Vikan - 17.03.1977, Page 54
Stærð: 6 - 8 - 40/42 - 50.
Efni: Hespulopi, 4 (4) 6 (8) hespur.
Prjónar nr. 7 1 /2.
Mál: Brjóstvídd: 74 (80 ) 96 (104)
sm. Sídd í bakið: 40 (43) 56 (66)
sm. Ermalengd frá hálsmáli: 42
(46) 54 (70) sm.
Prjónfesta: Tuttugu prjónar af 10
lykkjum á prjóni gera 10X10 sm.
Hægri ermahelmingur og hægra
framstykki eru prjónuð saman á
eftirfarandi veg: Fitjið upp 12 (12)
15(15) lykkjur og prjónið snúning,
3 réttar og 3 rangar 8 (10) 12 (14)
umferðir. Prjónið nú rétt og aukið
1 lykkju milli fyrstu og annarrar
lykkju í hægri hlið erminnar. Aukið
þannig í áttundu (áttundu) tíundu
(tólftu) hverri umferð, alltaf í
sömu hlið, þangað til þið hafið 18
(18) 20 (22) lykkjur á prjóninum.
Þegar ermin mælist 32 (35) 40 (47)
sm á að auka út í annarri hverri
umf 2 (2) 3 (3) sinnum í sömu hlið
og fyrr. Fitjið nú upp 16 (18) 26
(30) nýjar lykkjur og bætið þeim
við hægri hlið ermastykkisins.
Prjónið nú 18 (19) 23 (25) sm yfir
allar lykkjurnar, sem nú eru 36 (38)
49 (55) (þetta er hægra fram-
stykki). Fitjið upp 7 (7) 8 (9) nýjar
lykkjur í hægri hlið og prjónið 6 (6)
8 (8) umf. snúning, 3 réttar, 3
rangar. Fellið af (þetta er boö-
ungurinn). Á kvenjakkana prjóniö
þið hnappagöt. í þriðju umf eru
götin prjónuð þannig, að þið
prjónið 2 lykkjur, fellið af tvær,
prjónið 3 lykkjur (stærð 40/42, 4
lykkjur), fellið af 2 og prjónið 6 (8),
fellið af 2. Haldið svona áfram út