Vikan - 27.04.1978, Qupperneq 11
JOHN
TRAVOLTÁ
John Travolta í hlutverki sínu í myndinni
„Saturday Night Fever."
dómur Díönu alltaf að aukast, en hann
bar svo ótakmarkaða umhyggju fyrir
henni, að hann hringdi mörgum sinnum á
dag, og þegar hann gat fengið frí, þá var
hann kominn um leið. Hann var besta
lyf, sem hún hefði nokkurn tíma getað
fengið. Því miður dugði það ekki, en ég
þakka guði fyrir, að við skyldum geta
kallað nógu fljótt í hann, svo hann gat
verið hjá henni síðustu dagana, sem hún
lifði. Hann studdi hana í garðinum, og
síðustu klukkutimana vék hann ekki frá
sjúkrabeði hennar. Hann hefur hjálpað
okkur svo mikið í sorg okkar, og við
höfum reynt að létta undir með honum.
Hann sagði við mig eftir dauða hennar:
„Eg mun aldrei elska nokkra aðra konu,
eins og ég elskaði Díönu,” en ég sagði
honum, að hann myndi og yrði að gera
það. Einn góðan veðurdag finnur þú
réttu stúlkuna, giftist henni og eignast
þína eigin fjölskyldu. Því lifið verður að
halda áfram, þó einhverjir hellist úr
lestinni.”
Og eftir að hann hafði gert sér grein
fyrir þessu, hefur hann hellt sér út í vinn-
una og frábeðið sér alla vorkunnsemi. Og
eitt er víst, að í náinni framtíð, þá mun
hann ekki skorta verkefnin.
Eftir að upptökum á „Moment to
Moment” lýkur, þar sem mótleikari hans
er Lily Tomlin, er talað um, að jafnvel
verði gerð önnur mynd með þeim
tveimur. Það mun allt koma í ljós með
tíð og tíma.
En þrátt fyrir það, að hann neiti öllum
slúðursögum í sambandi við mótleikara
sina, t.d. Oliviu Newton-John, Karen
Gorney og Lily Tomlin, er það auðséð,
að hann metur fjölskyldulífið ofar öllu.
Hann viðurkennir, að efst á óskalistanum
hjá sér sé að giftast og eignast börn. „Því
að þann dag, sem ég eignast mitt fyrsta
barn, mun ég verða hamingjusamasti
maður á jarðríki!”
HS þýddi og endursagði.
17. TBL. VIKAN 11