Vikan - 17.05.1984, Page 48
Pósturinn
AIRMAIL
PAR AVION
Tvær skotnar
Kœri Póstur.
Þannig er mál med vexti
ad vid erum skotnar í strák.
Við vitum hvar hann býr og
hvað liann heitir en við
vitum ekki livorl liann er
skotinn í okkur. Audvitað
vonum við báðar. Við erum
alveg sœmilega þroskaðar
en þorum ekki að tala við
hann. Ekki láta Helgu lá
þetta bréf vegna þess að við
erum að degja ár ást. Þetta
er þriðja bréfið sem við
skrifum um þetta mál svo
Helga hlgtur að hafa verið
svöng.
Tvœr i ástarsorg.
Svo þið eruö skotnar í þeim
sama. Ekki er það nú beint
heppilegt því ólíklegt er aö þið
getið báöar hreppt strák. En
vonandi eruð þið góðar vinkonur
og getið talað út um málin ef
hann hefur nú áhuga á annarri
ykkar. Þiö ættuð líklega aö byrja
á því aö tala út um þaö áöur en
þiö reynið að komast að því hvort
hann hefur einhvern áhuga. Til
þess aö komast að því hvaöa hug
hann ber til ykkar er líklega best
að láta einhvern vin eða vinkonu
njósna dálítiö fyrir ykkur. Svo er
víst best að reyna aö verða eins
mikiö á vegi hans og hægt er og
nota eitthvert gott tækifæri til að
tala viö hann.
Fílapenslar
Kœri Póstur.
Ég á eitt vandamál í
fórum mínum. Ég er með
fílapensla át um allt andlit
og það er alveg ferlega Ijótt.
Mér finnst þetta leiðinlegt
og vil gera allt sem hœgt er
til að losna við þetta. Getur
þú, kæri Póstur, gefið mér
einhver ráð?
Takk.
Ráðalaus.
Skriftin þín bendir til þess að
þú sért á unglingsaldri og
blessuöum unglingsárunum
fylgja ýmis óþægindi eins og fíla-
penslar. Þær hormónabreytingar
sem fylgja þessum árum hafa í
för meö sér bólur og fílapensla
og getur veriö erfitt aö losna viö
þetta á meðan á þessu stendur.
En það er hægt að reyna aö
halda þessu niðri meö því til
dæmis aö halda húöinni alltaf
hreinni. Þaö er líka mjög mikil-
vægt aö vera ekki aö kreista fíla-
penslana né hamast á húðinni.
Hollt mataræöi er mjög mikil-
vægt fyrir húðina svo ef þú ert
mikið fyrir sælgæti og sætabrauð
skalt þú endilega minnka þá
neyslu. Þú skalt einnig reyna aö
foröast allt sem fita er í. Ef þetta
er á slæmu stigi ættir þú endilega
að leita til húðsjúkdómalæknis
eða fara á snyrtistofu þar sem þú
getur fengiö húðina hreinsaða.
Það er mjög algengt að ungl-
ingar komi á snyrtistofurnar í
húöhreinsun.
Nagaðar
neglur
Kœri háttvirti Póstur.
Ég vona að Helga sé södd
því að ég er í miklum vand-
rœðum. Þannig er mál með
vexti að ég naga svo mikið
neglurnar á mér. Eg er
búin að gera þetta síðan ég
var pínulítil. Ég er búin að
regna öll tiltœk ráð. Ég lief
plástrað á mér fingurna og
regnt bragðvont naglalakk
en málið er bara það að
mér finnst það gott á
bragðið. Neglurnar á mér
eru alltaf nagaðar upp í
kviku og meira en það. Mér
hefur verið bent á að fara
til lœknis út af þessu en
mér finnst það svo asna-
legt. Hvað œtti lœknirinn
svo sem að geta gert? Jæja,
ég vona að þú getir hjálpað
mér eitthvað. Með fgrirfram
þökk fgrir birtinguna.
Ein í miklum vandræðum.
Þú ert greinilega búin aö nota
þau ráð sem Póstinum er
kunnugt um án þess að það hafi
hjálpað. Efni sem fæst i
apótekum hér á landi og heitir
Bite-X er sagt gera gagn hjá
sumum en öðrum ekki, en það er
ef til vill þetta efni sem þú hefur
borið á þínar neglur og þótt gott
á bragöið. Ekki veit Pósturinn
hvort þú hefur prófað að vera
mikiö með tyggjó en þaö hefur
hjálpað mörgum. Þá er um að
gera að hafa alltaf tyggjó (og þá
auövitað sykurlaust) við höndina
og stinga upp í sig. Sá sem
tyggur tyggjó á fullu á erfitt með
aö naga neglurnar að auki. Þú
ættir aö prófa þetta ef þú hefur
ekki þegar gert þaö. En hvað ætli
læknirinn geti gert? skrifar þú.
Það er aldrei að vita nema hann
lumi á einhverju góðu ráöi sem
einmitt hentar þér. Þaö er alls
ekki asnalegt að fara til læknis
en ef þú vilt ekki að aðrir viti um
heimsókn þína til hans þarft þú
heldur ekki aö segja neinum frá
því. Svo vonar Pósturinn bara aö
þú sért ekki búin aö prófa allt
sem hægt er og aö þú fáir góðar
neglur með tímanum.
Hár á
fótum
Kœri Póstur.
Mig langar mikið til að fá
að vita hvernig hægt er að
losna við kolsvört hár á fót-
leggjum. Einhvers staðar hef
ég hegrt að það sé hægt að
egða þeim þannig að þau
komi aldrei aftur. Er það
satt? Hvert get ég leitað til
að fá einhverja meðferð og er
þetta dgrt? Þú verður að
hjálpa mér því ég skammast
mín svo mikið fgrir að vera
með svona loðnar og ógeðs-
legar lappir. Eg þori varla
að fara í sund eða leikfimi.
Eg þarf nauðsgnlega að fá
svar og þess vegna vona ég
að þú gefir ekki Helgu þetta
bréf.
Ég.
Háreyðingarkrem, sem fást í
apótekum og snyrtivöru-
verslunum, losa hár en koma ekki
í veg fyrir að þau vaxi aftur.
Það þarf að nota háreyöingar-
kremin reglulega og oft ef þú
ætlar að halda fótleggjunum
fínum með þeim. En háreyöingar-
kremin eru sögð auka hárvöxtinn
svo þau losa þig engan veginn við
hárin. Onnur aðferð til að losna við
hárin leiðinlegu er vaxmeðferð.
Þá er vax boriö á fæturna og síðan
rifið snögglega af. Þetta er
pínulítið sárt, líkt og þegar plástur
er rifinn snögglega af. Vax-
meðferð dregur úr hárvexti því
hárin eru rifin upp meö rótum.
Hægt er að gera þetta sjálfur
með því að kaupa vaxið í snyrti-
vöruverslun en líklega er betra að
fá þetta gert á snyrtistofu, þaö
mun kosta eitthvað í kringum 300
krónur.
48 Vikan 20. tbl.