Vikan - 05.08.1976, Blaðsíða 2
Langt suður í höfum er eyja
þar sem Sindbað sjómaður átti
viðdvöl í einni ferða sinna. Hafði
hann þá lent í ævintýrum miklum
og sjóhrakningum, er hann nálg-
aðist eyjuna og komst í skjól við
strendur hennar. Uppi á landi sá
hann gróður mikinn og hugðist
njóta þar hvíldar um hríð og leita
vista. Er nær landi kom sá hann
vík eina þar sem hann sigldi inn,
og tók land vestan í víkinni það-
an sem hann hugðist leita vista.
Lét hann hrinda út báti, gekk um'
borð ásamt áhöfn sinni og voru
þeir þá samankomnir 33 í bátnum.
Er í land kom undruðust þeir
gróðursæld og gæði landsins, því
að þar voru ávextir á hverri grein
og fjöldi vatna rann til sjávar.
Er þeir höfðu matast og drukkið
að vild, héldu þeir lengra á land
upp eða þar til þeir komu að klett-
um miklum, sem í voru höggnar
vistarverur. Kom þar til móts við
þá mær ein fögur er kvaðst nefnd
Mæja og vera drottning eyjarinn-
ar. Bauð hún þeim til húsa. Er
inn kom var þar fyrir fjöldi ungra
meyja, og dvöldust Sindbað og
menn hans þar í þrjár vikur í glaum
og gleði viðfagran söng og hljóm-
list. Eftir ævintýri mörg hugðust
þeir halda ferð sinni áfram,
kvöddu drottningu með virktum
og báðu hana og meyjar hennar
vel að lifa og njóta sunnu lengi
þar. Fékk Mæja þeim að skilnaði
33 fagrar meyjar til fylgis við sig
og bað þá njóta og rétti þeim að
síðustu lykil að húsum sínum, en
þangað vildi hún að þeir snéru
aftur ef þeim sækti leiði, ,,því
hér," sagði hún ,,býr orka mikil,
er ykkur er heimilt að njóta
hvenær sem þið farið í sumarfrí,
strákar mínir, og allir ykkar kunn-
jMMjjjM r •mt i
mak* j J0 1?
i m * wv mmm
PALMA NOUá
ingjar. Og vitið það að eyja þessi
er eftir mér nefnd og þeim krafti
sem hér býr og skal á ykkar máli
héreftir nefnd Mæj-orka." Eftir
þessa kveðju fóru Simbi sailor og
menn hans á haf út með meyjarn-
ar fögru, en á hverju sumri snéru
þeir aftur til Mæj-orku og gistu
,,Hótel 33" í nokkrar vikur.
Langt er síðan saga þessi
gerðist, en tryggð Sindbaðs við
Hótel 33 hefur aldrei rénað, og
snýr hann þangað enn á ári hverju
og unir sér við glaum og gleði í
nokkrar vikur. En nú kallar hann
það að „hlaða batteríin" fyrir
komandi ævintýri.
Fleira hefur breyst á þessum
tíma. Ég hitti Simba á Hótel 33
í sumar þar sem hann var að
„hlaða batteríin" ásamt félögum
sínum. Hann hafði breytt um
Hitinn er nægur og sunna allsstaðar
2 VIKAN 32. TBL.