Vikan - 17.03.1977, Blaðsíða 46
SMÁSAGA EFTIR
BARBRO JOHANSSON
í sömu mund og Sandra lauk upp
hurðinni heyrði hún, að Liv kallaði
glaðlega.
— Þetta er Jörgen Berg, sem ég
hefi talað svo mikið um.
— Mikið, hugsaði Sandra hálf
hissa. Liv hafði a.m.k. ekki nefnt
hann með nafni, rétt nefnt, að hún
hefði hitt dásamlegasta mann i
heimi og hefði boðið honum í mat.
Þegar Liv hóf máls á ný, hljómaði
rödd hennar eilitið stríðnislega, rétt
eins og hún vissi — en — það gat
ekki verið? Sakleysislegt upplit
hennar róaði Söndru.
— Þetta er besta vinkona mín,
hún Sandra, sem ég hef sagt þér svo
margt um.
Sandra og Jörgen tókust i hendur
fljótt og kurteislega. Augu þeirra
mættust og Sandra las í brúnum
augum hans greinilega aðvörun.
Maður gat alltaf lesið hugsanir
hans. Hún hafði snemma lært að
lesa tilfinningar hans út úr aug-
unum, i fyrstu sýndu þau vinsemd,
ást og bliðu - en að lokum var þar
ekkert að sjá nema kulda. Og nú
hittust þau héraftur í ibúðinni, sem
þær Liv höfðu saman.
Þegar IJv skrapp inn til sín til að
skipta um föt og snyrta sig, sagði
Sandra fljótmælt: - Ég verð að tala
við þig Jörgen, en ekki hér.
Hann brosti þessu töfrandi brosi,
sem hún þekkti svo vel og enginn
stóðst, og sagði: — Vilji þinn eru
min lög, Sandra. Hvernig stendur á
á morgun?
Hann nefndi veitingahús í mið-
bænum.
— Égkem, svaraði Sandra hratt.
Sandra var mannþekkjari og átti
auðvelt með að sjá, hvernig fólki
leið. Henni fannst, að síðustu þrjú
ár hefðu engin spor sett á Jörgen.
Hann virtist jafn öruggur með sig.
Andlit hans var grannt og við-
kvæmnislegt eins og fyrr og
svipbrigðarikt.
Maturinn var góður. Sandra
hafði matreitt og tekist vel, þó hún
væri ekki þjálfuð i matargerðar-
listinni. Ef hún hefði fyrirfram vitað
á hverjum var von, hefði sennilega
allt farið i handaskolum hiá henni.
Jörgen gerði kurteislegar athuga-
semdir um, hve maturinn væri
góður, og Sandra hugsaði bitur í
bragði: Það kemur þér auðvitað á
óvart, að ég geti matreitt ætan bita,
þar sem mér gafst ekki tækifæri til
að sjóða svo mikið sem eitt egg
handa þér þann tíma, sem við
vorum saman. Við snæddum alltaf
Seint fyrní
Hún var ákveðin í að hefna sín,
vegna þess sem hann hafði brotið
gegn henni fyrir þremur árum.
Hún lagði saman tvo og tvo — en
gleymdi að reikna með
afleiðingunum.
á litlum, notalegum veitingast-
öðum, þar sem lýsingin var deyfð.
Aftur á móti var síður en svo
notalegt andrúmsloft á stóra veit-
ingastaðnum, þar sem þau snæddu
saman næsta dag.
— Ég vil, að þú vitir það, að ég
hafði ekki hugmynd um, á hverjum
var von i gær, sagði Sandra. Liv
talaði bara um ungan kennara, sem
væri góður vinur sinn, en hún
nefndi þig aldrei með nafni.
— Já, ég vissi það um leið og ég
sá þig, Sandra — ég get lesið
andlit þitt eins og opna bók.
Hún kipptist til. Hún taldi sig
hafa yfirburði á því sviði að lesa hug
manna.
Já, það var satt, hún hafði sýnt
ást sína of augljóslega forðum, en
það var langt síðan. Timabil
sárinda og langana var Iiðin tíð.
Kannski átti hún erfitt með að dylja
tilfinningar sinar - en hún hafði að
minnsta kosti ekkert að fela fyrir
Jörgen. Hjarta hennar var tómt og
hreint eins og klausturskjallari. En
hugsunin um hið liðna þjakaði
hana, fortiðin og auðmýkingin.
Hún hafði einfaldlega verið yfir
sig ástfangin, hafði elskað ákaft og
hömlulaust. Hann hafði kurteislega
en ákveðið gefið í skyn, að hann
hefði ekki áhuga. Til að fela gamalt
sár sagði hún hæðnislega: — Þú
hafðir yfirhöndina i gærkvöldi, af
því að þú vissir, hvern þú myndir
hitta og hefur liklega verið skemmt
að geta komið mér svona á óvart.
Eða komstu af hreinni forvitni? Ég
get fullvissað þig um, að þau þrjú ár
sem liðið hafa síðan við hittumst,
hafa verið mér góður tími.
Hann hallaði undir flatt, meðan
hann hlustaði á hana. En hann
sagði ekkert, og hún hélt áfram í
reiðilegum tóni:
— Láttu Liv í friði, Jörgerí.
— Hvers vegna?
— Hvers vegna! Þú skilur það
sjálfur. Auðvitað af því að hún
þekkir ekki spilareglumar, eins og
þú hefur túlkað þær. Hún er sæt og
góð og óreynd stúlka, sem trúir
engu illu um fólk. Ef karlmaður
sýnir henni áhuga, telur hún, að
tilgangur hans sé heiðarlegur.
Hann hélt áfram að borða og lét
sem hann heyrði ekki, hvað hún
væri að segja, en hann hallaði ekki
lengur undir flatt.
— Láttu Liv i friði, endurtók
Sandra alvarleg. — í gær tók ég til
greina ósagða, en greinilega ósk
þina um, að hún fengi ekki að vita
um samband okkar, en þú þarft
ekki að reikna með, að ég þegi
framvegis.
Hún beit sig i varirnar, meðan
Ieiðar minningar sóttu að henni á
ný. Þau voru saman sex mánuði í
Stavanger fyrir þremur árum.
Jörgenhafði veitt hana i sitt net með
töfrum sínum. Hún hafði blómstrað
af ást og hamingju og í einfeldni
sinni trúað ástarjátningum hans.
En þann dag í dag gat hún bæði
fölnað og roðnað við tilhugsunina
um þá auðmýkingu, sem hún mátti
þola og hafði sett sín spor svo djúpt i
sálu hennar. Taugarnar höfðu verið
slæmar i það skipti, sem hún hafði
sagt honum, að hún elskaði hann,
þá var hún sannfærð um, að honum
væri eins innanbrjósts.
Þá fyrst hafði Jörgen spurt,
hvort hún vildi giftast sér, og á
sömu sekúndu var eins og hann
gæfi Henni utanundir. Hann hafði
sagt þetta kuldalega og ekki
áreynslulaust, og hún fann, að hann
hafði neytt sig til þess. Hún hafði
fundið, að hann taldi sig neyddan til
að koma heiðarlega fram, en að
hann fyrirleit tilhugsun um fjöl-
skyldulíf.
— Bónorð borið upp á þennan
hátt er hrein móðgun, hafði hún
hrópað ffávita af reiði. — Ég harma
að hafa alið von í brjósti. Þú leynir
því ekki, að hjónaband myndi
þreyta þig ólýsanlega og að þú hafir
aldrei hugsað þér að giftast mér,
eða hugsað nokkuð þannig til mín
yfirleitt. Farðu burtu. Ég vil aldrei
sjá þig aftur.
Hún hafði ekki séð hann síðan,
fyrr en í gærkvöldi, þegar hana sist
grunaði.
Þrjú ár síðan.
Hættulegir endurfundir.
Sandra hafði flutt frá Stavanger
til Oslo, þar höfðu þær Liv kynnst.
Þær voru mjög góðar vinkonur,
þrátt fyrir mikinn aldursmun, Liv
var nítján ára, en Sandra aftur á
móti tuttugu og sjö ára. Þær höfðu
báðar leigt i leiðinlegu og þröngu
húsnæði og dreymdi um að leigja
góða íbúð. Tækifærið barst þeim í
hendur, og saman gátu þær leyft
sér að leigja gott húsnæði. Þeim
hafði liðið vel saman. Þær höfðu
góða atvinnu, marga vini og fóru
oft út að skemmta sér. Hún óskaði
46 VIKAN 11. TBL.,