Vikan - 21.07.1977, Qupperneq 32
Inni í Landrovernum situr
Christopher Steewen, þýski lækn-
irinn, stífur og þögull. Hann hefur
fengiðtaugaáfall. Ágólfinuísjúkra-
húsinu liggur alblóðugur líkami
konu hans. Hún hefur orðið fyrir
byssukúlum árásarmannanna þeg-
ar þeir réðust inn I sjúkrahúsið.
Á fleygiferð ekur Landroverinn
út í eyðimörkina. Sporin eftir þau
hverfa eftir nokkra kílómetra,
líkami frú Steewens eru einu spor
mannræningjanna.
Stórmálið Claustre hefur hafist.
Nokkrum tímum síðar koma
Tyrstu fréttir til Vestur-Þýskalands
og Frakklands. Þrír menn eru
gíslar hjá Frolinat-skæruliðunum.
Á bak við aðgerðirnar stendur
35 ára gamall maður, sem heitir
Hissene Habré, nú foringi 700-800
skæruliða í Tchad.
Ríku iðnaðarlöndin eiga að gefa
peninga í kassa hreyfingarinnar,
og þessir þrír evrópubúar eru
fórnardýr. Fyrir þá er krafist
lausnargjalds: Fimmtán milljóna
fyrir Steewen lækni og tuttugu
milljóna fyrir þau Francoise og
Marc. Auk þess krefjast skærulið-
arnir þess, að kjörorð þeirra, ,,Að
sigra eða deyja," verði þirt í öllum
helstu blöðum landsins og að 39
pólitískir fangar, sem sitja í
fangelsum víðsvegar í Tchad,
verði látnir lausir.
Þjóðverjar greiða samstundis
lausnargjaldið, og þremur dögum
eftir mannránið er Steewen frjáls.
En frá Frakklandi heyrist ekkert.
Francoise og Marc eru flutt á
milli staða í eyðimörkinni —
aðskilin til að hugsanlegir leitar-
menn finni þau síður.
Frá einum búðum til annarra eru
þau hrakin áfram. Ýmist í nístandi
kulda næturinnar eða steikjandi
sólarhitanum á daginn. Eina
næringin, sem þau fá, er lítið eitt
af þurrkuðu kjöti og vatnssopi.
Nótteina hverfur Marc. Honum
heppnast að stela jeppa og flýja.
Nú ar Francoise alein með
uppreisnarmönnunum.
Heima í Frakklandi situr eigin-
maður hennar, Pierre Claustre,
áhyggjufullur út af konu sinni og
skelfilegum örlögum hennar.
Þau hafa ekki getað verið mikið
saman, síðan þau hittust I Tchad
1972. Francoise vildi Ijúka rann-
sóknum sínum í Afríku.
Habré veit, hvernig hann á að
notfæra sér erfiða aðstöðu frakka.
Hann gerir auknar kröfur, nú vill
hann einnig fá vopn.
Nú blandar stjórnin í Tchad sér í
stríðið um frönsku konuna. Ef
frakkar afhentu skæruliðunum
vopn, yrði stoppaður útflutningur
á úraníum til Frakklands. Staðan
virtist vonlaus fyrir Francoise.
Ensvo — næstumári eftirmann-
ránið, skeður nokkuð. Nokkrir
hugrakkir sjónvarpsfréttamenn frá
franska sjónvarpinu finna Franco-
ise.
Þeim tekst ekki að hafa hana burt
með sér heim til Frakklands, en í
fatangrinumer viðtal — viðtal, sem
veldur mikilli ólgu í Frakklandi.
Viðtal við Francoise Claustre
hágrátandi.
— Ég ætlaði ekki að gráta, en ég
lofaði mér of miklu, segir hún
grátandi. Svo bætir hún hógvær-
lega við:
— Ég er víst einskis virði. Hefði
ég verið háttsett í utanríkisþjón-
ustunni, væri ég orðin frjáls fyrir
löngu.
Eftir viðtalið rís franska þjóðin
upp. Þrjár konur í frönsku
stjórninni hóta að segja af sér, ef
ekkert verði gert til að frelsa
Francoise.
Mörg þúsund frakkar bjóðast til
að taka sæti Francoise sem gíslar.
Pierre berst örvæntingarfullri bar-
áttu fyrir frelsi konu sinnar. Hann
ákveðurað gera það, sem stjórnin
hikar við — Pierre ætlar sjálfur að
útvega skæruliðunum vopn.
Hann reynir að koma vopna-
sendingu til þeirra, en það tekst
ekki. Hann fer til Tchad til að
athuga sendinguna, en það er þá
bara smávegis af ónothæfum
vopnum, sem hafa komist á
leiðarenda.
Örvæntingarfullur flýgur hann
suðureftir. Hann heldur beina leið
til Tibesti-eyðimerkurinnar og til
höfðustöðva skæruliðanna. Hann
vill fá að hitta Habré.
Samtímis rekur stjórnin í Tchad
franska „ráðgjafa" sína úr landi.
Habré verður hræddur um, að allt
ætli að mistakast og tekur Pierre
einnig til fanga.
Þegar þessi frétt berst til
Frakklands, eru fyrstu viðbrögðin
léttir, yfir því, að nú hafi þó hjónin
hvort annað.
JOH. 0LAFSS0N & C0
43 SUNDABORG — SÍMI 82640.
Heimsþekkt hótelpostulín með
yfir 30 ára reynslu hér á landi.
• MATSÖLUSTAÐIR
• HÖTEL
• VEITINGAHOS
• FÉLAGSHEIMILI
• SJÚKRAHÚS
• SKIPAFÉLÖG
um allt land staðfesta langa og
góða endingu.
Leitið upplýsinga hjá umboðs-
mönnum:
vittu selja biBnn ?
Þá auglýstu hann hér í smáauglýsingum Dag-
blaðsins og fáðu öll nauðsynieg eyðublöð
(þ.á.m. afsalseyðublað) ókeypis i afgreiðslu Dag-
biaðsins að Þverholti 2.
Þar færð þú eínnig skriflegar leiöbeiningar
um hvers gæta þarf við frágang söiugagná.
Þverholti 2 sími 27022 (j
Smáauglýsingar |
WMiBIAÐSlNS
Bílaviðskipti
i)
32 VIKAN 29. TBL.