Vikan


Vikan - 11.03.1982, Síða 2

Vikan - 11.03.1982, Síða 2
Margt smátt Konur um konur og kvennalíf Um leið og Adam gafst fyrsta tœkifærið skellti hanrt skuldinni á konuna. Nancy Astor Siðmenningin er heimskuleg. Hvers vegna er manni gefinn iíkami ef maður þarf að loka hann inni í kassa eins og afar sjaldgœfa ftðlu? Katharine Mansfield Konur fæðast ekki konur. þær verða það. Simone de Beauvoir ....lengi hafa konur verið kallaðar drottningar en konungsríkið sem þær hafa fengið til yfirráða hefur ekki verið mikils virði. Louisa May Alcott Verð ég brjóstmylkingur? Mamma cr alltaf að spegla sig og spegla sig. Hún er alltaf að hugsa um brjóstin á sér. Hún segir að þau virki svo þanin. Pabbi segir að þau verði alltaf stærri stærri. Ef þú heldur svona áfram, ástin, segir hann, verð ég bráðum að fara að tjóðra þig. Annars verðurðu uppnumin einn góðan veðurdag eins og blaðra, segir hann. Þegar þau eru að tala um brjóstin á mömmu fæ ég svo ein- kennilega tilfinningu í munninn. Og svo fer ég að sjúga og sjúga. Það er svolítið skrýtið. Stundum dreymir mig um brjóstin á mömmu og þá gríp ég hnefafylli í þau og sýg mig fastan. Ég veit ekki af hverju, en það er gott að dreyma svona. Mamma talar líka oft um að kannski verði ég alls ekki brjóstmylkingur heldur pelabarn. Verði? Hvernig verði? Brjóstmylkingur? Pelabarn? Hvern skrattann eiga þau við? — Kannski fæ ég ekki nóga mjólk, segir hún. Mjólk? Til hvers? Gömlu meistararnir og hinir Frakkar sögðu fyrst í stað að kúbisminn væri della en þó mátti heyra einn lista- verkasala segja: Ég ætla að kaupa eitthvað eftir Picasso núna, ekki vegna þess að ég sé svona smekklaus heldur af því að það verður mikils virði seinna. ★ Balzac bjó lengi í köldu og berangurs- legu þakherbergi. í eldstæðinu logaði aldrei eldur og engin mynd hékk á veggjum. En á einn vegg hafði hann skrifað: „Panell úr rósaviði og kommóða,” og á annan, „Góbelín- vefnaður og spegill í feneyskum stíl,” og yfir eldlausum arninum stóð: „Mynd eftir Rafael.” ★ Einhver spurði hinn fræga málara Orpen hvernig hann blandaði liti sina: „Með heilasellum,” svaraði Orpen. ★ Samuel F. B. Morse var málari áður en hann fann upp simskeytin. Hann bað eitt sinn vin sinn, sem var læknir, að segja sér skoðun sína umbúðalaust á málverki sem hann hafði málað af manni á bana- beði: „Malaría,” sagði læknirinn. ★ Mark Twain heimsótti eitt sinn málarann Whistler á vinnustofu hans og leit á myndirnar. Hann snerti eina þeirra og Whistler hrópaði: „Ó, snertu þetta ekki, sérðu ekki að myndin er ekki orðin þurr.” „Það gerir ekkert til,” sagði Mark Twain, „ég er með hanska.” ★ Ekki veit ég hvort konur eru betri en menn en þær eru að minnsta kosti ekki verri. Golda Meir Hvernig getur fólk haldið þvi fram að það sé í eðli kvenna að vinna heimdis- störf? Hvar voru þvottavélar og ryksugur þegar guð skapaði konuna, eða var hann svonaforsjátl? N.N. Hljómflutningstæki Góður ræðumaður er sá sem getur yfirgnæft hljómflutningstækin. ★ Það nýjasta nýtt eru jrogul hljóm- flutningstæki fyrir ríkt fólk sem Jxvlir ekki hávaða. ★ Gullkorn Kvikmyndastjarnan Mae West sagði eitt sinn í blaðaviðtali: „Það skiptir ekki máli hvað ég geri heldur hvernig ég geri jjað, hvað ég segi heldur hvemig ég segi jjað og hvort ég lít nægilega vel út jregar ég segi og geri það.” Ég er aðalforstjóri umsvifamikils fyrirtækis og má ekki vera að því að verða ástfanginn. Willy Breinholst LEIGJANDINN í KÚLUNNI 2 Vikan 10. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.