Vikan - 22.01.1981, Blaðsíða 3
Vertu
samt ekki að
fíýta þér!
Menn sem eiga stefnumót við Óla H.
Þórðarson hafa kannski veitt því eftir
tekt að hann segir sem svo: „Vertu
ekkert að binda þig við að konia á
minútunni." og undrast að hann skuli
ekki leggja meira upp úr réttri tinia-
setningu en raun ber vitni. Sumir halda
að hann nieini þetta ekki. svo margt
fánýtt kurteisishjal sem gengur manna á
meðal. En Óla cr l'ull alvara. Hann held
ur því fram að timastressað fólk geli ver
ið stórhættulegt i umferðinni. Hvernig
væri að láta af minútumennskunni. og
auðvitað að gefa sér góðan tinia til allra
hluta. Og ef svo illa vill til að þú ert að
verða of seinn: ..Hvað með það?
ÞÁ VAR ÖLDIN
ÖNNUR EN NÚ
ER ÞAÐ
SKYGGNIR
Skyggnir hefur verið mikið i fréttunum
að undanförnu. þetta stóra fyrirbæri
sem beinir faðminum upp til gcrvi
hnattanna. En svona leit nú tækið út.
sem sá um l'yrsta talsimasamband við
útlönd. Það eru starfsmenn á
Rjúpnahæð. þeir Hannes Jónsson.
Sigurður Ólafsson og Sigurður Jónsson.
sem standa við þelta gamla tæki. sem
óneitanlega er smærra i sniðum en
Skyggnir hinn stóri. Ekki má gleynta
þvi að i millitíðinni var notast við
sæsimastrengi og tæknin hefur þróast
en ckki stokkið l'rá þessu yfirlætislausa
tæki og yfir á geimöld Skyggnis.
Skyndileglálka og P& ]%
ÁREKSTRASÚPA
UPPSKRIFT:
Takið tvo bíla (eða fleiri) og blandið þeim saman á fjölförnum
gatnamótum. Hrærið slyddu saman við. Látið suðuna koma upp á öku-
mönnunum og kælið með lögreglunni. Vitni og annað utanaðkomandi
getur gert súpuna sérkennilega. Kryddað eftir smekk blaðanna.
i3
IWM
í þessari Viku
4. tbl. 43. árg. 22.jan. 1981. Verð 18nýkr.
GREINAR OG VIÐTÖE:
6 Ein allsherjar hnappasteypa — New York. Vikan kvnnir
stórborgir.
20 Algeng ágreiningsmál unglinga og foreldra. Guðfinna Eydal
skrifar um fjölskyldumál.
29 Þorrinn — Við kynnum þorramat og þorrasiði á átta
sjálfstæðum síðum.
40 Eiríkur á Brúnum og Paradísarheimt.
44 Kínverska nálastunguaðferðin.
SÖGUR:
12 Sá hlær best... Framhaldssaga.
18 Endir samk væmisins — Smásaga.
38 Jæja, hvað finnst þér þá? — Willy Breinholst.
ÝMISLEGT:
2 Margtsmátt.
4 íslensk peysa með indíánamunstri.
38 Stjörnuspá.
46 Þórskabarett.
48 Djúpsteiktur ostur Dijon í Eldhúsi Vikunnar og Klúhbs
matreiðslumeistara.
51 Draumar.
52 Myndasögur og heilabrot.
62 Pósturinn.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Siguröur Hreiðar Hreiöarsson. Blaöamenn: Anna Ólafsdóttir
Bjömsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Jón Ásgeir Sigurðsson, Þórey Einarsdóttir. Útlitsteiknari:
Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Ragnar Th. Sigurðsson. RITSTJÓRN I SÍÐUMÚLA 23, sími
27022. AUGLÝSINGAR: Birna Kristjánsdóttir, sími 85320.
AFGREIÐSLA OG DREIFING í Þverholti 11, sími 27022. Pósthólf 533. Verö í lausasölu 18,00 nýkr.
Áskriftarverð 60,00 nýkr. á mánuöi, 180,00 nýkr. fyrir 13 tölublöð ársfjóröungslega eöa 360,00 nýkr.
fyrir 26 blöö hálfsárslega. Áskriftarverð greiöist fyrirfram, gjalddagar nóvembor, febrúar, maí og
ágúst Áskrift í Reykjavík og Kópavogi greiðist mánaðarlega.
Um málefni neytenda er fjallaö í samráði viö Neytendasamtökin.
Forsíða
Nú kynnum við stórborgina New
York og forsíðumyndin er vitaskuld
tekin þar. Þar tiðkast enn að lögregl-
an fari um riðandi, að minnsta kosti
þegar mikið liggur við, og hér var
tilefnið hvorki meira né minna en
skrúðgangan mikla á Broadway á
þakkargjörðardaginn. En meira um
New York inni i blaðinu. — Ljósm.
Álfheiður Guðlaugsdóttir.
4. tbl. Vikan 3