Vikan


Vikan - 15.08.1985, Síða 42

Vikan - 15.08.1985, Síða 42
Vinsælir leikarar TÖFFARINN CLINT EASTWOOD Á hvíta tjaldinu er andlit hans alltaf steinrunniö. Svipurinn breytist sjaldan og tilfinningar eru ekki til sýnis. Þegar Clint Eastwood lítur á andstæðinga sína liggur við að köld augun nægi til að hrekja þá á brott. Þetta er sú ímynd sem Clint Eastwood hefur skapað á leik- ferli sínum og hefur gert hann að vinsælasta kvikmyndaleikara sem nú er uppi. Nýlega kusu bandarísk ungmenni hann þá persónu sem þau vildu hvað helst líkjast og skaut hann sjálfum Ron- ald Reagan aftur fyrir sig. Það má segja að Clint Eastwood hafi sjálf- ur þróað þessa persónu. Fyrst var það í spaghettivestrunum, síðan sem lögreglumaðurinn Dirty Harry. Gleymdur er ungi saklausi drengurinn Rowdy Yates sem var í sjónvarpsþáttunum Rawhide er Mögnuð sakamálamynd: ★★★★ Maraþonmaðurinn (Marathon Man) Leikstjóri: John Schlesinger Aðalhlutverk: Dustin Hoffmain, Laurence Olivier, Roy Scheider og Marthe Keller. Sýningartimi: 126 min. Ég held að með tímanum eigi myndin Maraþonmaðurinn eftir að verða talin meðal klassískra sakamálamynda. Hún sameinar gott handrit, góðan leik og er umfram allt mjög spennandi. Dustin Hoffman leikur há- skólastúdent sem notar allar sín- ar frístundir til að hlaupa. Hann á bróöur sem kemur í heimsókn til hans og er hann myrtur skömmu seinna. Á bak við morð- ið er gamall nasisti sem býr í Suður-Ameríku en hefur mikil áhrif. Hann hafði með aðstoð annarra safnaö auðæfum á stríðstímum og eru þau í banka- hólfi í New York, en þar gerist myndin aö mestu leyti. Nasistinn heldur að háskóla- stúdentinn hafi komist á snoðir um bankahólfið en bróðir hans hafi í raun verið CIA-maður sem var á hælum nasistans. Kostar þetta mikinn eltingaleik um götur New York borgar og verð- ur ekki farið meira út í sögu- þráðinn sem gerist sífellt meira spennandi þegar líður á mynd- ina. Þaö eru úrvalsleikarar í öllum helstu hlutverkunum. Ber þar hæst Laurence Olivier í hlut- verki nasistans. Hann er virki- lega ógnvekjandi þegar hann mundar tannlækningatæki sín í pyndingarskyni. Dustin Hoff- man er einnig góður sem há- skólastúdentinn sem minnst veit en lendir í miðri atburðarás sem er miður þægileg fyrir hann. Maraþonmaðurinn er galla- laus sakamálakvikmynd sem engum ætti að leiðast yfir. Ovægin réttarhöld ★ ★ Meiðyrði (Case of Libel) Leikstjóri: Eric Till Aðalhlutverk: Edward Ashner, Daniel J. Travanti og Gordon Pinsent Sýningartími: 92 mín. Meiðyrði er fyrir þá sem hafa gaman af réttarhaldamyndum. Myndin, sem er upprunalega gerð fyrir sjónvarp, fjallar um réttarhöld sem spinnast út af meiðyröum. Boyd Bendix (Daniel J. Travanti) er frægur blaöamaður sem er óvæginn við andstæðinga sína og telur sig yfir alla hafinn og er sjálf- skipaður gæslumaður siðferöis í Bandaríkjunum. Hann hefur ráðist harkalega í skrifum sínum að fyrrverandi vini sínum, þekktum stríðsfrétta- ritara, Dennis Corcoran (Gordon Pinsent), og kallað hann öllum illum nöfnum. Cor- coran ákveður að fara í mál við Bendix þótt forsendur séu hæpnar. Hann fær til liðs við sig þekktan lögfræðing, Robert Sloane (Edward Ashner). Aðalsvið myndarinnar er síðan réttarsalurinn, hvernig réttarhöldin þróast frá því að vera vonlaus barátta í smá- vonarglætu um sigur. Og eru átök mikil í töluðu máli. Myndin er ágætis afþreying þótt betri réttarhaldamyndir hafi verið gerðar. Leikarar standa sig með prýði. Daniel J. Travanti er vel þekktur hér- lendis úr myndaflokknum Hill Street Blues. Edward Ashner er einnig þekktur sjónvarpsleikari vestanhafs. Handritiö þolir kannski ekki nákvæma nafla- skoðun, en það gerir lítið til. Aðalánægjan er að fylgjast með háfleygum orðum og skítkastinu í réttarsalnum. ACASEOF LIBEL DANIEL J. TRAVANTI EDWARD ASNER 'í4A Ot ti A t yf ú&jA, Gttt mAHÓf fJMÍiA UM A *«M KrfKtM 0*> ttitf 42 Vikan 33. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.