Vikan - 17.03.1977, Síða 45
TJÖRNIN
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi fyrir nokkrum
mánuðum mjög óhugnanlegan
draum og var hann á þessa leið:
Mig dreymdi að ég væri stödd í
kvikmyndahúsi með stelpu í mín-
um bekk, sem heitir H (það skal
tekið fram, að ég er aldrei með
þessari stelpu) og með lítilli stelpu,
sem ég hef passað s.l. 3 ár. Við
vorum bara þrjár í húsinu og allt í
einu fóru H og litla stelpan að
hlaupa um salinn og fóru svo út.
Ég fór út á eftir þeim, en þær
hlupu út í stóran garð og var þar
mikið af trjám. Þær hlupu hvor í
sína átt, en ég elti litlu stelpuna. í
garðinum sá ég litla tjörn. Ofan í
tjörninni lá strákur, sem ég þekkti
(en hann dó fyrir 3-4 mán. Hann
hafði alltaf verið ( mínum bekk
nema í 1. bekk. Ég fór að
jarðarförinni og þar var H stödd
líka). Ég stóð lengi og horfði ofan í
tjörnina. Hann lá með höfuðið
uppúr vatninu, en líkaminn var
ofan í vatninu. Draumurinn var
ekki lengri. Ég vona að þú birtir
þetta, því að mig langar mjög
mikið til þess aðfá svar við þessu.
Halla.
Framundan hjá þér eru efna-
hagslegir örðugleikar. Hins vegar
munu miklir atburðir gerast í lífi
þínu, sem þú getur glaðst yfir. Þú
munt sennilega eignast þann
eiginmann, sem þú helst óskar
þér, þ. e. draumaprinsinn þinn.
Einhver, sem þú elskar mun
fjarlægjast þig mjög í framtíðinni.
SYSTIRIN TÝNDIST
Kæri draumráðandi!
Mig langartil þess að biðja þig að
ráða fyrir mig draum, sem mig
dreymdi aðfaranótt 15. febrúar. (Ég
á heima niður við sjó.)
Égogtværsysturmínar(önnurer
13ára,enhin22áraogsjálferég 15
ára) vorum að leika okkur niðri í
fjöru,þegaralltíeinuskalláflóð. Ég
og yngri systir mín hlupum af stað
heim, en eldri systir mín varð eftir að
mérfannst. Við fórum inn og héld-
um huröinni lokaðri eins fast og við
gátum. Það var mikið frost úti og
sjórinn komst aldrei inn, heldur
fraus rétt við útidyrnar. Eftir
skamma stund fórum við að leita
Mig
dreymdl
að Árdísi (en það heitir hún) og
var þá orðið dimmt, svo að við
sáum ekkert til. Við vorum orðnar
vissar um að hún væri dáin. En allt
í einu sá ég kross í fjarska og þá
birti yfir öllu. Svo kom Árdís
labbandi. Hún var klædd í
örþunnan kjól, dragsíðan og
svolítið víðan. Kom hún með
Ijóðabók og bað mig að lesa eitt
Ijóð fyrir sig og sýndi mér hvaða
Ijóð ég ætti að lesa. Mér fannst
það svo frumlegt og skrítið, að ég
vildi ekki lesa það og þá hvarf hún
og allt varð dimmt á ný. Ég fór að
gráta. Fór svo niður í bæ til að
hitta fólk, sem ég þekki, en það
vildi enginn tala við mig af því að
ég grét svo mikið. Mér fannst ég
gráta alla nóttina.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðn-
inguna,
Ein, sem dreymir ótalmargt.
Þessi draumur boðar þér mót-
læti. Auðugur maður eða kona
mun reynast þér hættuleg. Farðu
ekki of mikið út að skemmta þér
og þá ættiþér aö takast að bægja
hættunni frá. Ef allt fer vel
verðurðu mjög hamingjusöm
eftirá.
UNDARLEG JÓL
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi draum, sem mig
langar til að vita hvort þú getur
ráðið eitthvað úr.
Mér fannst ég vera heima á
íslandi og það voru jól. Það var
jólaball í þorpinu, þar sem ég var
stödd, en ekki sá ég neitt jólatré.
Það var eins og ég sæi þetta allt
(fólkið) í sjónvarpi. Ég sá syni
mínum bregða fyrir og fleiri
krökkum, sem ég þekki,, aðallega
strákum. Stelpur voru víst engar,
en mér fannst þær horfa á
sjónvarpið. Einnig sá ég marga
karlmenn, sem ég þekki. Ýmist
var ég að horfa á sjónvarpið eða
viðstödd þarna, samt ekki á sjálfu
ballinu, heldur uppi á lofti. Þar var
gamall maður og var hann í
svörtum kjólfötum. Utan á fötun-
um var einhverskonar hvítt bréf og
líka í hári mannsins. Mér fannst
hann vera að vinna þarna. Allt í
einu var ég komin að hinu gamla
heimili mínu og þar fyrir utan var
stór, svartur hundur með grænt
trýni. Hann var feiminn við mig í
fyrstu, en kom svo og faðmaði ég
hann að mér. (Mér fannst ég
þekkja hann.) Hundurinntók með
framfótunum utan um mig og ég
hugsaði: „Þetta hlýtur að vera
maður, sem hefur klætt sig úr."
Svo var ég aftur komin inn ,í
húsið og horfði á sjónvarpið.
Ballið var ennþá, en nú tók ég
eftir manni, sem sat innanum börn
og fullorðna og las upp úr svartri
bók öðru hverju. Ekki tók ég eftir
því hvað hann las.
Allt í einu urðu slagsmál á
ballinu, síminn hringdi og beðið
var um konu uppi á lofti. Hún grét
og sagði: ,,Af hverju þurfa það
alltaf að vera hennar börn." Þetta
sagði hún um leið og hún klæddi
sig í kápuna. Skyndilega var ég
komin með bók í hendurnar og var
það Biblían. Ég fletti upp á grein
1304 (?) og las, en ég man ekki
hvað. Þegar ég lokaði bókinni
heyrði ég sagt: ,,Það er lesið upp
þegar þau gera eitthvað af sér."
,,Já," sagði ég ,,og númerið er
klukkan..." En þá fannst mér ekki
passa að þetta hefði verið 1304 og
ætlaði að finna það aftur. Vissi ég
ekki hvar ég átti að leita að því, en
mundi að það var aftarlega. Um
leið skildi ég, að maðurinn í
sjónvarpinu var með biblíu, sem
hann las upp úr og þá sagði maður
fyrir aftan mig: „Lúkas 12". Síðan
þrumaði ég hátt: „Hlustið á rödd
þegjandans." Síðasta orðið er mér
óljóst.
Draumurinn varð ekki lengri, en
ég vona að þú getir lesið eitthvað
úr honum.
Ein með von um gott svar.
Þessi draumur er þér fyrir gæfu
og gengi. Sennilega færðu fréttir
aö heiman, sem færa þér mikla
hamingju. Þú ert áhyggjuful/ út af
einhverju, sem engin ástæða er til
að hafa áhyggjur af. Líklegt er að
miklar breytingar verði á starfi
þínu, Hferni eða dvalarstað áður
en langt um Höur. Hjónaband þitt
verður farsælt.
FÆÐING
Kæri draumráðandi!
Mig, langar til að biðja þig að
ráða fyrir mig draum, sem mig
dreymdi fyrir nokkru. Mér fannst
draumurinn byrja á því að ég var
að eiga barn.
Ég lá á bekk í einhverju húsi og
stóð fullt af fólki í kringum mig og
var að horfa á fæðinguna (þar á
meðal var öll fjölskylda mín,
mágur minn og fjölskylda hans).
Svo kom strákur, sem ég þekki
mjög vel og átti hann að taka á
móti barninu. (Ég vil taka það
fram, að hann er ekki læknir, hann
er að læra allt annað og stelpan,
sem hann er trúlofaður var þarna
líka, en hún er ófrísk).
Svo kom önnur stelpa, sem ég
þekki mjög vel og vildi hún fá að
hjálpa eitthvað til. Þetta gekk allt
ferlega illa og ég spurði hvort þetta
yrði mjög vont. Hún sagði: Jú,
það verður ofsalega sárt." Þá
sagði ég: „Þá er ég hætt viö þetta
allt saman." „Það er of seint að
hætta við þetta núna," sagði hún.
Svo kom barnið. Ég fann ekkert
fyrir því og einhver fór með það
fram, en*fékk aldrei að vita hvort
þetta var stelpa eða strákur.
Ég vona að þú getir fundið
eitthvað út úr þessu, því mér
finnst draumurinn dálítiö furðu-
legur.
Með fyrirfram þökk,
Hanna.
Þessi draumur er fyrir erfiðleik-
um í ástamálum. Treystu betur á
sjálfa þig en aðra, þegar þú þarft
aö taka mikilvægar ákvarðanir í
þessum efnum. Þótt ráð annarra
geti oft á tíðum virst skynsamleg
eru þau ekki við þitt hæfi.
11. TBL. VIKAN45