Vikan


Vikan - 17.03.1977, Side 15

Vikan - 17.03.1977, Side 15
gegnum þetta án deyfingar. Það er nauðsynlegt, að fjölskyldan setji sig vel inn í hlutina, því það hefur svo margt gerst í fortíðinni, sem verður að strika yfir og gleyma. Það verður að gera allt upp og lifa síðan fyrir daginn í dag. Tortryggni verður að hverfa, en það er auðvitað hægara segt en gert. Okkar konur hafa haldið hópinn, og aðrar konur eru í AL-ANON samtökunum, sem gera mjög mikið gagn, sérstaklega fyrir þær konur, sem eiga virka alkóhólista. Í þeim félagsskap fá þær skýringar á því, hvað er að gerast. Tómas: Aðstandendurnir þurfa að læra að lifa sínu eigin lífi þrátt fyrir sjúkdóminn, og það er hægara sagt en gert. AÐ GERA ANDANN ALLSGÁÐAN — Nú hljóta að vera einhverjir hættupunktar, þegar þið eruð aftur orðnir allsgáðir? HHmar: Í eftirmeðferðinni ytra er einmitt farið yfir allt það sem getur komið fyrir okkur síðar meir, þannig að við erum nokkuð vel undir þetta búnir, en brennivíns- löngunin kemur aftan að okkur, þegar við búumst síst við því, og hún getur orðið sterk. Þá er búið að segja okkur, hvað er hægt að gera, og þá er spurningin, hvort maður gerir eitthvað í málinu strax, eða gefur eftir. Nærtækast- ur kann að vera síminn, og það getur verið nóg að bjóða vini sínum góðan daginn. En löngun- in, maður lifandi, hún er til staðar, annars værum við ómannlegir. Tómas: Þetta er allt rétt, og það er um að gera að bregðast nógu hart við. Hrafn: Ég stóð í þeirri meiningu, áður en ég fór út, að ef líkaminn yrði laus við alkóhólið, þá væri ég þar með allsgáður. En það er algjör misskilningur, við þurfum líka aö gera andann allsgáðan,' þ.e. hætta að hugsa eins og drykkjumaður. Þegar svo löngunin kemur, þá fer maður ósjálfrátt að hugsa, eins og þegar við vorum virkir, og í stað þess að gera áætlun um það, hvernig maður á að ná í flösku, þá gerir maður eitthvað í málinu. Ég hef hringt, og ég hef farið fram á salerni og bölvað fjögur hundruð sinnum í ktoss og hrist mig. Það er hægt að gera allan fjárann annan en fara í ríkið. — Farið þið I sund eða stundið Iíkam8aefingar? Hi/mar: Það er sameiginlegt með öllum alkóhólistum, þegar er að renna'af þeim, þá verða þeir frekir til fjörsins og ætla að bæta sér upp á einum degi, sem misfórst á tíu árum, en þeir gefast flestir upp á því. Einstaka halda áfram við sundið, eins og Hrafn! Hrafn: Og Hilmar borðar mest- an ís allra landsmanna! Hi/mar: Það tekur ekki viku og ekki mánuð að verða edrú. Við teljum, að það taki uppundir ár, ef ekki lengur, að verða edrú, eða réttara sagt gera hugsunina edrú, — að gamli róninn komi ekki upp í manni, gömlu klisjurnar. Hrafn: Þetta er lífstíðarverkefni, en maður er orðinn sæmilega staddur, þegar maður fer að líta á þetta meira sem hobbí en vandamál. Ég er ekki kominn svo langt ennþá, en vona það besta. ÞURRAFYLLERÍ Tómas: Manni fer að þykja gaman að þessu, en svo koma tímabil, sem við köllum þurra- fyllerí, og þá koma fram hegð- unareiginleikar, sem okkar nán- ustu verða skelkaðir yfir — hurða- skellir, hækkaður rómur og ,,af hverju er ekki maturinn tilbúinn," og fleira í þeim dúr. Maður verður býsna ringlaður, þegar þetta kemur fyrst, en þetta venst, og það líður lengra á milli þessara kasta. — Ég vil aðeins koma aftur að því, hvernig þið verjið tímanum sem nýir menn. Vinnið þið miklu meira núna, eða sinnið þið einhverjum tómstundastörfum, sem þið sinntuð ekki áður? Tómas: Þetta er persónubund- ið, og ég hef ekki orðið var við neitt tóm. Það er einhvernveginn svo, að það er nógur starfi að vera edrú og reyna að halda sér í formi. Ég hef haft nóg að gera, þegar ég hef viljað það. Við höfum allir lagt ofdrykkjuvörnum lið, og það hefur tekið sinn tíma. Hi/mar: Þegar við erum komnir yfir það versta, þá hættum við að rjúka upp til handa og fóta, þegar einhver er að falla í áfengið, við minnkum fundarsókn okkar og förum bara, þegar við viljum fara. £n ég er þeirrar skoðunar, að \fykilegur alkóhólisti er ekki fær up\ eitt eða neitt fyrstu mánuöina annað en að vera edrú, og það er ekki fyrr en eftir langan tíma, sem hann er orðinn virkilega fær um að vinna. Hann er í langan tíma alveg eins og þegar hann var fullur — með tíu verkefni á borðinu og klárar ekkert þeirra. — Hvernig er með svefnleysi eða önnur óþægindi, þegar alkó- hólið er farið úr líkamanum? Tómas: Enn er þetta einstakl- ingsbundið, en það er til læknis- fræðileg formúla fyrir því, hvað líkaminn er fljótur að losa sig við alkóhólið — það tekur ekki nema fjóra til fimm daga. Það segja reyndir menn, sem hafa verið ódrukknir um áraraðir, að maður sé alltaf jafnnálægt sjúkdómnum. Það er bara spursmálið um þetta litla handtak, sem færir manni fyrsta sopann. Það er sagt um alkóhólista, að eitt lítið glas sé of mikið, en fimm flöskur of lítið. EF ÞIÐ HÆTTIÐ, ÞÁ MUNUÐ ÞIÐ SOFA EINS OG BÖRN Hrafn: Doktor Pirro, sem kom hingað og flutti hér fyrirlestra sagði nokkrum sinnum: Ég skal lofa ykkur því, að ef þið drekkið ekki framar, þá munið þið sofa eins og börn. En það er einn þáttur í sambandi við taugarnar, og hann er sá, að þegar við hættum að neyta víns, þá megum við alls ekki hugsa um að hætta að reykja fyrsta veifið. Flestallir reykja mun meira eftir að hafa hætt drykkju. Ég hef reykt miklu meira, og það kemur niður á taugakerfinu, en svo verður vonandi minnkun á því. Ég hef aldrei á ævinni unnið eins mikið og eftir að ég kom að vestan, og ég er farinn að hugleiða að gefa mér tíma til að slaka ögn á. Ég finn, að þetta er að verða hættulegt. Þegar maður er farinn að hugleiða, hvort það sé ekki tími til að hitta einhvern, sem ekki er alkóhólisti, þá er eitthvað bogið við þetta! Tómas: Það er áreiðanlega hættulegt að ætla sér um of, því við erum í eðli okkar öfgamenn. Hrafn: Það var góð setning, sem einn maður sagði fyrir vestan: Við eigum að ná því að verða jafn- aðarmenn með vægu stjórnleysi, og hann átti þá að sjálfsögðu ekki við pólitík. ALLSGÁÐUR INNAN UM DRUKKNA — Nú var mynd í Vikunni af tveimur ykkar á nýársfagnaöi... Hrafn: Ég fékk mikið hrós hjá konunni fyrir það ball, því ég dansaði eiginlega allan tímann. Svo varð mér á að segja, að ég hefði gert þetta til að þurfa ekki að tala við þá fullu! Tómas: Ég hef gert mér far um það að breyta ekki lífsháttum mínum, og ég kem á bari eins og áður, lít bara raunsætt á hlutina, en ég veit um marga, sem varast slíka staði eins og heitan eldinn. Hi/mar: Ég var talsvert skamm- aður fyrir að fara ekki nógu oft úr með minni konu, og aö ég væri að hrella hana með því að láta mitt vandamál sitja I fyrirrúmi. Ég sagði henni að á venjulegum skröllum myndi mér líða svo illa, að það myndi smita út frá sér, og enginn hefði ánægju af þessu, og ef hún ætti að skemmta sér eitthvað, yrði hún hreinlega að stinga mig af. Hrafn: Það mæta okkur ýmis vandamál á opinberum stöðum, eða I veislum í hemahúsum. Viö getum nefnt sem dæmi, að í kokkteilpartíi er komið með krist- alsglös handa öllum, en vatnsglas með kóki í handa okkur, og þetta þýðir. Þú mátt ekki drekka. Þetta er sambærilegt við að segja við sykursjúkan mann í afmælisboði: Vertu frammi á gangi, svo þú sjáir ekki kökurnar! Það erum við sjálfir, sem verðum að ráða því, hvort við veljum vín eða ekki. Fólk á að umgangast okkur nákvæm- lega eins og aðra, og það á meira að segja að bjóða okkur vínið, það er okkar að segja nei takk.. Tómas: Þegar fólk er að umgangast okkur á vissan hátt, allt að því eins og óhreina, fer það býsna illa með mann í byrjun, en maður venst þessu. — Þið hafið minnst á, að þið séuð að starfa að ofdrykkjuvörn- um. Er nýi spítalinn á Vífilsstöðum rekinn í sama anda og Freeport? VÍFILSSTAÐIR GÓÐIR, EN... Hi/mar: Við erum kannski ekki nógu kunnugir til að gera saman- burð, en mér finnst Vífilsstaðir alveg stórkostlegir sem slíkir, þó svo áð ég geti fundið eitthvað að. Ég held, að helsta aðfinnslan yrði sú, að menn séu ekki nógu sam- hentir um val á leiðum, og menn haldi þar fram jafnvel ólíkum skoðunum, sem rugla sjúklingana í ríminu. Svo finnst mér staðar- valið ekki heppilegt, menn losna ekki frá vandamálum líðandi stundar, það er fjölskyldumálefn- um, peningavandamálum, og þeir hafa símann við hliðina á sér, þannig að það er liægt að koma öllum kvörtunum beint á framfæri við þá. Við losnuðum við þessi vandamál, meðan við dvöldumst ytra. Tómas: Þarna er verið að byrja á nýjum hlut, það er ekki lengra síðan en í maí, að staöurinn var opnaður, og í aðalatriðum hefur þetta farið fram úr okkar björtustu vonum. Ég er sammála Hilmari, að það þarf að samhæfa starfsliðið betur og gera lækninguna mark- vissari. Hrafn: Eftir skilgreiningu band- aríkjamanna er þetta líkamlegur, andlegur og trúarlegur sjúkdómur. Til þess að geta tekið alla þessa þætti til meðhöndlunar þarf [ fyrsta lagi lækni, er sér um hið líkamlega, félagsráðgjafa og sál- fræðing sérmenntaða [ þessum vandamálum, og síðan gjarnan 11. TBL. VIKAN 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.