Vikan


Vikan - 26.05.1983, Blaðsíða 17

Vikan - 26.05.1983, Blaðsíða 17
f Marjorie Franco A fmælispeningar Genevieve Eftir meira en tíu ára sambúð með Alexander hafði ég komist að því að hjónabandið hékk saman á göllunum. Um leið og maður gefur jáyrði sitt verður maöur að lofa því að vera ekki gallalaus. Alger fullkomnun gæti gert mann brjálaðan. Þá verð ég aö segja fyrir mitt leyti að ófullkomleikinn er langtum skárri, nema náttúr- lega að hann gangi út í öfgar. Alexander er haldinn einum galla sem jaörar við aö vera á mörkum öfganna. Og það sem verra er, hann krefst þess að ég taki þátt í þessu með honum. Þetta heitir „áð skoöa skóginn” og þessi árátta grípur hann á hverju hausti. Venjulegu fólki finnst líka gaman að skoða haustlaufin og gerir það á ósköp eðlilegan hátt. En ekki Alexander. Fyrir honum er það „að skoða skóginn” athöfn sem skal framkvæmd á nákvæm- lega réttu augnabliki, hvorki of seint né of snemma, á hátindi dýröarinnar. Til aö upplifa þetta augnablik hikar hann ekki við að aflýsa mikilvægum fundum og svíkja gefin loforð til þess að geta ekið upp í sveitir, upphafinn í andanum í leit að hinni laufguðu fullkomn- un. Þessi laufgaða fullkomnun skapast við mismunandi aðstæð- ur, á mismunandi stöðum og á mismunandi tíma hverju sinni en í október má segja aö við lifum bara frá degi til dags. Eftir því sem árin líða hefur þetta færst meira og meira í keppnisform þar sem Alexander er annar keppandinn en laufin hinn. Eins og í allri keppni eru vissar reglur. Aðeins skóglendi í sveitum koma til greina. Borgar- laufin teljast einfaldlega ekki meö. Ekki kemur heldur til greina að skoða skóginn rétt áður eða rétt eftir að hann er í mestum blóma. Leiki þarna einhver vafi á má leita til dómara, en dómari getur hver sá verið sem býr á viðkom- andi stað. Komiö hefur fyrir að Alexander hafi stöðvað bílinn, skrúfað niður rúöuna og spurt inn- fæddan: „Hefur laufskrúðið hér náð hámarki?” Kona nokkur sem afgreiðir á bensínstöð í norður- hluta Wisconsin lofaði að senda honum póstkort þegar hámarks- tíma væri náð. Nú fór októbermánuður í hönd og það kom á daginn aö okkur bráðvantaði nýjan ísskáp. Húnn- inn var dottinn af þeim gamla og í marga daga hafði ég orðið að opna hann með töng. Eg var orðin býsna leikin í því. Við ræddum um að láta gera við handfangið en Alexander, skynsemdarmaöur- inn,sagði: „Hvers vegna skyldum við eyða fé í þennan gamla kassa. Kaupum nýjan.” Ég var þessu mjög fylgjandi. ísskápurinn okkar, sem við höföum keypt notaðan í byrjun búskapar, var farinnaðfölna. „Ég legg afmælispeningana í fyrirtækið,” bauð ég. Afmælis- peningarnir höfðu legið á vöxtum síðan í júní. Mér hafði dottið í hug að kaupa Meissner postulín í hvítu og bláu eöa bláhvítt Delft postulín en var ekki búin að ákveða neitt. „Ertu viss, Genevieve?” sagði Alexander þakklátur. Mér finnst gaman að vera hag- sýn. Heimurinn þarfnast meiri hagsýni. „Þetta er þaö eina skyn- samlega,” sagöi ég. „Afmælis- peningar mínir eru stoltir af aö taka þátt í framlaginu.” Hvað viðvék öðru framlagi reyndum við að spara á öllum sviðum nema vasapeninga krakkanna. Þeir tóku það ekki í mál. Barbara sagð- ist ekki geta komist lengra í sparnaði. „Til hvers þurfum við nýjan ísskáp?” spuröi Bentley, sem fannst gaman að opna með tönginni. „Það er allt í lagi með þennan.” „Við þurfum nýjan vegna þess að við, foreldrar ykkar, höfum ákveðiöaösvo sé.” Fyrir mörgum árum höfðum við Alexander orðið ásátt um að ann- ast öll meiriháttar innkaup sam- an. ísskápur var greinilega meiri háttar innkaup svo við lögðum af stað saman blátæran laugardags- morgun í október og stefndum á heimilistækjadeildina í stóru vöruhúsi. Alexander sá eitt lúxus- módel og sagði: „Þessi er með frystikistu líka.” „Þá veröur hann dýrari.” „Við kaupum ekki ísskáp á hverjum degi,” sagði hann rólega. Hann lagði höndina á öxl mér og horfði á mig alvarlegum augum. „Hvaö heldur þú að fólk kaupi oft ísskáp á ævi sinni? — Kannski þrisvar, ímesta. . .” „Hugsum ekki um það, Alex- ander,” sagði ég frekar þurrlega. Var lítið hrifin af aö láta skipta ævi minni niður eftir ísskápum. „Við tökum þennan meö frysti- kistunni.” Þegar hér var komið voru þrír afgreiðslumenn farnir að sveima í kringum okkur. „Komum okkur héðan,” hvíslaði Alexander. Hann þolir ekki að láta ýta á eftir sér. Hann getur þó verið snöggur ef hraði hentar að hans eigin mati. Við skoðuðum í búðir alla helg- ina. Á mánudagsnóttina dreymdi mig ísskáp. Eg opnaði hann, það var lúxusmódelið, og inni í honum var, mér til skelfingar, lítið dýr sem virtist steindautt. Ég staröi á það og alveg óvænt sýndist mér þaö draga andann. Ég tók það út, hlýjaöi því og endurlífgaði. Á mánudaginn kom Sue-Sue Robinson til okkar í notaða Mercedesbílnum sem hún ekur í til að þóknast bónda sínum, sem er bókstaflega ástfanginn af bíln- um. Hann hafði keypt hann í sælu- vímu og fórnað miklu til. Hann vill að Sue-Sue keyri hann því hún ek- ur betur en hann. „Ég reyndi að hringja í þig í gær,” sagði Sue-Sue. „Ég hélt helst að þið Alexander væruð í burtu að skoða skóginn.” „Við vorum úti aö skoða ís- skápa.” , ,Keyptuð þið nokkurn ? ’ ’ „Ekki enn.” „Það var heppilegt. Ég veit hvar þeir eru á útsölu. ” Ég steig inn í Mercedesinn og villti þar með á mér heimildir. Við Alexander eigum miðaldra orkusparnaöarbíl. Meðan við ók- um til næsta þorps sagði ég Sue- Sue frá draumnum. Hún hefur áhuga á draumum og drauma- ráðningum. „Auðvitaö,” sagði hún, „dýrið í draumi þínum tákn- ar tilfinningalíf þitt. Ef því er haldiö of lengi niðri við frostmark lendir það í alvarlegum vandræð- um. Ég held að undirvitundin sé aö reyna aö segja þér eitthvað, Genevieve.” Draumurinn snerti ekkert til- finningalíf mitt, en það var ég frekar sátt viö. Til að særa ekki til- finningar hennar sagöi ég: „Þetta var góð ráðning hjá þér, Sue-Sue. ” Hún beygði inn í miöbæ þorpsins og ég sagði: „Væri þér sama þótt við legðum bílnum svolítið frá búðinni. Ég vil síður villa á mér heimildir.” Hún lagði bílnum fyrir framan austurlenska forngripaverslun og meðan ég var að láta mynt í mæl- inn gekk hún að glugganum. Eg hafði ekki áhuga á austurlenskum forngripum. Ég var með hugann við heimilistækjaverslunina þó svo útsöluauglýsingarnar færu svolítið í taugarnar á mér. Ég gekk til Sue-Sue og horföi kurteislega en jafnframt hálf- óþolinmóð í gluggann. Allt í einu kom ég auga á tvo innrammaða kínverska platta úr brenndum leir og féll fyrir þeim á stundinni. Þeir voru hvítir, málaðir meö bláu og myndefnið og hvert smáatriði í fletinum stórkostlegt. „Þeir eru dásamlegir,” sagði ég dreymandi röddu. „Þeir eru óvenjulegir,” sagöi Sue-Sue. Hún hikaöi svolítiö. „Viltu farainn?” Ég átti í innri baráttu. „Nei,” sagði ég og rak á dyr allar freist- ingar. „Við erum hér til að skoða ísskápa.” Heimurinn stendur og fellur með hagsýna fólkinu. Hún yppti öxlum og elti mig inn í kælivéladeildina, en þar tók á móti okkur horaður maöur í víö- um fötum og fræddi okkur meira um ísskápa en viö höfðum nokkra löngun til að vita. Hann rétti mér spjaldiö sitt, smekklega áprentaö, og ég lofaði hátíðlega að koma aft- ur um helgina meö Alexander. Alexander spurði hvort útsalan yrði fram að helgi. „Síöasti dagurinn er mánu- dagur.” Ég hlakkaði til aö gefa tönginni frí frá störfum. Á föstudaginn kom póstkort frá 21. tbl. Vikan 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.