Vikan - 17.03.1977, Side 11
kosið. I sampandi við poppþátt-
inn, þá er ég þér bara alls ekki
sammmá/a. Þetta heitir nú einu
sinni,, Poppfræðirit Vikunnar" og
þvl er a/ls ekki æt/að að flytja
fréttir eða slúðursögur. Eins og þú
veist er Vikan alls ekki fréttablað
og þetta er þvi miklu sniöugri
þáttur en þeir, sem áður hafa
verið. Svo er llka farið að gefa út
sérstakt Poppblað, sem kemur
sennilega til með að birta efni I
þeim dúr, sem þér Hkar best. Það
er ekki þar með sagt, að þú eigir
að s/eppa því að /esa poppfræði-
ritið okkar. Það getur nefnilega
komið sér mjög vel að geta aflað
sér gagn/egra upplýsinga íþvl.
Svo eru það b/essaðar auglýs-
ingarnar okkar. Ég skil hreint ekki
hvers vegna fólk er alltaf að fárast
.út af þeim. Það er nefnilega til
'fó/k, sem hefur mjög gaman af
auglýsingum. Fólk, sem /es he/st
ekki neittannað en auglýsingar og
við verðum auðvitað að hafa
eitthvaö við hæfiþess, þóttþað sé
ef til vill í minnihluta. Í sambandi
við krossgátuna er ég þér alveg
sammála og úr þvi getum við
örugglega bætt. Þá er nú komið
að mesta málinu, þ.e. Póstinum
sjálfum. Ég þakka þér kær/ega
stuðninginn Í kynferðismálinu. Ég
verð nefnilega stundum svo
ruglaður á ö/lum þessum spurn-
ingum, að ég veit bara alls ekki
hvort ég er karl eða kona. Því
miður virðist and/eysi bréfritara
hafa farið vaxandi að undanförnu
og ekki veit ég hverju um er að
kenna. Ég vona bara að þetta fari
batnandi meö hækkandi sól, því
að skammdegið hefur löngum
verið mönnum þungt i skauti. Svo
er auðvitað miki/ hressing aö fá
svona bréf, eins og frá þér og
vita að einhver ber umhyggju fyrir
manni. Jæja, ég ætti nú víst ekki
að vera að kvarta, því að
ruslafatan er aö drepast úr öfund
[hana langaði svo / bréfið þitt).
Vonandi heldurðu fullu viti og
kauþir Vikuna áfram til þess að
ha/da and/egri hei/su. Skrifaðu svo
aftur ef þú þorir. (Ha, ha.)
TAKK FYRIR GRÖU
Kæri Póstur!
Ég þakka fyrir allt gott efni [
blaöinu og þó sérstaklega fyrir
framhaldssöguna um Gróu. Síðan
ætla ég að spyrja þig nokkurra
spurninga.
1. Hvaða menntun þarf maður
að hafa til þess að komast [
hjúkrunarnám?
2. Hvað þarf maður að vera
orðinn gamall?
3. Kemst maður úr 9. bekk
grunnskóla í 1. bekk mennta-
skóla?
4. Hver er happatala og happa-
litur þess, sem fæddur er 29.
ágúst?
5. Hvað lestu úr skriftinni, og
hvað heldur þú, að ég sé gömul?
Þakka fyrirfram fyrir birtinguna.
Bless, bless,
1246-0821
Skelfing er þreytandi þessi of-
notkun á orðinu maður. Reyndu
nú meö sjálfri þér aö semja þrjár
fyrstu spurningarnar upp á nýtt og
sleppa algjörlega þessu orði. Það
getur verið nauðsynlegt og jafnvel
ágætt / fáeinum tilfellum, en
ótrúlega oft er hægur vandi að
orða setningar þannig, að þetta
orð sé með ö/lu ónauðsynlegt.
Það líður varla sá dagur, að
Póstinum berist ekki einhverjar
fyrirspurnir varðandi framhalds-
nám í einhverri mynd, og sannast
sagna furöa ég mig oft á því,
hvers vegna bréfritarar snúa sér
ekki frekar til skó/anna sjálfra. En
ég tel svo sem ekki eftir mér að
svara. Skilyrði til inngöngu I
Hjúkrunarskólann á síðast/iðnu
hausti voru þau að hafa lokið
stúdentsprófi eða tveimur vetrum
á hjúkrunarkjörsviði við fram-
haldsdeildir gagnfræðaskólanna
með að minnsta kosti 7 / einkunn.
Próf úr 9. bekk grunnskóla á að
nægja inn í menntaskóla sam-
kvæmt nýjustu reglum.
Happatölur þess, sem fæddur
er29. ágúst, eru 1 og 5.^Heillalitur
grænn. Þú ert á 16. ári, og skriftin
bendir til þess, að þú sért reglu-
söm og svolítið smásmugu/eg, en
dugnaður þinn og samviskusemi
eiga eftir að fleyta þér langt.
Pennavinir
Kata Þorsteinsdóttir, Slmstöðinni,
Reyðarfirði vill eignast pennavini
frá 12 ára aldri.
Aðalheiðgr Kristjánsdóttir, Ás-
gerði 6, Reyðarfirði óskar eftir
bréfaviðskiptum við stráka og
stelpur 12 ára og eldri.
Dagmar Einarsdóttir, Mánagötu
12, Reyaðarfirði óskar eftir penna-
vinum, 12, ára og eldri.
Gæðavörur
frá
Fermingarföt
Úrval af fermingarfötum úr
riffluðu flaueli og terylene-efnum
1011
o^Austurstræti
Jj
11. TBL.VIKAN 11