Vikan


Vikan - 29.08.1985, Page 9

Vikan - 29.08.1985, Page 9
\3 ÍNÆSTUVIKU: Golf: Get bæði unnið undir pressu og mjög mikið heitir viðtaliö við Sigrúnu Stefánsdóttur fréttamann sem birtist í næstu VIKU. í viðtalinu ræðir Sigrún meðal annars um starf sitt, hvernig það samrýmist einkalífinu, og um framtíðaráform. dægradvöl almúgamanna sem auðkýfinga Fyrirhugað er að kynna nokkrar íþróttagreinar öðru hverju á næstunni í Vikunni. Þetta er gert til hægðarauka fyrir okkur sem erum sífellt á leiðinni aö gera eitthvað markvisst í því að byggja upp hrörnandi líkama. Upphaf m sjónvarps Lífsreynsla: Við fengum nokkrar skemmtilegar myndir frá upphafsdöguin sjónvarpsins. Þar má sjá mektarmenn nútímans með unglinga- bros og jafnvel bítlahárkollur. Grímur lætur rigna hjá Gaddafí - Lífsreynslufrásögn Gríms Jónssonar frá ísafirði snýst um það er hann vann í Líbýu við þá heldur óvenjulegu iöju að búa til rign- ingu. Grímur segir álit sitt á Líbýumönnumog verklegum fram- kvæmdum þar umbúðalaust. Meðal annars efnis má nefna kynningu á skotheldum skyndi- réttum, sem heldur áfram, spurningaleik, þar sem menn geta komÍSt að því hvort þeir eru með stáltaugar eða músarhjarta, og skemmtilega teiknaða Vikustundaskrá fyrir börnin því að nú eru skólarnir að byrja. ÚTVEGSMENN Handfæravindan frá DNG hefur nú sýnt þaö og sannaö aö hún er sú fullkomnasta og besta sem fáanleg er í heiminum í dag. Einn maður með 2 vindur fiskar auðveld- lega 3 tonn af fiski á dag. Meö þessum gífurlegu afköstum ætti hver maöur aö geta séö aö hagstæðari kaup er vart hægt aö hugsa sér. DNG handfæravindan er al- sjálfvirk og meö beinu drifi, enga kúplingu eöa gír og er sérstaklega einföld og örugg í notkun. 2ja ára ábyrgö. Veröiö er ótrúlega hagstætt, eða 2—4 tonn af fiski! Hafið samband og kynnið ykkur kjörin. SÍMI 96-26842 AKUREYRI 35* tbl. Víkan 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.