á spítala og dó þar. Ég hafði séð feigð á honum, þegar hann var að fara. Ég hef dvalið lengi og spjallað við konuna á Þrastargötunni og finnst tlmi til kominn að kveðja. Hún sagðist eiga von á fólki hvað úr hverju, fólki, sem vildi fá að vita eitthvað um sjálft sig. Á.K. 26 VIKAN 29. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.