Vikan - 15.08.1985, Page 23
Stjómunarstaða eða embætti væri
mjög við hæfi. Þú getur notið þín
vel í áhættuspili eöa gróðabralli,
en einungis á vissu tímaskeiði.
Ástalífið
Miðaldra fólk er bestu vinir þín-
ir. Sumarið er besti tími ársins.
Ekki er ósennilegt að þú giftist
aðila sem stendur þér hærra í
þjóðfélagsstiganum. Hjónabandið
verður hamingjusamt en afkvæm-
in gætu valdið vonbrigðum.
Heilsufarið
Ekkert sérstakt er að segja um
heilsuna en þú hefur gott af því að
ferðast.
Heillatölur eru 1 og 7.
17.
ÁGÚST
Skapferlið
Rólegur virðuleiki er frumein-
kenni lyndiseinkunnar þmnar. Þú
ert vel verki farinn og ábyggilegur
en of hlédrægur og hæverskur. En
þótt þú sért einlægur og þraut-
seigur ertu fálátur í framkomu og
heldur fólk oft að þú lítir svona
stórt á þig. Þeir sem þekkja þig
vita betur og þykir vænt um þig og
þú ávinnur þér virðingu. Temdu
þér meira sjálfstraust.
Lífsstarfið
Þótt þú sért vel verki farinn og
fjölhæfur áttu samt til að vera
ekki nægilega stefnufastur. En
hamingjan er þér hliðholl í fjár-
málum og á sviði viðskipta getui-
þú komið ár þinni vel fyrir borð,
sérlega í rekstri á eigin ábyrgð.
Þér hæfði vel að vinna lögfræði-
störf, að vera kennari eöa stjórn-
málamaður.
Ástalífið
Ástalíf þitt verður hamingju-
samt þótt þú giftist ekki snemma
á lífsleiðinni vegna tafa, svo sem
langrar sambúðar.
Heilsufarið
Heilsan er góð og batnar með
aldrinum.
Heillatölur eru8ogl.
18.
ÁGÚST
Skapferlið
Þú ert skarpgreindur og rökvís
og hefur liæfileika til að rýna í
hlutina. Vegna göfuglyndis, ósér-
plægni og kurteisi hefurðu óvenju-
lega heflaða framkomu. Þú ert
fagurkeri og hefur yndi af tónlist,
litum og hvers kyns fegurð.
Smekkurinn er fágaður og vand-
fýsinn en þú ert fremur íhalds-
samur og fastheldinn á gamlar
heföir.
Lífsstarfið
Obilandi kjarkur, sjálfstraust
og hæfni til að umgangast fólk
gera þig sjálfkjörinn stjórnanda.
Fólk af þinni gerð leitar í opinber
embættisstörf eða stórfyrirtæki.
Störf sem útheimta gáfur eöa lær-
dóm eru að þínu skapi, sérlega
lögfræöistörf.
Ástalifið
Þú ert einlægur og hollur vinum
þínum og ástvinum. Hjónabandið,
sem þú stofnar til seint á ævinni,
verður farsælt, svo fremi að maki
þinn sé nægilega sterkur og ein-
lægur til aö fullnægja lyndisein-
kunn þinni.
Heilsufarið
Þú ert hraustur og hefur sterk-
byggðan líkama en þó gæti verið
um einhverja blóðsjúkdóma að
ræða.
Happatölur eru 9 og 1.
19.
ÁGÚST
Skapferlið
Helstu persónueinkenni þín eru
örar og ákafar tilfinningar, glögg
athyglisgáfa og sterk þrá eftir
samræmi og fegurð. Þú ert ósér-
plæginn og göfuglyndur en vegna
persónuleikastyrks hneigist fólk
til að líta á þig sem stórbokka eða
óttast þig.
Lífsstarfið
Þú hefur yndi af völdum, for-
ystu og munaði. Þér hæfir best að
vera sjálfs þín húsbóndi eða hafa
völd og ábyrgð. Þú ert mjög form-
fastur og vísindalegur í hugsunar-
hætti og því líklegt aö þér græðist
fé. Að líkindum famast þér vel ef
þú leggur fé þitt í arðvænlegt fyr-
irtæki. Þú ert nærgætinn og
samúðarfullur við aðra, fljótur til
reiði en jafnfljótur til sátta og fyr-
irgefningar.
Ástalífið
Þú hefur ríka ásthneigð en ekki
er víst að þú festir ráð þitt á lífs-
leiðinni. Fólk af þínu tagi giftist
venjulega ekki fyrr en tiltölulega
seint á lífsleiðinni og hjónabandið
hefur venjulega töluverða óham-
ingju í för með sér. Ofrelsi og
þvingun eru þér sérstaklega móti
skapi en á hinn bóginn vilt þú
leggja stund á samhygð og gagn-
kvæman skilning.
Heilsufarið
Heilsan er að flestu leyti góð. Þó
skaltu ekki útiloka veiki sem gæti
stafað frá baki eða frá hjarta.
Heillatalan er 1.
20.
ÁGÚST
Skapferlið
Þú ert glaðlyndur og léttlyndur
og gefinn fyrir utanferðir og
skemmtanalíf. Næm kímnigáfa
þín og heillandi framkoma gera
þig mjög vinsælan. En vegna þess
hve sterkan persónuleika þú hefur
og allt að því tígulega framkomu
misskilur fólk gjarnan hvað býr
undir. Sumir halda að þú sért
kaldrifjaður og drýldinn þótt þú
sért í raun og veru göfuglyndur og
fullur samúðar. Þú ert skýr og
skipulegur í hugsun og lætur best
stööug athafnasemi.
Lífsstarfið
Þú átt örugga framtíð á sviði
verslunar og viðskipta en sérstak-
lega þó í starfi við stjómun eða
jafnvel fjölmiðlun. Velgengni í
fjármálum hefur í för með sér
hamingju í einkalífi. En þótt þú
sért metorðagjarn þarftu að
temja þér meiri þrautseigju og
stefnufestu.
Ástalífið
Þú ratar í mörg viðburöarík og
margbreytt ástarævintýri en óvíst
er hvort þú bindur trúss þitt á æv-
inni. Að líkindum verðurðu fyrir
óhamingju í ástalífinu en verði af
hjónabandi verður það ekki fyrr
en seint í lífi þínu, miðað við það
sem gengur og gerist.
Heilsufarið
Þú ert mjög sterklega byggður
en hjartað er ef til vill ekki hraust.
Sama máli gegnir um meltingar-
færin.
HeiUatölur dagsins em 2 og 1.
21.
ÁGÚST
Skapferlið
Þú hefur nokkuð margskipt
lundarfar. Annars vegar ertu
gjam til yfirráða, nokkuð ákafur
og einráður. Þú hefur óafvitandi
mikil áhrif á aðra og hefur aUt að
því segulmagnaöan persónuleika.
Á hinn bóginn ertu mjög greiðvik-
inn, alúölegur og hefur yndi af að
veita öörum.
Lífsstarfið
Þar eö þú ert aðlaðandi persóna
og hefur góðan smekk gengur þér
vel í daglegum störfum og lífi.
Velgengnin felur í sér möguleika
til aö verða vel ágengt og þú
kemst í samband við mikilsmeg-
andi fólk í þjóðfélaginu. Samt
skaltu varast að misnota þennan
aölaðandi persónuleika þinn.
Ástalífið
1 ástamálum og vináttu er hætt
við að ákafinn ráði meiru en vitið.
Mögulegt er að þú giftist oftar en
einu sinni en börn verða að líkind-
um fá. Þú ert mikill fjörmaður.
Heilsufarið
Hjartað og taugarnar eru veikl-
aðar. Gættu sérstaklega tauganna
og óeðlilegt streituálag skaltu
foröast.
Heillatölur eru 4 og 5.
33. tbl. Vikan 23