Vikan - 21.09.1978, Blaðsíða 24
gagnahönnuði, Rud Thygesen
og Johnny Sörensen.
Arlega veita danskir hús-
gagnaframleiðendur þeim hönn-
uðum, sem þeir telja að skari
fram úr, verðlaun. Þessir ungu
menn hafa tvívegis fengið þessi
verðlaun, fyrst árið 1971 og
síðan aftur nú í ár.
Húsgögn fyrir aldraða, sem
sagt var frá í 34. tbl. Vikunnar
hafa verið í notkun á elliheimil-
inu á Akranesi. Sagði Eyjólfur
að nú hefði stofnunin pantað
slík húsgögn í síðari áfanga elli-
heimilisbyggingarinnar.
Einnig sagði hann að nokkuð
væri orðið um að öldruðu og
fötluðu fólki væru gefnir slikir
stólar í afmælis- og tækifæris-
gjafir. Stillir Eyjólfur stólana ná-
kvæmlega fyrir þarfir hvers og
koma í mismunandi mynstrum
en í ákveðnum og samræmdum
litasamsetningum. í versluninni,
sem er opin daglega frá kl. 2—6,
eru á boðstólum metralöng
sýnishorn, sem viðskiptavinur-
inn fær í heimlán. Þannig er
hægt að grandskoða hvernig lit-
urinn fer við annan húsbúnað
og veggi. Þegar viðskiptavinur-
inn hefur ákveðið sig tekur það
um það bil viku eða tíu daga að
afgreiða pöntunina, sem hingað
kemur í flugi. Sagði Eyjólfur að
þótt dýrt væri að fá vörurnar
Það er alls ekki nauðsynlegt að
nota sama lit á öllum fögunum fyrir
sama gluggann. Það getur verið
skemmtilegt að vixia litunum, en
sama mynstur er til I samstœðum
litum. Margir nota bómuHarefnin i
borðdúka. tB ,, >
Eyjólfur Pólsson er dansk-
menntaður innanhússarkitekt og
rœður viðskiptamönnum sinum
heilt við gluggatjaldaval.
eins. Verð þessara stóla er frá 70
uppí 100 þúsund kr.
Enginn lager
Epal er dálitið sérstæð verslun
að því leyti að þar er enginn
lager. Viðskiptavinirnir fá góð
og holl ráð hjá Eyjólfi, sem er
innanhússarkitekt, eins og áður
sagði, við val á gluggatjöldum
og húsbúnaði. Sagðist Eyjólfur
gjarnan benda fólki á að ekki
væri endilega nauðsynlegt að
hafa öll gardínufögin, sem
hanga fyrir einum og sama
glugganum með sama lit. Efnin
sem hann hefur á boðstólum
í Epal eru á boðstólum yfir fjögur
hundmð og fimmtiu mismunandi
gluggatjaldaefni og húsgagna-
áklœði. Enginn lager er I verslun-
inni, en vömrnar koma hingað til
lands I flugi. — Aftast, hœgra
megin á myndinni má sjá sýnishom
af kókosteppunum, sem getið er
um I greininni.
hingað í flugi væri einnig dýrt að
liggja með stóran lager, þannig
að kostnaðurinn jafnar sig að
nokkru leyti upp.
Náttúruefni eingöngu
Öll efnin, sem eru á
boðstólum í Epal, eru unnin úr
náttúruhráefnum, ull, bómull og
sisalhampi. Hann hefur á boð-
stólum handofin gólfteppi úr
hampi, svokölluð kókosteppi.
„Fólk rekur í rogastans þegar
það heyrir hvað fermetrinn af
kókosteppunum okkar kostar.
Hann kostar um 10 þúsund kr.
En þetta eru allt öðru vísi kókos-
teppi en notuð voru voru í
gamla daga. Okkar teppi eru
handofin og mjög þétt. Um 6 kg
af hampi eru í sama magni af
þessum teppum og var 1 kg i
gömlu teppunum og dreglunum.
Um 25 mismunandi möguleikar
eru í sambandi við teppin, sem
eru svissnesk að gerð.
Ullarefnin eru unnin sérstak-
lega þannig að ullin breiðir ekki
út eld, — eru eldvarin. Einnig
þannig að þau upplitist sem
allra minnst. Algengt verð á
metra af ullarefnunum er um
fjögur þúsund kr.
Bómullarefnin eru einnig eld-
varin, — sum að minnsta kosti
— og hönnuð þannig að þau
þarf ekki að strauja. Verðið á
þeim er frá um 1300 kr. metr-
inn.
Bómullarefnin er hægt að
nota í fleira en gluggatjöld.
Eyjólfur hefur látið hanna bæði
kjóla, sólhatta og ýmsar aðrar
24 VIKAN 38. TBL.