Vikan - 24.02.1977, Blaðsíða 20
upp tíu ára gamlar minningar um
„Grimmdarverk Moreaus.” Þessi
orð svifu mér fyrir hugskotsjónum
augnablik, og síðan sá ég þau rituð
með rauðu letri á lítinn gulan
bækling, og við lestur þeirra fór um
mann hrollur og skjálfti. Svo mundi
ég allt greinilega um þetta mál. Ég
sá aftur fyrir mér þennan löngu
gleymda bækling og nú óþægilega
skýrt. Þá hafði ég verið unglingur,
og ég geri ráð fyrir, að Moreau hafi
nú verið um fimmtugt, hann var
ágætur og meistaralegur lifeðlis-
fræðingur og vel þekktur meðal
visindamanna fyrir óvenjulegt
imyndunarafl og ruddalega hlut-
lægni i umræðum.
Var þetta þessi sami Moreau?
Hann hafði birt nokkrar mjög
furðulegar staðreyndir í sambandi
við blóðgjafir, og auk þess var
vitað, að hann hafði með höndum
mikilsverðar rannsóknir á sjúkleg-
um vexti. Svo var ferli hans
skyndilega lokið. Hann var að fara
frá Englandi. Blaðamaður einn fékk
aðgang að tilraunastofu hans með
þvi að ráða sig þangað sem að-
stoðarmaður, en tilgangur hans var
sá að ljóstra upp um mikilvæg
leyndarmál, og af hræðilegri til-
viljun — ef það var þá tilviljun —
varð hinn hryllilegi bæklingur hans
viðkunnur. Daginn, sem hann var
birtur slapp úr húsi Moreaus hund-
ur, sem var fleginn og á annan hátt
limlestur.
Þetta var á þeim árstima, þegar
dagblöðin birta almennar rökræður
vegna skorts á fréttum, og þekktur
ritstjóri, sem var frændi áðurnefnds
aðstoðarmanns, skirskotaði til sam-
visku þjóðarinnar. Það var ekki í
fyrsta sinn, sem samviskan hefur
snúist gegn rannsóknaraðferðum.
Læknirinn var einfaldlega hrópaður
út úr landinu. Ef til vill átti hann
það skilið, en samt finnst mér
hálfvolgur stuðningur samstarfs-
manna hans og það, að stór hópur
vísindamanna sneri við honum bak-
inu til skammar. Þó voru sumar
tilrauna hans, að því er blaðamað-
EYJfi
DR.MOREfíUS
SAMAX
hillu-
samstæöan
i kom'm
& aftur,
P Sp gjg U - | ff veistUf
jpT PJ- húner
1^^ ^^^^^ít^^^^skemmtttegri.
Ekki bara hillur,
Uka skúffur, skápar, skrifborð
og p/ötuskápur. Hlutir sem þú raóar eftír þiiu höfði. Komdu
og skoðaðu. Einnig fjölbreytt úrval af skrifborðum,
skattholum, svefnbekkjum og svefnsófum.
Kaupið femingargjöfma tánanlega.
Verðið hjá okkur er mjög hagstætt.
Húsgagnaverslun Reykjavíkur hi
Jr Brautarholti 2 • Slmar: 1-19-40 & 1-26-91
urinn sagði, óþarflega grimmilegar.
Ef til vill hefði hann getað keypt sér
frið í þjóðfélaginu með þvi að hætta
rannsóknum sínum, en að því er
virðist mat hann rannsóknirnar
meira, eins og flestir þeir mundu
gera, sem hinir máttugu töfrar
rannsókna hafa einu sinni náð
tökum á. Hann var ókvæntur og
hafði sem sé aðeins sinna eigin
hagsmuna að gæta.
Ég þóttist sannfærður um, að
þetta hlyti að vera sami maðurinn.
Allt benti til þess. Mér varð ljóst,
hvaða örlög biðu púmunnar og
hinna dýranna, sem höfðu nú verið
flutt ásamt öðrum farangri inn i
garðinn bak við húsið og einkenni-
leg, dauf lykt af einhverju þekktu
efni, lykt, sem hafði fram að þessu
verið neðarlega i vitund minni, kom
aftur uppí huge mínum. Það varsótt-
hreinsunarlykt skurðstofunnar. Ég
heyrði púmuna urra hinum megin
við vegginn, og einn af hundunum
gelti eins og hann hefði verið
laminn.
Þó var vissulega ekkert svo
hræðilegt í kvikskurði, einkum í
augum annars vísindamanns, að
það gæti verið skýringin á þessari
leynd. Og nú tók hugur minn
viðbragð og ég sá aftur skýrt fyrir
mér oddhvöss eyrun og glóandi
augun í þjóni Montgomerys. Ég
starði beint út á grænt hafið, sem
freyddi undan vaxandi golu, og lét
þessar og aðrar undarlegar minn-
ingar undanfarinna daga líða um
hugann.
Hver var tilgangurinn? Lokaður
garður á eyðieyju, illræmdur kvik-
skurðarmaður og þessir afmynduðu
krypplingar?...
Öp púmunnar
Montgomery hreif mig upp úr
þeirri flækju af leyndardómum og
tortryggni, sem hugsanir mínar
voru komnar í, og hinn afkáralegi
þjónn hans kom á eftir honum með