Vikan - 24.07.1980, Page 63
Skop
Moon World Hobby Club, P.O. Box
389, Faisalbad, Pakistan. Þetta heimilis-
fang fengum við sent frá ungum manni
sem vildi koma þvi á framfæri að i
þessum klúbbi eru fjölmargir Pakistanar
sem hafa mikinn áhuga á að eignast is-
lenska pennavini. Ef þið hafið áhuga
skulið þið senda nafnið ykkar. heimilis-
fang og aldur og þá fáið þið pennavin frá
Pakistan.
I'dgaro Mariano Lagraba, Azara 261,
(1832), Lomas dc Zamora, Pcia. dc
Bucnos Aircs, R. ARGENTINA, er
ungur Argentínumaður sem óskar eftir
islenskum pennavinum. helst ein
hverjum sem tengjast leiklist og dansi.
Hann hefur haft áhuga á Íslandi lengi en
litlar upplýsingar getað fengið um landið
og vill endilega fræðast sem mest um
land og þjóð.
Douglas La/cll, 18107 Bambridgcddr.,
Houston Tcxas, 77090 USA, óskar eftir
íslenskum pennavini. Áhugamál: tónlist.
listirog Ijósmyndun.
Linda Sigurgcirsdóttir, Holtsgötu 6, 230
Njarðvík, óskar eftir pennavinum.
stelpum eða strákum. á aldrinum 13—
15 ára. Hún er sjálf 14 ára. Mynd fylgi
fyrsta bréfi ef hægt er. Áhugamál: bók-
lestur. utivera. „kjútt strákar" o.fl.
Hulda Sæland Árnadóttir, Birkivöllum
22, 800 Selfossi, óskar eftir pennavinum
á aldrinum 13—15 ára. Áhugamál:
dans. útilegur. strákar. handavinna o.fl.
Hdga Jónsdóttir, Hraunbæ 62, 110
Rcykjavík, hefur áhuga á að skrifast á
við stelpur og stráka á aldrinum 12—14
ára. Áhugamál: íþróttir. diskótek. dans
o.fl. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Svarar öllum bréfum.
Franklin Landrl, P.O. Box 402, Bryan.
Ohio, 43506 USA, vill komast í sam
band við unga stúlku eða konu sem
hefur áhuga á gömlum manni.
Ásta Baldursdóttir, Möðrufclli 15, 109
Rcykjavík, F.ygló Firiksdóttir. Rjúpufclli
27, 109 Reykjavik, (ícrða Bjarnadóttir,
Rjúpufclli 25,109 Reykjavík.Þæreru 17.
18 og 19 ára og óska eftir að skrifast á
viðstrákaáaldrinum 19—22 ára.
Eva Sigurðardóttir, Þrúðvangi 7, 220
Hafnarfirði, óskar eftir pennavinum á
aldrinum 12—14 ára. Sjálf er hún 13
ára. Svarar öllum bréfum.
Magnca B. Högnadóttir, Ljóshcimum
14, 104 Rcykjavík, óskar eflir penna
vinum á aldrinum 10— 12 ára ler sjálf 11
ára). Áhugamál: hestar. bækur og fri
merki.
Edith Þórðardóttir, Urðargötu 12, Pat-
rcksfirði, og Rakel Guðmundsdóttir,
Aðalstræti 29, Patrcksfirði, óska eftir að
skrifast á við stráka á aldrinum 13—15
ára leru sjálfar 13 áral. Áhugamál:
iþróttir. hestar og margt fleira. Mynd
fy.lgi fyrsta bréfi ef hægl er.
Ásdís Kolbcinsdóttir, Hraunbæ 89, 110
Reykjavík, óskar eftir að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 11 — 13 ára.
Hún er 12 ára. Áhugamál: dýr, strákar.
handbolti og margt fleira. Svarar öllum
bréfum. Mynd fylgi fyrsta bréfi cf hægt
er.
Dagný Ragnarsdóttir, Dofra v/Vestur-
landsvcg, pósthólf 224, óskar eftir að
skrifast á við stelpur og stráka á aldrin
um 11 — 13 ára. Hún er sjálf 12 ára.
Áhugamál: hestar (og öll önnur dýrl.
strákar. handbolti og margt fleira. Svar
ar öllum bréfum. Mynd fylgi fyrsta bréfi
ef hægter.
0
Hvarf eftir sjónvarps-
myndina Lítil þúfa
Elsku Póstur!
Ég vona að þú getir hjálpað mér. Ég hef skrifað þér einu
sinni áður en gat ekki notað mér svarið sem þú gafst. En
nú er ég hrifin af strák (mjög hrifin) og einu sinni vorum
við alltaf saman, við kysstumst en lengra fór það ekki.
Hann hefur hjálpað mér mjög mikið og allir héldu að við
værum saman. Svo voru vinkonur mínar hættar að hafa
samband við mig. Eitt kvöldið voruð við heima hjá honum
að horfa á sjónvarpið, á myndina Lítil þúfa, og eftir það
breyttist hann svo mikið og hætti að hafa samband við mig.
Hann var farinn að kalla mig kærustuna sína.
Mamma hefur verið að reyna að hughreysta mig en það
hefur ekki tekist. Svo skilur mig enginn, að ég skuli vera
hrifinn af þessum ómerkilega strák. En það er nú eins og
það er, ég elska hann alveg út af lífinu. Ætli mvndin hafi
haft svona mikil áhrif á hann eða hvað?
Ég hef engan til þess að tala við um þetta nema þig. Vin-
konurnar líta ekki við mér. Mig langar helst að ganga út og
fremja sjálfsmorð.
Ein í ástarsorg.
Þú hefur greinilega verið mjög niðurdregin þegar þetta bréf
var skrifað og Pósturinn vonar að slíkar hugsanir hafi ekki
hvarflað að þér mikið oftar. Sjálfsmorð er fráleitur kostur og
síður en svo eitthvað sem auðveldar lausnina. Og það er
fremur ótrúlegt að vinkonurnar komi ekki aftur, þótt það taki
ef til vill nokkurn tíma að láta allt ganga sinn vanagang á
nýjan leik.
Það er engin ástæða til að álíta drenginn ómerkilegan þótt
svona hafi farið. Þið eruð mjög ung og ef umrædd sjónvarps-
mynd hefur haft mikil áhrif á hann, og ef til vill gert hann frá-
hverfan sambandi ykkar, er varla við hann að sakast. Heiðar-
legra hefði verið af hans hálfu að tala um það við þig og segja
þér að viðhorfin væru breytt og því betra að binda enda á
sambandið. En ef honum þykir samt ennþá vænt um þig á
sinn máta getur það hafa reynst honum um megn og því hefur
hann tekið þann kostinn að hverfa án nokkurra skýringa.
Eina ráðið er að þú leiðir hugann sem mest að öðrum hlut-
um og minnstu þess að hann er alls ekki eini karlmaðurinn á
jarðkringlunni. Með tímanum gleymist þetta eins og annað ög
þá finnst þér fráleitt að láta einmitt þennan eina mann valda
þér svo miklum heilabrotum. Hafðu samband við vinkonur
þínar að fyrra bragði og forðastu að láta þetta smáskipbrot
hafa of mikil áhrif á þig andlega. Hvort þetta hefði svo ekki
gerst, þótt engin Lítil þúfa hefði verið sýnd í sjónvarpinu, er
ekki gott að segja. Á ykkar aldri vilja einmitt skiptast á skin og
skúrir í þessum efnum, oft og að því er virðist fyrirvaralaust.
30. tbl. Vikan 63