Vikan


Vikan - 17.03.1977, Page 47

Vikan - 17.03.1977, Page 47
ekki sama hlutskiptis og hún hafði orðið að þola fyrr. Jörgen pantaði kaffi og sagði: — Veistu það Sandra, aðfþú ert fallegri en nokkru sinni fyrr. — Er það satt? Ég er þó þremur árum eldri nú. — Aldur hefur ekkert að segja — ekki hvað þér viðvíkur að minnsta kosti, þú verður jafn falleg um sjötugt. Hann brosti ennþá, en hún var undrandi á, hve mikil alvara var í rödd hans, þegar hann hélt áfram: — Það er eitthvað við þig núna, sem ég sá ekki þá. Þroski eða reynsla, eða hvað maður á að kalla það. Sandra, af hverju getum við ekki verið vinir? Við erum þó orðin fullorðin bæði tvö. Hún leit upp og varð aftur undrandi á augljósri aðdáun hans. Og þá fékk hún hugmynd. Hún aetlaði að ná honum á sitt vald aftur og leiða hann þannig frá Liv. Liv yrði sár og leið út í hana, en það var betra heldur en að hún þyrfti að ganga í gegnum það sama og hún hafði gert. Þess vegna sagði hún: — Við getum svo sem hist af og til. Liv varð fyrst undrandi og sár, þegar hún komst að hinu sanna. Hún bryddaði sjálf upp á umræðum um málið: — Hittir þú ekki Jörgen stundum? — Jú, svaraði Sandra stillilega, það kemur fyrir. Hvorugri leið vel. Liv var miður sin, og Sandra var eyðilögð yfir að þurfa að gera henni þetta. Söndru leið illa að sjá þjáningar hennar. Auðvitað hélt Liv, að Sandra hefði tekið Jörgen frá henni, og það var of seint núna að segja henni, að kynni þeirra hefðu hafist fyrir þremur árum. En Sandra hugsaði sem svo, að vonbrigðin nú væru léttbærari en ástarsorg síðar. Eftir að þetta gerðist varð samband þeirra kulda- legra. Nokkrum mánuðum siðar sagði Liv henni frá þvi, að hún hefði nú kynnst ungum manni í kvöldskól- anum. Sandra hafði þegar hitt hann nokkrum sinnum og fannst að þau ættu vel saman. — Systir hans og mágur hafa keypt stórt, gamaldags hús. Þau hafa boðið okkur litla íbúð þar, við Anders höfum hugsað okkur að giftast. — 0 Liv, mikið gleður þetta mig þin vegna, svaraði Sandra hlýlega. Liv svaraði engu, en brosti aðeins hæðnislega, eins og hún vildi segja, að Sandra væri líklega fegin að sitja ein að Jörgen. Söndru fannst að hlutverkinu væri lokið. Hún hafði bjargað Liv frá Jörgen, og nú var engin ástæða til að hitta hann áfram. En svo fékk hún nýja hugmynd. Því ekki að gefa Jörgen svolítið inn af eigin meðali? Því ekki að borga í sömu mynt? Hann hafði sagt, að hún væri fallegri en nokkru sinni áður, og hún hafði það á til- finningunni, að hún hefði yfir- höndina. Kannski gæti hún gert hann ástfanginn af sér og síðan ýtt honum til hliðar, auðmýkt hann, eins og hann hafði auðmýkt hana, þegar hún játaði honum ást sína. Hún skipulagði áætlun sína í smáatriðum með miklum ákafa. Hún ætlaði að lokka hann með sér út eitt fagurt sumarkvöld, og nú var það hann, sem átti að játa ást sína — og hún, sem átti að hlæja að honum, eða hlusta á hann frá- hrindandi og kuldaleg. Til þess að allt yrði sem áhrifarikast, ætlaði hún að koma því svo fyrir, að það yrði sama kvöld og fyrir þremur árum fyrr eða á Jónsmessukvöld. Hún var byrjuð að telja dagana, en sautjánda júní gerðist nokkuð, sem setti strik í reikninginn. Systir hennar varð að fara á sjúkrahús og bað hana að gæta bús og barna. Maður hennar gat ekki tekið frí, hann vann á olíuborpalli, og Sandra lofaði að taka heimilið að sér. Hún fékk strax frí. — Ég get ekið þér, sagði Jörgen strax. — 0, nei það er alltof langt, ég flýg bara. En Jörgen vildi aka henni til Stavanger. Hann var svo ákveðinn i þessu, að Sandra lét undan. Henni fannst þetta fráleitt, hann hafði ekkert til Stavanger að gera. Myndi gista á hóteli eina nótt og aka sömu leið til baka næsta dag. Þegar þau komu á leiðarenda, sagði Jörgen: Ég ætla að fá gistingu á hóteli og vera hér þessa viku, mér fellur vel að vera hér í Stavanger. Þú þarft líka ef til vill á hjálp að halda við krakkana. Ég er til þjónustu reiðubúinn. Sandra beit sig í vörina og andvarpaði. Hún sá sína sætu hefnd hverfa út i loftið. Það síðasta sem hún óskaði sér, var að hann sæi hana í hlutverki húsmóður, hvernig gæti hún táldregið hann með börn, hund, matargerð og hreingerningar á dagskránni? Hún var nærri búin að skella upp úr, þegar henni varð hugsað til barnalegrar áætlunar um rómantískt Jónsmessukvöld. Næstu daga umgengust þau mikið. Jörgen borðaði hjá henni samkvæmt tilskipan systur hennar. Jörgen hrósaði hverjum munnbita, og eftir matinn tók hann uppþvott- inn að sér. Systurbörn Söndru voru þrjú á aldrinum 3, 6 og 8 ára og það var ótrúlega mikið að gera, miklu meira en Söndru hafði órað fyrir. Hún var sannarlega fegin hjálp Jörgens, hún hefði ekki komist yfir þetta án hans. Snemma á Jónsmessudags - morgun setti Sandra fulla vél af þvotti í gang. Sem betur fer var góður þurrkur, enda áttu börnin varla hreina flík til að fara í. En svo gafst þvottavélin upp á sömu mínútu og grauturinn sauð út úr og Lars og Metta fóru að slást. Þá hneig Sandra niður á næsta stól og fór að hágráta. Sirri reyndi að hugga hana, hundurinn urraði, brunaþefur barst frá eldavélinni, og þvottavélin suðaði, án þess þó að ganga. Og þá kom Jörgen. — Sandra, Spndra, hvað í ósköpunum gengur á?' — Þvottavélin og grauturinn og Jónsmessan, þú og allt, allt, sagði Sandra. Jörgen fór fram í baðher - bergið, hann var þar bara í fimm mínútur, og svo heyrðist velkomið suð, þvotéavélin starfaði á nýjan leik. — Sigtið var stíflað, sagði Jörgen til skýringar. Svo henti hann viðbrunnum grautnum í ruslið, þvoði eldavélina, tók fram kornflögur og mjólk handa krökkunum, setti upp kqffikönnuna og smurði brauð handa sér og Söndru. — Svona nú, sagði hann — nú skaltu fá þér morgunmat. Ég skil það vel, að þú sért uppgefin — flestir byrja nú heimilisstörfin við léttari aðstæður. En þetta eru dæmalaust indælir krakkar, bætti hann við. Börnin voru nú farin út í garð og sigldu bátum á garðtjörninni. Övænt stóð Jörgen á fætur og gekk til Söndru. Hann lagði hendur sínar á axlirnar á henni og sagði fljótmæltur: — Sandra — getum við ekki alveg eins gift okkur? •Hún hefði átt að vera hreykin og sigri hrósandi. Jörgen hafði gengið í gildruna, án þess að til þyrfti rómantískar aðstæður. Hún hafði fengið hann til að bera upp bónorðið. Nú gat hún hefnt sín. Hún opnaði munninn til að segja hin særandi orð, sem hún svo lengi ist fomar ástir 11. TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.