Vikan


Vikan - 17.03.1977, Qupperneq 7

Vikan - 17.03.1977, Qupperneq 7
góðar aö fleiri og fleiri geta haldið sjúkdómnum niðri. Röðin á hinum ýmsu aðferðum, sem verða taldar upp hér á eftir, er ekki eftir virkni þeirra, því að áhrifin eru mismunandi frá einum sjúklingi til annars. 1. Sólarljósið er sennilega elsta lækningaaðferðin. 80% af psoriasis sjúklingum fá bót — eða verða einkennalausir — í sól eða Ijósalömpum. Því miður er sá galli á þessari aðferð, að 15% verða verri af sjúkdómnum. 2. Útfjólublá Ijós hafa l(ka góð áhrif, og margir psoriasissjúkl- ingar hafa útvegað sér háfjalla- sól til að geta læknað sig heima. 3. Bucky- aðferðin eru svokall- aðir mjúkir röntgengeislar, sem hjálpa í sumum tilfellum. 4. Smyrsl með nýrnahettuhor- móni, svokölluð flúor steroid- smyrsl, má prófa í sumum- tilfellum. Reynslan hefur þó sýnt, að útbrotin koma fljótt aftur eftir að meðferðinni er hætt. 5. Ditranol er efni, sem hægir frumuskiptinguna. Meðferðin verður að fara fram á sjúkra- húsi. 6. Tjara er sígilt meðal við psor- iasis. Ef Ijósaböö eru stunduð samtímis, eykst virknin. En því miður er tjaran afskaplega sóðaleg, og margir sjúklingar neita að nota hana. 7. Salicylsýra mýkir hornlagið og auðveldar að ná burt hreistr- inu, auk þess mýkir fituefnið húðina og græðir. 8. Kvikasilfur er varla nokkuð notað lengur vegna hættu á eitrun og ofnæmi. 9. Methotrexate er frumueitur, sem, stöðvar frumuskipting- una. Því miður er methotrex- ate aðeins hægt að nota í undantekningartilfellum, þar sem allt annað hafur brugðist. Það er vegna hættu á eitur- verkunum. Þó þurfa sjúklingar ekki að vera á sjúkrahúsi, heldur mæta reglulega til eftir- lits. Maður, sem þjáist af psoriasis, verður að sætta sig við, að psoriasis getur komið aftur þótt það hafi horfið alveg eftir með- höndlun. Um það bil 1/3 af psoriasis sjúklingum eru lausir við einkennin oft lengri tíma. Psoriasis i kalk. Hér kemur exemið smám saman, þarsem húðfita, sviti og dauðar hornfrumur, sem eiga að vernda húðina, eyðast með tímanum. Hornlagið verður þurrt, rifnar, og ýmis efni, sem húðin þolir yfirleitt, komast inn í húðina og valda útbrotum. Fyrst og fremst losum við okkur við það efni, sem húðin þolir ekki. Til að lækna húðina má nota „töfrasmyrsl" með nýrnahettu- hormóni. Minnist þess, að húðin er mjög viðkvæm eftir að tekist hefur að græða hana og hefur minna mítstöðuafl, t.d. gegn jafn sjálfsögðum efnum og vatni og sápu. Ef við sýnum ekki gætni vill leita í sama farið. Ef eitthvert efni hefur framkallað exem, munu áhrif af því strax framkalla útbrot aftur, ef við gleymum okkur. ' 2. Flösuexem stafar af því að maður hefur erft sérstaklega þurra húð, þar sem frumur hornlagsins slitná hægar af en eðlilegt er. Minnstu áhrif á húðina valda hveitikenndu hreistri eða flösu. Hjá ungbörnum er þetta oft fitukennd skán í hársverðinum. Meðferð við þessu er notkun á sérstökum sápum og hárþvotta- efnum, sem læknirinn vísar á, einnig tímaburidin meðferð með kremi eða smýrsli með nýrna- hettuhormóni í. 3. Sveppaexem er oftast undir ilinni eða milli tánna. Á það er notað smyrsl, sem drepur svepp- ina, vökvar eða púður. Það kostar mikla þolinmæði að losna við þennan ófögnuð. Meðhöndlunin stendur í lengri tíma og þarf að vera vel á verði, svo það komi ekki strax aftur. 4. Sólarexem er auövitað vegna áhrifa sólarljóssins. Við munum fjalla um það síðar. 5. Kláðaexem er meðal barna og unglinga í fjölskyldum, þar sem exem er, astmi eða heymæði, þ.e. a.s. fjölskyldum með ættgenga ofnæmis-sjúkdóma. Kláðaexemið er að því leyti ólíkt ofnæmisexemi, að það er frá leðurhúðinni, en ekki yfirhúðinni. Hjá ungbörnum sést það fyrst í andliti, en þekkist yfirleitt á því, að getur verið allsstaðar um líkam- ann, meira segja í nöglum, en þó aldrei í hárinu sfálfu (aðeins hár- sverðinum). Það dregur ekki úr hárvexti eða orsakar hárlos, þótt psoriasis sé í hárssverðinum. Venjulega byrjar sjúkdómurinn á unglingsárunum, en þó geta bæði ungbörn og gamalmenni fengið hann. Venjulega er sjúkdómurinn vægari hjá þeim, sem fá útbrotin í upphafi á olnboga, hné, hand- leggi, fætur og hársvörðinn, heldur en þeim sem fá þau á líkamann, í andliti, eða á stóru svæði í einu. Það er nauðsynlegt, að forráða- menn barna, sem hafa psoriasis, geri viðvart í skólanum, þar sem taka þarf tillit til barnsins — einnig síðar í sambandi við menntun barnsins til framtíðarstarfs. Sá sem er með psoriasis útbrot á höndum ætti að forðast vinnu, þar sem hann kemst í snertingu við efni, sem erta húðina, eins og olíur, uppleysandi efni, hreinsiefni o.fl. Útbrot, sem lýta útlit, geta orðið þung byrði í atvinnu, þar sem viðkomandi er alltaf undir smásjá viðskiptavina. Og að lokum skulum við muna eitt, og það er, að psoriasis er ekki smitandi. Það eru hvorki bakteríur eða sýklar í útbrotunum. það er samhorfa (symmetriskt). Sjúkdómurinn er verstur vor og haust, og meðhöndlun á því er að nota rakakrem og „töfrasmyrslið" með nýrnahettuhormóninu. 6. Ertingarexem kemur fram hjá fólki sem haldið er „kláðaáráttu" á þurri eða hreistraðri húð. Þetta er mjög slæmt exem, þar sem klórið orsakar breytingar á húð- inni, sem haldast við og versna við enn meira klór. Fyrst og fremst er að koma í veg fyrir klórið. Það má gera með umbúðum um sárin, t.d. sink- umbúðum. En hér hefur líka margnefnt „töfralyf" gefið góða raun. 11. TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.