Vikan

Útgáva

Vikan - 15.07.1976, Síða 32

Vikan - 15.07.1976, Síða 32
hingað yfir til Frakklands með smvglaraskipi og til þess að forða mér undan lögunum. sem ná til útflytjenda. bauð hertoginn af ■Otrante mér stöðu sem lesari hjá madame de Talleyrand og um leið..." ..Já. hann vildi liklega sjálfur eiga þar hauk í horni!" sagði keisarinn. Mig undrar það ekki. Sér gjöf til gjalda. er ekki svo Fouché? Mig langar til þess að vita hvernig stóð á því, að þér buðuðhitflvtjanda vernd yðar." Marianne veitti því athygli að Fouché létti. „Það er mjög einfalt yðar hátign." sagði hann. „Það bar að með þeim hætti ..." „Seinna. seinna." Keisarinn var aftur farinn að ganga fram og til baka. en heldur hægar núna. Hann var með hendur fyrir aftan bak og hann virtist mjög hugsi. Hin vingjarn- lega. Jósefína greip þá tæki- færið. hjálpaði Marianne á fætur og fékk hana til þess að setjast niður. Hún þurrkaði tárvotar kinnar hennar með vasaklút og kallaði á Hortense dóttur sina og bað hana að sækja eitthvað heitt að drekka handa Marianne. „Láttu útbúa bað handa henni og sæktu þurr föt. Mam'selle d'Asselnat verður hér um kyrrt hjá okkur í nótt." „Yðar hátign er mjög alúðleg," sagði Marianne og brosti dapur- lega. ,,en ég vil heldur fara. Eg vil komast til hins særða félaga míns. Við ætlum að leggja af stað saman til Ameríku á morgun. Skip hans bíður okkar i Nantes." „Þér gerið eins og yður er sagt, mademoiselle," sagði Napóleon stuttaralega. „Örlög yðar eru ekki í vðar eigin hendi. Við erum ekki búin að gera út um málið. Áðúr en þér farið til Ameríku, þurfið þér að skýra ýmislegt betur." Skýra, æ gr * minn góður. hugsaði Marianne. Þvílíkur kjáni hafði hún verið að hætta sér inn í þetta broddfluguhreiður til þess að bjarga honum, eða öllu heldur til þess að sjá hann, þó ekki væri nema andartak. Hún hafði enn alið einhverja von í brjósti sér, þó hún vissi ekki hvers vegna. Kannski vonaðist hún til þess að endurvekja blíðu nætur- innar forðum. Nei, þessi hrjúfa, kaldranalega rödd talaði skýru máli. Hún var honum einskis virði. Þetta var tilfinningalaus maður. En hvernig hafði hann náð þessum tökum á henni? „Eg er yðar hátign ævinlega til reiðu," muldraði hún ofan í barm sér. „Gefið skipunina og ég mun hlýða" „Ja, ég vona það bara. Þiggið fötin og baðið, sem hennar hátign býður yður, en verið fljótar. Þér eigið að vera reiðubúnar að koma með mér til Parísar innan klukku- stundar." „Yðar hátign," sagði Fouché auðrnjúkur, ,ég skal gjarnan annast um madamoiselle. Sjálfur ætla ég að snúa aftur til Parísar og ég get farið með hana að Rue de Varenne." Þýlyndi hertogans af Otranto færði honum ekkert nema reiðilegt augnaráð. „Þegar ég þarfnast ráðlegg- ingar yðar, Fouche, skal ég láta yður vita. Af stað nú mademoiselle, og fljótt." „Má ég að minnsta kosti fá að vita, hvað orðið hefur af félaga mínum?" spurði hún djarfmælt. „í návist keisarans, mademoi- selle," hreytti Napóleon út úr sér, „þurfið þér ekki að hafa áhyggjur af öðrum en yður sjálfri. Þér eruð þegar nógu illa á vegi stödd. Gerið ekki illt verra." En það þurfti meira til en reiði Napóleons að láta Marianne snúa baki við vini sínum. „Yðar hágöfgi," sagði hún þreytulega,„jafnvel sá, sem á dauðadóm yfir höfði sér, hefur rétt til þess að láta sér annt um vin sinn. Jason Beaufojrt særðist, þegar hann var að1 reyna að bjarga yður og. ..“ „Og að yðar mati er framkoma mín óafsakanleg? Hafið engar áhyggjur, mademoiselle, hinn ameríski vinur yðar er ekki alvar- lega særður. Hann fékk kúlu i handlegginn og þetta er áreiðan- lega ekki sú fyrsta. Trebriant höfuðsmaður er núna að svipast um eftir vagninum, sem hann segist hafa skilið eftir á veginum. Á eftir mun hann fara í kyrrþey aftur til Parísar." „Já, en ég vil ræða við hann." Napóleon lamdi hnefanum í lítið borð og,það brotnaði undan högginu-. „Hver dirfist að segja, „ég vil,“ við mig. Nú er aióg komið! Þér fáið einungis að hitta þennan mann með mínu leyfi og þegar mér þóknast! Fouché, úr því að yður er svona mikið í mun að gerast fylgdarmaður, skuluð þér annast um þennan Beaufort." Lögreglustjórinn hneigði sig og hæðnisglott lék um varir hans. Síðan yppti hann hæversklega öxlum og dró sig i hlé. Hún horfði á hann yfirgefa her- bergið, siginaxla og vonsvikinn. Þessi sjón hefði átt að gleðja hana, en reiði mannsins, sem stóð þarna fyrir framan hana, var of frábrugðin framkomu Charles Denis. Nú skildi hún hvers vegna hann var kallaður mannætan frá Korsíku. En þrátt fyrir vonbrigði sín gat Marianne ekki annað en dáðst að þessari valdsmannslegu framkomu. Jósefína hafði horft á þessa sennu án þess að skipta sér af, en þegar Fouché var farinn, reis hún á fætur og tók um arm Mariannes, þar sem hún stóð þarna líkt og bergnumin. „Hlýðið, barnið gott. Það er ekki rétt að setja sig upp á móti keisaranum, hver svo sem skipun hans er.“ Marianne var enn í uppreisnar- hug, en sefaðist heldur, er hún mætti döpru augnaráði Jósefínu. Þrátt fyrir hennar eigin ást á Napóleon gat hún ekki annað en hænst að þessari einmana konu, sem var svo vingjarnleg við hana, og virtist ekki láta þessar einkennilegu kringumstæður hafa áhrif á sig. Hún reyndi að brosa, en hneigði sig síðan og kyssti á hönd hinnar fyrrverandi keisaraynju. „Yðurtil þjónustu, madame." Keisarinn lét eins og ekkert væri. Kannski heyrði hann ekki þessa síðustru ögrun. Hann snéri baki í konurnar tvær, starði út um gluggann og kreisti kögrið á silki- gluggatjöldunum milli fingra sér. Án frekari málalenginga hneigði Marianne sig fyrir Jóse- fínu, en gekk síðan á eftir þjónustustúlkunni sem Hortense hafði sótt. Um leið og hún fór út, kom henni 1 hug hvort sá tími myndi nokkru sinni renna upp, að hún fengi að velja sín Esjuberg er í leiðinni Landsmenn lítið inn á Esjubergi. Við bjóðum allt frá ódýrum smáréttum upp í glæsilegar stórsteikur. □IJ rt Veitingabúó Cafeteria Suöurlandsbraut2 Simi 82200 32 VIKAN 29. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.