Vikan - 24.07.1980, Blaðsíða 34
Fimm mínútur með Wiily Breinholst
Rosemarie
er komin
í bæinn!
Það var langt liðið á sunnudag-
inn. Ég óð fram og til baka í
íbúðinni minni og vissi hreint
ekki hvað ég átti af mér að gera.
Enda var þetta fyrsti dagurinn
minn sem grasekkjumaður.
E.t.v. gæti maður farið í bíó og
hlegið dálitið fram eftir kvöldi,
en það var ekki nógu spennandi
þvi slíka hluti var vel hægt að
gera þótt Maríanna væri heima
— og svo var ekkert vist að bíó-
myndin væri einu sinni fyndin.
Hin sigilda leið var náttúrlega sú
aó hringja í nokkra gamla kunn-
ingja og bjóða þeim í póker og
drykk, það gerðu vist flestir gras-
ekkjumenn fyrsta kvöldið. Ég
varð að gefa þá ágætu hugmynd
upp á bátinn þar sem ég hef
aldrei lært póker og get ómögu-
lega spilað á spil yfir glasi.
Þrátt fyrir allt settist ég við
símann og vonaði innst inni að
Brigitta Bardot., Gina Lollobrig-
ida eða Sófía Loren slægju á
þráðinn svona fyrir tilviljun.
Ég var búinn að bíða í heila
klukkustund þegar kraftaverkið
gerðist. Áður en ég vissi af var
ég á kafi i ævintýri sem alla gras-
ekkjumenn dreymir um — von
um stúlku þó ekki væri nema
stutta stund.
Síminn hringdi og ég greip
tólið.
— Sæll, gamli, glumdi lífleg
rödd úr hinum enda þráðarins.
— Þetta er Tómas, ég frétti að
þú værir grasekkjumaður núna,
passar það?
— Já, einmitt, svaraði ég titr-
andi röddu og beið spenntur
eftir hvað kæmi næst.
— Fínt er! Ég er nefnilega
líka grasekkjumaður en gallinn
er bara sá að ég á stefnumót við
... við gamlan skólafélaga sem
ég hef ekki séð lengi. Ég get
ómögulega svikið það. Vand-
ræðin eru bara þau að fyrir
fimm mínútum hringdi dyra-
bjallan hjá mér og fyrir utan
stendur Rosemarie, sem var
ágætt í sjálfu sér, en ég átti bara
ekki von á henni...
— Rosemarie?
— Já, þú þekkir hana ekkert
en gríptu ekki fram í fyrir mér,
ég er að flýta mér á jretta
stefnumót við ... við gamla
skólafélagann og datt í hug
hvort þú gætir ekki tekið að þér
að sýna Rosemarie lífið á
meðan. Hún er ágæt, því máttu
trúa, bæði falleg og frísk!
— Ég? Jú, jú ... alveg sjálf-
sagt, en ...
Mér var svo mikið niðri fyrir
að ég átti bágt með að segja það
sem ég vildi sagt hafa — einfalt
já.
— Þú hefur allt húsið út af
fyrir þig þar sem Maríanna fór
út á land. Ég er ekki frá því að
þú gætir haft gott af eilitlum fé-
lagsskap í einverunni, gamall
kvennabósi eins og þú ert! Ha!
Ha! Ha! Rosemarie fer ekki
heim fyrr en á morgun svo það
fyrsta sem mér datt í hug þegar
ég sá hana standa á tröppunum
Stjörnuspá
llrúlurinn 2l.mar> 20.afiril Viulið 2l.upril 2l.mai Ttihurarnir 22.mai 2l.júni
Kr.-'hhinn 22.júni 2.4. júli
l.jóni^ 24.júli 24. áiíú*l
Það er í þér einhver
kvíði fyrir vetrinum. Er
það nú ekki full
ysnemmt? Þú ætlar þér
heilmikið í vetur, og
veftu viss, krafturinn
bregst þér ekki.
Gleymdu ekki loforði.
Veikindi þín eða ann-
arra hafa angrað þig
eitthvað. Þú mátt búast
við góðum fréttum. Eitt-
hvað frumlegt sem
vinur þinn gerir angrar
þig, en vertu viss, þú
hefur gaman af því
Ferðalög eru heppileg
um þetta leyti. Verst að
timinn er ekki jafn
mikill og allt það sem
þig langar að gera. En
mundu að það kemur
sumar eftir þetta sumar.
Gættu þín á of miklum
Starfsþrek þitt er i há-
marki núna, en margt
virðist tefja þig. Reyndu
að nota tímann meira
fyrir sjálfan þig og bestu
vini. Aðrir geta alveg
annast það sem þú
heldur að þú ráðir einn
Eyddu meiri tíma með
fjölskyldunni. Sameigin-
legir kunningjar geta
gert helgina skemmti-
lega, en látið ekki hafa
ykkur út i einhver ævin
týri. Þau verða að biða
betri tíma.
Þunglyndi er ástæöu-
laust og hefur ekkert
upp á sig nema leiðindi.
Ef þú gleður aðra,
gleðstu sjálfur. Þú mátt
búast við skemmtilegri
helgi ef þú ferð eitt-
hvað.
seinna.
vökum.
við.
Vitíin 24.\c|}i. 2.Vi*kl.
Þetta verður ein róleg-
asta vikan í langan
tíma, enda kannski
kominn tími til að slaka
á. Nýjar hugmyndir
skjóta upp kollinum, en
I bili borgar sig ekki að
segja neinum af þeim.
Spnródrckinn 24.nkl. 2.4.nn\.
Þú mátt búast við því
að fá óvænt frí, eða ein-
hvern tíma til ráðstöf-
unar, sem þú áttir ekki
von á. Notaðu hann til
að gera gagn, þá nýt-
urðu skemmtunarinnar
á eftir með betri sam-
visku.
HngniuAurinn 24.nn\. 2l.dcs
Þið er farið að þyrsta í
rómantík. Bíddu við,
hún er ekki langt und-
an, en þaðgæti þurft
nokkra hugkvæmni til
að koma réttum aðila af
stað. Umferðin gæti
verið varasöm á lengri
leiðum.
Mcingcilin 22.dcs. 20. jan.
Frá því í vor hefur þig
langað til að gera eitt-
hvað merkilegt. Þú veist
að það getur sært ef
fatið er óvarlega, svo ef
þd ætlar að gera þetta
núna, gefðu þér tíma til
að útskýra málin.
Xalnshcrinn 2l.jan. IQ.fchr.
Þú hefur verið hikandi í
einhverju máli, en það
■i er ekki hægt að draga
ákvarðanir endalaust.
Ættingjar sýna þér nýja
og skemmtilega hlið á
sér. Liklegt er að leysist
óvænt úr minniháttar
vanda.
l iskarnir 20.fcbr. 20.mars
Þú ert óánægður með
frammistöðu einhvers,
sem varðar þig miklu.
En getur ekki verið að
þér sé um að kenna
líka? Tillitssemi skaðar
engan. Ný flík eöa ann-
að slíkt gæti glatt geðið,
en eyddu ekki um efni
fram.-----------------;----
B4 Vikan 30. tbl.