Vikan


Vikan - 17.03.1977, Page 52

Vikan - 17.03.1977, Page 52
V erðlaunaðir eggjaréttir Eldhús Vikunnar UMSJÖN: DRÖFN FARESTVEIT Nú borða allir egg, hver sem betur getur, meðan verðið helst lágt. Á síðastliðnu ári efndi norskt vikublað til samkeppni um bestu eggjaréttina. Hér eru nokkrir þeirra, sem náðu efstu sætunum. Þeir ættu ekki að bragðast verr hér. 200 gr skinka 200 gr ostur 4 egg salatblöð. Saxið skinkuna, rífið ostinn gróft og blandið saman. Skiptið rúmlega helmingnum af blöndunni í 4 bolla og þrýstið fast í botninn og hliðarnar. (Smyrjið bollana fyrst). Brjótið eggin gætilega niður í hvern bolla. Rauðan verður að vera heil, því hún að að koma á óvart, þegar rétturinn er borðaður. Setjið síðan það sem eftir er af blöndunni ofan á og látið bollana standa í vatnsbaði í potti með loki á í um þ. bil 15 mínútur. Eggjarauðurnar eiga að vera „brosandi". Takið bollana upp úr og lárið þá standa um stund og kólna aðeins. Farið gætilega með beittum hníf meðfram köntunum þegar þið losið úr bollunum. Hvolfið á salatblað. Berið fram með brauði, tómatbátum eða tómat- salati. 8-10 brauðsneiðar smjör eða smjörlíki ca. 200 gr skinka eða saltkjöt 4 egg 5 dl mjólk. 1 /2 kg púrrulaukur 4 tómatar 4-5 sneiðar brauð smjör eða smjörlíki 100-150 gr spægipylsa 4 egg 6 msk rjómi 1 /4 tsk salt rifinn ostur. Hreinsið og skolið púrruna. Skerið hana síðan í 2 sm bita, og sjóðið í um það bil 3 mín. Látið renna vel af púrrunni. Skerið tómatana í sneiðar. Smyrjið brauðið og setjið í lögum í smurt eldfast form: Brauð- sneiðar með smjöri, smjörhliðin snúi upp, pylsa, púrra, pylsa, tómatur. Þeytið saman egg, rjóma og salt. Síéið ríkulega yfir af rifnum osti. Bakið í ofni við 180° í 3/4 klst. Smyrjið brauðsneiðarnar, saxið kjötið gróft og setjið í lögum í smurt eldfast torm. Þeytið egg, mjólk og salt og haldið brauðinu niðri, meðan eggjablöndunni er hellt yfir. Látið brauðsneiðar vera bæði efst og neðst, og látið allt blotna vel í gegn. Að sjálfsögðu má breyta til og nota mismun- andi kjötafganga (jafnvel ostafganga) í staðinn fyrir skinkuna. Bakið við 200-250° í um það bil 1 klst. 52 VIKAN 11. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.