Vikan - 01.07.1982, Blaðsíða 21
Popp
DURAN DURAN:
RIO
Útg.: Fálkinn.
Geimskipið líður um óravíddir
alheimsins á tvöföldum Ijóshraða.
Geimfarinn slappar af inni i káetu
fær sér ávaxtasafa og ýtir á takka.
Úr ósýnilegum hátölurum berst
tónlist Duran Duran.
Ef þú ert ekki geimfari þá er
rétta aðferðin við að hlusta á
svona plötur þessi: Farðu út á
svalir á laugardagseftirmiðdegi
þegar hlýtt er og sólin skín. Fáðu
þér pilsner úr isskápnum, það má
lika vera eitthvað aðeins sterkara,
til dæmis bragðgóður kokkteill
eða kahlúa. Skiptir ekki máli.
Settu hátalarana út í svaladyrnar
og lokaðu augunum. Nauðsyn-
legt er að sitja i mjúkum stól.
Hugsaðu um siðasta ástarævin-
týrið þitt. Hlustaðu síðan á plöt-
una, láttu hana biandast saman
við umferðarniðinn og hávaðann
frá börnum að leik.
Nýrómantik: Undarleg tík. Ef til
eru nýrómantiskar hljómsveitir þá
er Duran Duran nýrómantisk
hljómsveit. Rio er mun betri en
fyrri skifa þeirra, sem ég man
ekki hvað heitir.
Hljómur: Silkimjúkur. Bassi,
gítar, trommur, hljómborð.
söngur, margvisíegar raddanir.
Söngvarinn er góður. Allt
blandast þetta eins og kokkteill-
inn sem þú ert að drekka.
Hljómpipur skógarins: Í græn-
um lundi situr þú og horfir á sólar-
geislana brjóta sér leið gegnum
limið. Fuglarnir syngja í trjánum,
lífið er dásamlegt. Skyndilega
sperra þeir, og þú, hlustirnar. Úr
fjarlægð berst dásamlegur
ómur. Þaðer Duran Duran.
Diskótek: Duran Duran eiga
líka heima á diskótekunum.
Þeirra er tónlistin sem blandast
fallega fólkinu, blikkandi Ijósun-
um og vökvanum i glösum gest-
anna á hinn fullkomna hátt.
Duran Duran syngja ekki um
sprengjuna. En það gera aðrir.
Duran Duran mega alveg sleppa
þvi, min vegna.
Degi er tekið að halla. Jón Múli
segir fréttir af heiminum i
kringum þig í útvarpinu. Þú situr
enn á svölunum en brátt er
kominn timi til að fara í bað, fara i
fínu fötin og bregða sér á
skemmtistað. Duran Duran hafa
séð um að koma þér í rétta
stemmningu fyrir kvöldið.
Ég mæli með þessari plötu.
■ ■
Það dylst engum að Opel Rekord er lúx
bíll. Hvar sem á hann er litið, hvar sem
honum er setið og hvert sem honum er
ekið þá er ekkert sem hægt er útá að se
Opel Rekord er rúmgóður, þægilegur oc
eins öruggur og hugsast getur. Aflmikil
en neyslugrannur og endingin er slík a
við endursölu er bíllinn sem nýr.
Vekur Opel áhuga þinn?
Reiðubúinn í reynsluakstur?
Hringdu og pantaðu tíma.
SVÉUDHLB
Ármúla3 0 38900
26. tbl. Vlkan 21