Vikan - 24.02.1977, Page 15
. .'« ' -1
sem hann situr í aftursætinu í
glansandi fallegum lúxusbil, og
spjallar við Ríóbræður, er þeir aka
eftir Fríkirkjuveginum meðfram
Tjörninni í Reykjavík. Þeir virðast
vera að komast að niðurstöðu um
vandamál ríkisins, því allir brosa
hver i kapp við annan og hreyfa
varirnar í ákafa, en umræðuefnið er
sýnilega geysilega vel varið leynd-
armál, því ekkert heyrist, nema
ómurinn af Ríósöngnum um Öla,
þannig að enginn fær tækifæri til að
rífast um þessi málefni dags og
rikis.
Hann hafði sett vatnið í kaffið
(alvörukaffi) í kastarholu á raf-
magnsplötuna, þegar hann settist,
svo hann átti ekki von á neinu
ónæði úr eldhúsinu rétt á meðan
hann hlustaði á gæjana í sjónvarp-
inu.
Þegar hann tók svo upp á því að
hósta í ákafa eftir að Öli Jó var
farinn úr bílnum, þá mundi hann
allt í einu eftir kastarholunni á
plötunni frammi og rauk fram til að
gá, hvað vatninu liði.
En vatnið var ennþá ískalt. Hann
hafði gleymt að kveikja á plötunni.
Hann kveikti nú á plötunni og fór
inn aftur til að sjá meira. Þegar
næsti þáttur var búinn, fór hann
enn að lengja eftir kaffi og fór nú
aftur fram til að sjá, hvað því liði.
En hann hafði þá gleymt að setja
kastarholuna á plötuna, sem nú var
orðin eidrauð af hita og vonsku, en
kastarholan stóð við hliðina á henni
hreyfðist ekki og steinþagði.
Adamsfjölskyldan var löngu út-
dauð, þegar kaffið var loks tilbúið á
brsa, sem hann gat borið með sér
inn, þar sem hann hreiðraði um sig
á nýjan leik og fór að gæða sér á
kaffinu langþráða.
— Ég verð vist að fá mér
hraðsuðuketil til að hita vatnið,
hugsaði hann, þegar hann loks fór
inn í svefnherbergið og fór að búa
sig undir að koma sér í háttinn, en
þar beið hans uppbúið tvíbreitt
antikrúm, þar sem aðrir höfðu
löngum rætt við Ola Lokbrá fyrir
ævalöngu, eða um það leyti, er H.
C. Andersen kynntist honum.
En við skulum ekki rugla saman
Herluf Clausen og H. C. Ander-
sen, þvi þeir þekktust aldrei, svo
vitað sé. Og okkar alvöru, islenski
Sesar, er heldur ekki neinn ævin-
týraprins ennþá, þótt ýmsa gruni, að
svo kunni að lokum að fara.
Nei, Herluf byrjaði aivöru lífsins