Vikan - 24.07.1980, Blaðsíða 6
Ferðalög
skoðarar og ferðafólk á bílum. sem vill
feröast sem víðast á ódýran hátt. eru
gestir hans í Fljótsdal á sumrum og
hann fer með ferðahópa um landið allt
sumarið. Þetta eru hópar fólks sem not-
ar sér áætlunarferðif vítt um land og
ferðast síðan fótgangandi þar sem ekki
ecu vegir. Flqyir þessara ferðalanga eru
í leit áð ehlllvérju óvenjulegu. sérkenni-
legu, og ekki er ólíklegt að hér sé eitt
hvað það að finna sem varla finnst ann
ars staðar. Á veturna skipuleggur Dick
síðan sumarstarfið og þótt af og til kvis-
ist að hann ætli ekki að koma aftur
næsta sumar er reyrtdin sú að hann er
ætið mættur að vori. Sjaldan her við að
tslendinear komi i Fljótsdal á sumrum
Bækur, einföld húsgögn, viðsýni.
Þetta er ein af vistarverunum i
Fljótsdal.
en á veturna hafa félagar i Iflenska alpa
klúbbnum. Isalp, getað notfært sér þessi
húsakynni.
I þessum þröngu en þó á einhvern
hátt heillandi húsakynnum er rúm fyrir
15 gesti og allt upp i 20 manns hafa
verið þar á stundum. Stundum koma
hópar á vegum Dicks. og fylla húsa-
kynnin. en þess á milli er slangur ferða
manna. misstórir hópar. og áhugamál og
ferðamáti er jafnfjölbreyttur og ferða
langarnir eru margir. Eldhúsið geta allir
notað i sameiningu og verða að ganga
frá eftir sig. Judy ráðskona lét vel af þvi
að þessum reglum væri fylgt þótt ein--
staka slóðar gætu vissulega gert þeim
gramt í geði. Yfirleitt gilda sömu reglur
þarna og á öðrum farfuglaheimilum og
verð er þarna hliðstætt, reyndar nokkuð
lægra en á öðrum farfuglaheimilum
vegna þess að húsakynnin eru gömul.
Matvöru fá þau með bíl frá kaupfélag-
inu á hverjum miðvikudegi. þurfa bara
að hringja pöntunina timanlega inn. Og
skammt er til ýmissa fallegra staöa. Ef
fyrirhyggju er gætt og spurt ráða hjá
vönu fólki geta áhugasamir ferðamenn.
sem kjósa að notfæra sér þjónustu far-
fuglaheimilanna. átt góða daga í Fljóts-
dal.
Skrifstofa Dick Philipps. Hér var bakdyramegin og þetta aukarými
anddyrið áður en nú ganga allir um var kærkomið.
b Vikan 30. tbl