Vikan - 17.05.1984, Blaðsíða 40
1S Fimm mínútur með Willy Breinholst
Vandasamt
verkefni
Jeffries haföi orðið undir gufu-
knúnum götuvaltara og flast út
rétt eins og pönnukaka. Nú kom til
kasta þeirra á litlu lögreglustöð-
inni í bænum að tilkynna veslings
frú Jeffries sorgarfréttirnar.
— Þetta er verkefni fyrir þig,
Jerry, sagði Marshall yfir-
lögregluþjónn í skipunarrómi.
Jerry var sá þeirra á stöðinni sem
liöugast hafði málbeinið og þess
vegna hélt yfirlögregluþjónninn
að hann væri kjörinn til að leysa
þetta litla vandamál sem þeir
stóðu frammi fyrir. Jerry greip
símann og valdi símanúmeriö
hans Jeffries.
— Frú Jeffries? Þetta er
Barker lögregluþjónn. Eg hef
fréttir að færa, frú Jeffries. Þú
veist, stóri gufuknúni valtarinn
sem vinnur á aðalvegi númer 67.
Já, einmitt, tuttugu og fimm
tonna. Maðurinn þinn lenti undir
honum um daginn. Gerðist
eitthvað með hann? O-já, ég held
nú það! Hann flattist út eins og
pönnukaka svo við gætum bara
sent þér hannípósti!
Jerry lagði á, ánægður með sig.
Hann hafði komið skilaboðunum
um hina skyndilegu ferö Jeffries á
fund feöranna á framfæri þannig
að það fór ekki á milli mála viö
hvað var átt — og hann hafði líka
munað þau óskrifuðu lög vel að
maður má aldrei nefna orðið
dauði við þá sem eftir lifa.
CROSS-penninn veitir varanlega ánægju og jafnvægi þegar þú skrifar.
MIKIÐ URVAL
Verslanir: I lallarmúla 2 s. 83211
Laugavegi 84 HaJ'narsiræii 18
Allar nánari upplýsingar:
PENNAVIÐGERÐIN
Ingólfsstræti 2, sími 1 3271
40 Vikan 20. tbl.