Vikan - 17.03.1977, Síða 4
af okkar fólki, sem er miklu kurt-
eisara og sýnir mun betri þjónustu
heldur en það breska. Þó voru
þarna nokkrar undantekningar frá
reglunni.
Ef þú til dæmis vilt upplifa
eitthvað „geggjað", þá skaltu
bara fara í verslunina Gildu við
Oxfordstreet. Þú kemst held ég
ekki hjá því að verða talsvert
undrandi og reyndar reynslunni
ríkari við komuna þangað. Þar er
greinilega einn stjórnandi, sem
skipar, patar og bendir, aumingja
maðurinn, hann er alveg snaróð-
ur. Hvernig skyldi honum líða eftir
vinnudaginn? Skyldi hann ekki
vera talsvert „stressaður?" Hvað
með blóðþrýstinginn og allt það?
Aðferðin við verslun þarna er
sú, að stjórnandinn spyr viðskipta-
vininn að því, hverju hann sé að
leita. Maður stamar eitthvað um
númer og hvað maður hafi hugsað
sér, síðan er manni skellt inn i
mátunarklefa, sem er svo þröng-
ur, að fyrsta hugsunin er sú, að
ómögulegt sé að máta hér inni. Þá
er komið með ekki minna en 10
kjóla, og þarna stendur maður
kófsveittur og mátar og mátar.
LJtilokað annað en að kaupa
einhvern þeirra, þó ekki væri
nema til að sleppa aftur út.
SIMCA1307/1508
SIMCA 1307 GLS, 1508 S og 1508
GT eru nýjustu bílarnir frá CHRYSLER
verksmiðjunum, sem hlutu útnefning-
una ,,BÍII ársins 1976" í Evrópu, eftir að
49 blaðamenn frá 15 löndum höföu
prófað þessa nýju gerð.
Simca 1307/1508 er glæsilegur 5
manna fjölskylduvagn, sem er meö 5
huröum og á fáeinum sekúndum má
breyta honum í eins konar „stationbíl."
Simca 1307/1508 er raunverulega
bíll morgundagsins, fáanlegur í dag.
Lúxusbúnaður f ódýrum bíl.
I Simca 1508 GT er m.a. „lúxusút-
búnaöur" sem hingað til hefur aðeins
verið idýrari bílum. M.a. má nefna litað
gler í rúðum, rafmagnsdrifnar fram-
rúður. vinnukonur og rúðusprautur á
ar, loftnet og vandað mælaborö, búiö
bestu mælum og Ijósabúnaöi.
I Simca 1307/1508 eru sérstaklega
þægileg og vönduð sæti. Allur frá-
gangur að innan er i sérflokki.
Nýjasta tækni.
I Simca 1307/1508 er „elektrónísk"
kveikja, sem tryggir lágmarks benzín-
eyðslu. Danska bílablaðið Bilen full-
yrðir, að bíllinn eyði aðeins 9 I. á 100
km í bæjarakstri. í kulda og raka bregst
„elektroníska" kveikjan aldrei, auk
þess losna menn við að skipta um pla-
tínur og stilling er úr sögunni.
Bíll í sérflokkl.
Simca 1307/1508 er framhjóladrif-
iiu bíll, sem hefurótrúlegustu aksturs-
eiginle'ka. Hann er ekki aðeins fallegur
aö utan og innan, heldur óskabíll fjöl-
skyldunnar að okkar mati og nú er það
ykkar að komast að raun um þaö.
Hringið í Vökul h.f„ C,’366/84491,
eða Sniðil h.f Akureyri 2225?.
Ekki má gleyma að minnast á
matstaði í London. Við dvöldum
því miður ekki nema fjóra daga
hér, svo að heldur lítið varð úr því
að finna góða matstaði. En ég trúi
ykkur fyrir því, að það er nefnilega
talsvert mikið atriði hjá MÍNUM að
fá góðan mat og góða þjónustu,
og reyndar er ég honum sammála.
Við getum þó bent á einn af-
bragðsgóðan, ódýran matstað,
sem heitir The Swiss Center og er
skammt frá Piccadilly Circus. Það
er mjög huggulegur staður, af-
bragðsmatur og góð þjónusta.
Við fórum í Talk of the Town,
sem er stór skemmtistaður, sem
margir íslendingar þekkja. Þarna
er skraut hið mesta, 3 hljómsveitir
leikatilskiptisogdanspíurskreyttar
fjöðrum sýna listir sínar. Aðal-
skemmtiatriði kvöldsins var að
þessu sinni söngvarinn Frankie
Waughan. Við dönsuðum, þar til
næstum allir voru farnir af
staðnum. Meira að segja fengum
við leikið okkar uppáhaldslag, sem
var auðvitað punkturinn yfir i-ið
hjá mér að minnsta kosti, því ég er
sögð talsvert rómanstísk.
Þegar ég vaknaði morguninn
eftir, leið mér ekki sem allra best.
„Timbruð heitir það víst. Við
áttum eftir að kaupa eitthvað
handa mér. MINN lauk sínum
innkaupum á núll komma núll, en
ég var ekki búin að ákveða mig,
og hvernig í ósköpunum á það að
vera hægt með allar þessar búðir
og úrval. Maður verður alveg
ruglaður. Hvernig í fj.... fara
bretar að því að halda vöruverði
svona lágu? Við klæddum okkur,
fengum okkur morgunverð, sem
ég varla gat komið niður, og af
stað héldum við, og áður en ég
vissi af var MINN búinn að láta
mig kaupa stígvél, sem ég ætlaöi
alls ekki að kaupa, en er ofsa-
ánægð með.
Og nú hefir hann fundið alveg
„superráð" til að drífa verslunar-
málin af og er fús til að miðla öðrum
herrum af ráðsnilld sinni: Farðu
með hana út að borða, bjóddu
henni kokteil fyrir matinn, rauð-
frrrr>Iukti •r'-^vggðir sterinhpf-iar-
^ SIMCA 1307
SIMCA1508
Vttkull hf.
ÁRMÚLA 36 SÍMAR 84366—84491
4 VIKAN 11. TBL.