Vikan - 22.11.1984, Page 42
r
Sjötti hluti.
Þegar Emma sneri sér aftur að
sínum dyrum sá hún að dyrnar að
káetunni á móti Suzie voru opnar.
Dauft ljós þar inni sýndi að þetta
var ámóta lítil vistarvera, með
auöu rúmi og þvældum rúmfatn-
aði. Yfir því hékk jakki með
látúnshnöppum, gullskrauti og
axlaskúfum, jakkann þann hafði
hún síðast séð á heröum skipstjóra
Delaware.
Hún leit snöggt á lokaðar dyrnar
þar sem þau tvö lágu, hálfgildings
ambátt og undarlega þurrlegur og
strangur Ameríkani. Þurrlegur og
strangur, þvæla! Hann var alveg
eins og allir hinir! Undir yfir-
bragði mannsins bjó geithafur!
Emma reif upp dymar hjá sér
og skellti á eftir sér, skeytti ekki
um þó parið í faðmlögunum heyrði
til hennar. Hún reif af sér sloppinn
og kastaði sér aftur í rúmið. Það
liðu margir klukkutímar áður en
hún gat aftur sofnað. Hugur
hennar var hjá parinu í næstu
káetu. Og það var vissulega fárán-
legt að láta svona subbulegt og
smávægilegt mál koma sér í upp-
nám.
Þriðji kafli
DAGSBIRTAN streymdi inn um
langa gluggana á káetunni og hún
pírði augun í sólina. Annarleg
ákafatilfinning greip hana, hún
stökk fram úr, fyllti þvottafatið úr
koparkönnu og skvetti köldu vatni
á vanga sína þar til hana sveið
undan.
Tíu mínútum síðar fór hún upp á
þilfar, klædd slá og húfu til skjóls
fyrir ferskum andvaranum. Dela-
ware var á sama kúrs, þanin segl-
in þrumuðu djúpraddaðan kór-
söng fyrir ofan og kjölfarið æddi
hjá. Stöku sinnum brast sérlega
há alda á kinnungnum og reis út-
breidd í demantsúða yfir hvítu þil-
farinu. Hvergi var neitt að sjá á
sjóndeildarhringnum. Eyðiland
glampandi bláma undir skýja-
bólstrum og tærum himni bland-
aðist í óskipulegri ringulreið.
Hver er Emma? Hún er ung og falleg stúlka sem kemst
að raun um að lífið er enginn dans á rósum og allt krefst
nokkurra fórna. — Þegar sagan hefst munar minnstu að
hún verði fómarlamb siðlausra óþokka en í það skiptið
sleppur hún með skrekkinn. Hún neyðist til að ganga að
eiga mann sem er henni lítt að skapi sem eiginmaður, en
ævintýraferlinum er síður en svo lokið þótt hún sé gengin
í það heilaga — þá fyrst fer að færast fjör í leikinn. Ein-
hver leyndardómsfullur huldumaður gerir henni lífið
leitt, þar til að lokum að hún uppgötvar hver hann er — og
þá verða lesendumir væntanlega ekki síður undrandi en
hún sjálf....
Æsispennandi ævintýraróman — um lífsreynslu sem
ekki fyrirfinnst lengur, ástir og hrakninga — mannvíg
og mansal — látið ÁSTIR EMMU ekki fram hjá ykkur
fara!
„Góðan daginn, frú.” O’Leary'
stóð gleiður á afturþilfarinu með
sjónauka undir handleggnum.
„Ég vona að lafðin hafi sofið vel.”
„Ákaflega vel, þakka þér fyrir,
hr. O’Leary,” svaraði Emma
hæversklega.
„Okkur miðar vel,” sagði for-
inginn, klappaöi ástúðlega á
lunninguna. „Við vorum í alla nótt
að dæla vatni — því sem flæddi inn
þegar við ventum. Ég hef aldrei
séð annað eins. Það flaut yfir
húfinn. Það tók okkur alla liðlanga
nóttina og allir lögðu sitt af mörk-
um, líka skipstjórinn. En skipið
tekur ekki inn mikið vatn núna og
siglir eins ogfugl.”
Eitthvað kom Emmu til að
segja: „Var Grant skipstjóri að
dæla vatni síðustu nótt? ”
„Það er rétt, frú. Grant skip-
stjóri biður aldrei neinn að gera
eitthvað sem hann myndi ekki
sjálfur fást við. Það eru ekki
margir skipstjórar í breska flot-
anum sem eyða fyrri hluta mið-
vaktar á skyrtunni við að hamast
á handfanginu á dælunni með
hinum mönnunum. Ég bið lafðina
forláts á samanburðinum.”
„Miðvaktinni, segirðu?” Emma
þagnaði snöggvast. „Hvenær væri
það, hr. O’Leary — fyrri hluti
miðvaktarinnar? Ég spyr af
einskærri — hm — forvitni.”
„Nú, frú mín, það er frá mið-
nætti og næstum til tvö,” svaraði
foringinn.
„Ég skil. Þakka þér fyrir, hr.
O’Leary,” sagði Emma.
Þegar hún fór aftur í rúmið tók
hún eftir því að úriö hennar, sem
hékk fyrir ofan koddann, var
nákvæmlega stundarfjórðung yfir
eitt. Hver svo sem elskhugi Suzie
hafði verið um nóttina var óhugs-
andi að hann hefði verið skipstjóri
Delaware. Eflaust hafði Grant
fengið sér hænublund áður en
hann fór niöur á skyrtunni til að
hjálpa við pumpuna. Það var
einkennilegt hvað þetta gladdi
hana því maðurinn skipti hana
engu og það snerti hana naumast
þó þjónustustúlkan hennar leyfði
42 ViKan 41. tbl.