Vikan


Vikan - 17.03.1977, Blaðsíða 12

Vikan - 17.03.1977, Blaðsíða 12
Opinskátt og fróð/egt viðta/ við þrjá menn, sem fóru á Freeport Hospita/í Bandaríkjunum til að /eita /ækninga vegna ofdrykkju. Far vel, Bc Bakkus er harður húsbóndi, það hafa margir ís/endingar sannprófað. Hver einasta fjö/sky/da á ís/andi hefur haft kynni af áfengissjúklingum og vandamá/unum sem eru samfara ofdrykkju. Margt bendir til, að nú sé verulega að rofa ti/íþessum má/um, og má einkum þakka það tvennu: Kynnum tuga íslendinga af árangursríkum /ækningaaðferðum á Freeport Hospital í Bandaríkjunum og starfseminni á drykkjumannaspíta/anum nýja á Vífi/sstöðum. Að sjá/fsögðu er þá ekki gleymt árangursríku starfi AA samtakanna og bindindishreyfingarinnar, sem má te/jast grunnur þeirra framfara sem orðið hafa undanfarið. Vikan fékk þrjá menn, sem hafa /æknast á Freeport Hospital, ti/ að ræða opinskátt um áfengisvandamá/ sín, og hvernig það gerðist að þeir snéru frá Bakkusi. Viðmæíendur okkar eru Hi/mar He/gason, Hrafn Pálsson og Tómas Agnar Tómasson. Þeir eru allir á svipuðu reki og starfa í Reykjavík. FJÖLSKYLDAN TÓK ÁKVÖRÐUNINA — Mig langar til að spyrja ykkur fyrst um aðdraganda þess að þið tókuð þá stóru ákvörðun að fara til Bandaríkjanna í leit aö lækningu. HHmar: Ég tók ekki þessa ákvörðun sjálfur, hún var tekin fyrir mig. Ég var ekki fær um að dæma um ástand mitt, eins og það var í raun og veru. Ég vissi ekki hvernig það var. Ég vissi, að það var eitthvað hroðalegt að gerast, ég vissi, að ég gat ekki hætt að drekka — búinn að reyna það. Það var þessi frestun um einn dag, reyna að hætta á morgun, og óska þess alltaf á kvöldin, að nú væri ég hættur. Svona var þetta búið að ganga í tvo mánuði, og þá var ákvörðunin tekin fyrir mig af fjölskyldu minni. Ég mótmælti engu, ég hefði ekki einu sinni mótmælt því að verða sendur til tunglsins. Ég var það veikur, bæði andlega og líkam- lega, það mikið rekald, að ég sagði bara já. Ég hafði ekki hugmynd um, hvað ég var að fara út í, því að tveimur dögum eftir að ég frétti um þennan stað, var ég lentur á Kennedyflugvelli, og tíu mínútum síðar var ég kominn inn á Freeport-Hospital. Mér leist ekki betur á mig þegar ég kom þar inn en svo, að ég hafði á orði við Önnu Guðmundsdóttur (Anna hefur aðstoðað islendingana, sem komið hafa til Freeport) að þetta hlyti að vera einhver misskiln- ingur, þar sem húsið líktist meira fangelsi en spítala. — Var staðurinn svona kulda- legur? — Nei, ég kom svo seint, að það var búið að slökkva flest Ijósin og rökkur í flestum herbergjum. Ég vissi, að það voru engar aðrar leiðir færar en hlíta annarra forsjá, því að ég var búinn að reyna þetta sjálfur í tíu ár, reyna allar leiðir, sem ég taldi, að til væru. — Hvað geröist svo á þessum spítala í stórum dráttum? — Það er nú erfitt að lýsa því. Okkur ber ekki saman um, hvað hafi I rauninni gerst, en þarna er framsett svo mikið efni, sem er miðað við vandamál hvers og eins — það er farið yfir svo mikið efni í trausti þess, að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Það sem gerist, er að maður er rifinn niður og manni sýnt miskunnarlaust fram á, hver staða manns er. Bent á alla sjálfs- blekkinguna og lygina, sem maður hefur notað undanfarin ár, og sem jafnvel fjölskylda mapns tók þátt í. Sjálfsblekkingin ef tætt í sundur, en það er ekki nóg, því það þarf að raða brotunum saman aftur, og það er 'ekki sama hvernig það er gert. Ekki mega menn missa móðinn, þegar augu þeirra opnast fyrir ástandinu. Það verður að efla með þeim sjálfsvirðingu, sjálfs- þekkingu og sjálfsálit, og upp- byggingarstarfsemin höfðar til nákvæmlega jafn margra þátta ( mannlegu eðli og niðurrifsstarf- semin gerir. FJÖLSKYLDAN VAR BÚIN AÐ GEFAST UPP — Hvað segið þið hinir um þetta? 12 VIKAN 11. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.