Vikan - 24.02.1977, Blaðsíða 9
gSKpiíi -tv*a-> -
Lyftu fótunumí Lyftufótunum!
Ég er orðinn dauðleiður á þv(
að hjálpa til við húsverkin.
★ ★ ★
Sjúklingur á Kleppi var haldinn
þeirri þráhyggju, að hann hefði
gleypt kött, og þessi bölvaður
kötturvarsífelltaðrífa og klóra, svo
hann haföi engan stundlegan frið
fyrir þessum ófögnuði.
Nú vildi svo til, að sjúklingurinn
fékk botnlangabólgu, svo það
þurftiaðskerahann upp. Læknun-
um datt nú ( hug, að þarna væri
tilvalið tækifæri til að losa mann-
garminn við kattardelluna (leiöinni.
Þegar hann vaknaði eftir uppskurð-
inn, voru þeir búnir að verða sér úti
um helvíta mikið svart fress, sem
þeir sýndu honum og sögðu sem
svo: „Jæja, lagsmaður, nú erum
við búnir að skera þig upp og taka úr
þér kattarófétið, sem þú sérð
þarna."
En sjúklingurinn lét ekki plata sig
„Þetta er bara aldeilis ekki sá
köttur,"sagðihann. „Hannvarsko
ekki svona á litinn."
„Nú, hvernig var hann þá litur?'
spurðu læknarnir.
„Hann var grænn."
★ ★ ★
1
— Til hvers þarftu ný föt? Það
sjá allir ( gegnum þau gömlu
ennþá.
★ ★ ★
I NÆSTU VIKU
LITUR EÐA SVART/HVlTT
íslenska sjónvarpið hefur nú hjarað í rúman áratug, og
þótt mörgum finnist þreytusvipur á dagskránni, vilja
þeir endilega fá að sjá hana i lit. Nú virðist sem
litadraumurinn muni rætast í náinni framtíð, og
seljendur sjónvarpstækja búa sig undir slaginn og
vænta mikilla viðskipta. Þeir sem fyrstir fengu sér
sjónvarpstæki þurfa nefnilega að fara að endurnýja, og
búast má við, að flestir kjósi fremur litsjónvarpstæki
en svart/hvítt. Vikan fór á stúfana og kannaði
markaðinn, og i næsta blaði birtast handhægar og
greinargóðar upplýsingar fyrir væntanlega kaupendur.
„TONNI Á STÖÐINNI”
I næsta blaði birtist viðtal við gamlan reykvíking, sem
jafnan var nefndur „Tonni á Stöðinni.” Hann vann sem
brunavörður í 49 ár, byrjaði rétt eftir brunann mikla
1915, þegar Hótel Reykjavik og fleiri hús brunnu til
ösku. Anton Eyvindsson verður 84 ára um þessar
mundir og er enn heilbrigður og hefur sama ljúfa skapið
og þegar hann bjó í Eyvindarkoti í Skuggahverfinu.
Tonni segir frá lífi brunavarða í gamla daga, hann lýsir
álaveiðum í Tjörninni og ýmsu fleiru.
KVIKMYND UM FREUD
Sigmund Freud er einhver þekktasti sálfræðingur, sem
uppi hefur verið. Færri vita, að hann átti dóttur, sem
kaus að halda uppi merki föður síns að honum látnum.
Hún er nú orðin 80 ára og hefur starfað sem
sálfræðingur í hálfa öld. Anna Freud hefur hins vegar
aldrei viljað ræða um sinn fræga og umdeilda föður —
fyrr en nú. Hún rýfur nú þögnina og lætur gera
kvikmynd um sig og föður sinn. Sjá næstu Viku.
MILDRED
EINKALÍFINU
Hversu margir kannast við nafnið Yootha Joyce?
Sennilega afar fáir. En flestir þekkja persónuna, sem
Yootha Joyce sýnir okkur i sjónvarpsþættinum
vinsæla „Maður til taks.” Þar leikur hún húsmóðurina
Mildred, sem fjargviðrast og fjasar við George sinn,
brigslar honum um lélega mannasiði og þó sér í lagi
fyrir getuleysi hans til hvílubragða. 1 greinarkorni í
næsta blaði kynnumst við lítillega heimilislífi Yoothu,
sem er talsvert frábrugðið því, sem hún sýnir okkur í
sjónvarpinu.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristin Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Guðmundur Karlsson, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart.
Auglýsingastjóri: IngvarSveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðslaogdreifingí Síðumúla 12. Símar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða
kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar,
mní, ágúst.
I
8. TBL. VIKAN9