Vikan


Vikan - 17.03.1977, Blaðsíða 20

Vikan - 17.03.1977, Blaðsíða 20
óverulega aðfall Kyrrahafsins kom með hœgu gjálfri. Bráðlega hvarf ströndin í suðri, og sólarljósið féll nú á hœgri hönd mína. Þá sá ég allt í einu langt framundan, fyrst eina og síðan nokkrar fleiri mannverur, sem komu fram úr runnunum, — Moreau með gráa veiðihundinn sinn, svo Montgomery og tvo aðra. Og þá nam ég staðar. Þeir sáu mig og fóru að pata og færa sig nær. Ég stóð og horfði á þá nálgast. Manndýrin tvö hlupu áfram til að króa mig af frá kjarrinu upp af ströndinni. Montgomery kom líka hlaupandi, en hann stefndi beint til mín. Moreau fór hægar með hundinn. Að lokum vakti ég sjálfan mig af aðgerðarleysinu, sneri til sjávar og gekk rakleitt út í hann. Sjórinn var i fyrstu mjög grunnur. Ég var kominn þrjátíu metra út, áður en öldurnar náðu mér í mitti. Ég greindi óljóst fjörudýrin, sem þutu burt undan fótum mínum. „Hvað ertu að gera, maður?” æpti Montgomery. Ég sneri mér við, þar sem ég stóð með sjóinn upp i mitti og glápti á þá. Montgomery stóð másandi i fjöruborðinu. Andlit hans var ljósrautt af áreynslu, sítt, ljósgult hár hans flaksaðist um höfuð hans. Moreau var rétt í þessu að koma á staðinn, fölur og ákveðinn á svip, og hundurinn, sem hann leiddi, gelti að mér. Báðir höfðu þeir þungar svipur. Lengra uppi í fjörunni góndu manndýrin. „Hvað er ég að gera? — ég ætla að drekkja mér”, sagði ég. Montgomery og Moreau litu hvor á annan. „Hvers vegna?” spurði Moreau. ,,Af því að það er betra en að vera pyndaður af ykkur”. „Þetta sagði ég þér”, sagði Montgomery, og Moreau sagði eitthvað lágum rómi. „Af hverju heldurðu, að ég ætli að pynda þig?” spurði Moreau. „Það, sem ég sá”, sagði ég. „Og þessir — þarna”. „Nefndu það ekki!” sagði Moreau og rétti upp höndina. „Jú, þaðgeriég”, sagðiég; „þeir voru menn, hvað eru þeir núna? Að minnsta kosti vil ég ekki líkjast þeim.” Ég leit framhjá viðræðumönnum mínum. Uppi í fjörunni voru þjónn Montgomerys og einn af dúðuðu, dýrslegu mönnunum úr bátnum og bak við hann nokkrar aðrar dökkar mannverur. „Hverjar eru þessar verur?” sagði ég og benti á þær og hækkaði röddina meira og meira, til þess að þær gætu heyrt til mín. „Þær voru menn — menn eins og þið sjálfir, sem þið hafið sýkt af einhverri dýrslegri náttúru, menn, sem þið hafið hneppt í fjötra, og sem þið óttist enn. — Þið, sem hlustið”, kallaði ég, benti nú á Moreau og kallaði fram hjá honum til mann - dýranna. „Þið, sem hlustið! Sjáið þið ekki, að þessir menn óttast ykkur enn, eru dauðhræddir við ykkur? Af hverju eruð þið þá hræddir við þá? Þið eruð margir”. „I almáttugs bænum”, æpti Montgomery, „hættu þessu, Prendick!” „Prendick!” kallaði Moreau. Þeir kölluðu báðir í kór, eins og þeir vildu drekkja rödd minni. Og að baki þeim drupu hin starandi manndýr höfði, furðu slegin, með vanskapaðar hendurnar lafandi niður og bognar herðar. Þau virtust, eða svo ímyndaði ég mér þá vera að reyna að skilja mig og muna eitthvað úr hinni mennsku fortið sinni. Ég hélt áfram að kalla, en ég man varla, hvað það var. Að hægt væri að drepa Moreau og Montgomery; að ekki ætti að óttast þá. Þetta var aðalefnið í því, sem ég lét manndýrin heyra. Ég sá, að maðurinn með grænu augun í dökku tötrunum, sem hafði hitt mig kvöldið sem ég kom, kom út á milli trjánna, og aðrir komu á eftir SVRPU SKHPHR óbreytt verð frá febrúar 1976 Nýir möguleikar, sem gera þér kleift að innrétta skápana eftir þörfum. Uppsetning á SYRPU SKÁP er þér leikur einn. Vinsamlegast sendiö mér upplýsingar um SYRPU SKÁPANA Nafn Heimili Shnfiö gr*inil»ga □uuu _SYRPU SKAPAR er islensk framleiósla. AXEL EYJOLFSSON HÚSGAGNAVERSLUN SMIÐJUVEGI 9 KÓPAVOGl SÍMI 43577 20VIKAN 11. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.