Vikan - 03.02.1977, Blaðsíða 51
TONI HANSEN heitir hann og
er danskur loftfimleikamaður.
Meðal þeirra atriða, sem hann
sýnirfólki, er stökk úr 15 metra
hæð niður í sandbing (sjá
myndir). Maðurinn er mikill
karateiðkandi og alls óhræddur
að taka nokkra áhættu.
ÞETTA RAFMAGNSDRIFNA
FARARTÆKI er ætlað fötluð-
um og hreyfilömuðum. Farar-
tækið kemst yfir 10 sentimetra
háa gangstéttarsteina og 25%
halla. Verðið í Þýskalandi er frá
3376 til 4019 mörk, eftir því hve
æargir aukahlutir fylgja.
VIKUBLÖÐIN eru full af frá-
sögnum af Liv Ullmann, hinni
þekktu norsku leikkonu, enda
hefur hún nýlega sent frá sér
endurminningabók, sem hefur
verið vel tekið. Norskt vikublað
spáir nú, að næsti elskhugi, eða
mannsefni Liv Ullmanns, sé
Bertil Ohlson, sem sést hér að
ofan. Bertil er sænskur kvik-
myndahöndlari, 37 ára og frá-
skilinn. Hann og Liv hafa þekkst
í tvö ár en lítið sést saman þar til
alveg nýlega. Bertil fylgdi henni
m.a. til Kaupmannahafnar er
hún kom þangað til kynna bók
sína.
ÚRVAL
TEPPA
RLENSKU
IIAMKASIU 1 11 SIMI 114*8
5. TBL. VIKAN 51