Vikan - 29.08.1985, Blaðsíða 33
ast atram uns hún mœtir Norðlinga-
fljóti og heitir upp frá þvi Hvítá.
rammgöldróttur þó aö ég trúi ekki
á fjölkynngi þessa forföður míns í
fimmta lið og hef því mínar eigin
skýringar í handraöanum.
Séra Snorri bjó hér í móðuharð-
indunum þegar margt aðkomufólk
flúði sveitina að austan vegna
hungursneyöar. Nógur matur var
til á Húsafelli og séra Snorri var
hjartagóður maður. Hann vék því
oft lítilræði að þessu umkomu-
lausa flökkufólki en fór leynt með
og sagði heimilisfólki að líklega
hefðu hinir ýmsu draugar komist í
búrið.
Svo er þaö líka sannað mál að
sjálfur guðsmaðurinn hélt dæmda
sakamenn á laun. Fjalla-Eyvind-
ur bjó í heilan vetur í Þjófakróki
við skíðalandið í Langjökli hér
skammt undan og naut verndar
séra Snorra. En Eyvindur launaði
illa greiðann og stal kvígu frá
prestinum og velgjörðarmanni
sínum. En á móti kom að Fjalla-
Eyvindur smíðaöi og skildi eftir
sig skyrdall og ausu og voru þau
áhöld notuð fram á okkar daga.
Á Húsafelli er flugvöllur og leiguflug. í flugskylinu kennir margra grasa.
Hár stikar Kristleifur innan um tvo jeppabíla og flak af flugvél sem brot-
lenti með tvo breska menn á Eiríksjökli. Synir Kristleifs tóku þátt i
björgunarleiðangrinum ásamt fleirum og komu flakinu til byggða. Björg-
unarmenn hétu: Þórður, Bergþór og Þorsteinn flugmaður Kristleifssynir,
Snorri Kristleifsson á Sturlureykjum og Snorri Jóhannesson, Snorrasonar
flugstjóra, bóndi á Augastöðum i Hálsasveit, einnig tíkin Tinna.
Þessir eiga
sumarbústaði
í Húsafells-
landi:
1. Sveinafélag málmiðnaðarmanna á
Akranesi.
2. Starfsmannafólag flugumsjónar-
manna.
3. Starfsmannafélag Sparisjóðs Siglu-
fjarðar.
4. Verkstjórafélag Akraness.
5. Sókn í Reykjavík, 3 bústaðir.
6. Starfsmannafélag Sauðárkróksbœj-
ar.
7. Ríkharður Magnússon, Ólafsvik.
8. Verkakvennafélagið Framsókn í
Reykjavík, 2 bústaðir.
9. Leifur Jónsson, Rifi.
10. Verslunarmannafélag Akraness.
11. Flugfreyjufélagið, 2 bústaðir.
12. Sjómannafélag Reykjavikur.
13. Verslunarmannafélag Reykjavikur, 8
bústaðir.
14. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrenn-
is, 2 bústaðir.
15. Marinella Haraldsdóttir, Reykjavik.
16. Verkakvennafélag Kefiavikur og
Njarðvikur, 2 bústaðir.
17. Þorvaldur Halldórsson, Garði.
18. Ragnar Jóhannsson.
19. Sveinn Gústavsson, veitingamaður í
Húsafelli.
20. íslenskir aðalverktakar, 2 bústaðir.
21. Iðnsveinafélag Suðumesja.
22. Starfsfólk i veitingahúsum, 2 bú-
staðir.
23. Framtiðin í Hafnarfirði.
24. Kristján Linnet, Hafnarfírði.
25. Birgir Gunnlaugsson, Reykjavik.
26. Guðrún Davíðsdóttir, Kópavogi.
27. Verkalýðs- og sjómannafélag Gerða-
hrepps.
28. Stálsmiðjan hf. í Reykjavik, 2 bú-
staðir.
29. Sigurður Steinsson, Gufuskálum.
30. Hlif i Hafnarfirði.
31. Sveinn Bjömsson, Garði.
32. Aðstoðarfólktannlækna.
33. Verkalýðsfélag Stykkishólms.
34. Bólstaðurhf., Reykjavík.
35. Starfsmannafólag Málningar hf.,
Kópavogí.
36. Sölvi Sigurðsson, Kópavogi.
37. Verslunarmannafélag Vestmanna-
oyja.
38. Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga.
39. Starfsmannafélag Sparisjóðs Kópa-
vogs.
40. Sjómanna- og verslunarmannafélag
Grindavikur.
41. Gylfi Þorsteinsson, Garði.
42. Verslunarmannafólag Árnossýslu.
43. Hafsteinn Baldvinsson, Reykjavik.
44. Verkstjórafélag Suðurnesja.
45. Stjórnendur Slökkviliðsins á Kefla-
vikurflugvelli.
46. Starfsmannafélag Iðnaðarbankans,
3 bústaðir.
47. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, 4
bústaðir.
48. Starfsmannafélag Hagkaups, 2
bústaðir.
49. Ómar Haffjörð, Hafnarfirði.
Stund milli striða. Kristleifur kastar mœðinni í flugskýlinu á Húsafelli.
Hann man timana tvenna frá þvi að búverk voru unnin hér með handafli
eða hestafli en nú hafa Húsfellingar beislað tæknina með eigin rafveitu og
flugvélum.
Sjálfur hleypti ég oft skyr í dallin-
um en Eyvindardallur og ausan
voru síðar gefin á Þjóðminjasafn-
ið.”
Brotin Húsafeliskirkja
og endurreist
En þrátt fyrir efasemdir Krist-
leifs um þennan langa-langa--
langafa sinn þá segir sagan að
karlinn hafi kveðið niöur áttatíu
og einn draug í túnfætinum á
Húsafelli í svokallaöri Drauga-
rétt. En það má segja að með mat-
argjöfum séra Snorra til veg-
lausra í móðuharöindunum hafi
fyrsti vísirinn að ferðaþjónustu
orðið til á Húsafelli. Kristleifur
helduráfram:
— Séra Galdra-Snorri
kvað niður áttatíu og
einn draug í Drauga-
rétt í Húsafellstúni.
„Presturinn Galdra-Snorri
Björnsson bannaði afkomendum
sínum að skíra í höfuðið á sér. Son-
ur hans virti hins vegar bannið að
vettugi og skírði son sinn Snorra.
Honum farnaðist ekki vel og reif
Húsafellskirkju til grunna árið
1830 upp á sitt eindæmi. Seinna
fyrirfór hann sér og var talið að
kirkjubrotið hefði legiö á honum
eins og mara.
Löngu seinna er nefndur til sög-
unnar maður að nafni Sigmundur
Sveinsson og er hann bróðir Theó-
dóru veitingakonu við Hvítárbrú.
Hann kemur aö máli viö þáver-
andi biskup íslands, herra Sigur-
geir Sigurðsson, sem er faðir nú-
verandi biskups. Sigmundur segir
að Snorri þessi vitji sín í draumum
og sé illa haldinn af vítiskvölum
og vilji láta reisa kirkju strax á
Húsafelli. Hafist var handa viö
kirkjusmíðina árið 1945 og lagði ég
sjálfur þar hönd á plóginn.
En Húsfellingar hafa látið sér
hrakfarir Snorra kirkjubrjóts að
kenningu verða og verið ragir við
að skíra í höfuöið á prestinum og
35. tbl. Víkan 33