Vikan - 02.04.1987, Blaðsíða 22
HELEN
MDRKEN
Helen Mirren i nýjustu kvikmynd sinni, The Mosquito Coast.
Únnur rússnesk kona, geimfari i
2010.
í fyrstu kvikmyndinni, Age of Consent, ásamt James Mason.
Hér ræöst Helen Mirren á listaverk af mikilli heift í
eftir Ken Russell.
Messiah
Mirren lék i hinni umdeildu kvik-
mynd Caligula.
22 VIKAN 14. TBL
Fáar leikkonur njóta jafn-
mikillar virðingar og breska
leikkonan Helen Mirren. Hún
hefur nú i seinni tíð æ meira
snúið sér að kvikmyndum eft-
ir að hafa verið ein dáðasta
leikkona í London um
margra ára skeið. Þar lék hún
öll helstu kvenhlutverk
Shakespeares með góðum ár-
angri og urðu margir til að
kalla hana eina allra bestu
sviðsleikkonu seinni tíma.
Helen Mirren er rúss-
neskrar ættar. Afi hennar var
í her keisarans á sinum tíma
en flúði til Englands þegar
pabbi hennar var tveggja ára.
Helen fæddist í London og
hlaut kaþólskt uppeldi. Hún
ákvað snemma að verða leik-
kona og stefndi ótrauð á það
markmið. Þótt hún hafi fyrst
leikið í kvikmynd 1968 hefur
hún aðeins leikið í tólf kvik-
myndum hingað til. Ogí
mörg ár kom hún ekki nálægt
myndavélinni nema í upptök-
um á leikritum fyrir sjónvarp.
Það var sakamálamyndin
The Long Good Friday, þar
sem hún lék á móti Bob
Hoskins, sem varð til þess að
henni fóru að berast tilboð
um leik í kvikmyndum.
í kjölfarið fylgdu White
Nights, 2010 og breska
myndin Cal, sem er hennar
besta kvikmyndahlutverk til
þessa, enda fékk hún verð-
laun sem besta leikkonan í
Cannes fyrir það hlutverk.
Tvær nýjustu myndir henn-
ar eru Hevenly Pursuits,
gamanmynd þar sem hún
leikur á móti Tom Conti, og
The Mosquito Coast, nýjasta
mynd Peters Weir. Þar leikur
hún eiginkonu Harrison
Ford.
Einkalíf Helen Mirren hef-
ur oft verið blaðamatur. Villt
líf og vinstri sinnaðar skoðan-
ir hneyksluðu marga á árum
áður. Hvað sem því líður er
enginn í vafa um að Helen
Mirren er einhver albesta
leikkona sem sýnir sig á hvíta
tjaldinu í dag.
Myndbönd
NO DEPOSIT NO RETURN ★★
Leikstjóri: Norman Tokar.
Aöalleikarar: David Niven, Darren McGavin og Don Knotts.
Sýningartími: 106 mín. - Utgefandi: Bergvík hf.
No Deposit No Return er gamanmynd frá Walt Disney fyrirtækinu eins
og þær gerast bestar. Raunveruleikinn er settur til hliðar fyrir saklausu
gríni og skemmtun. David Niven leikur auðugan afa tveggja krakka, stráks
og stelpu, sem eiga að eyða páskahelginni hjá honum. Þau vilja frekar fara
til móður sinnar og stinga af með tveimur lánlausum innbrotsþjófum. Af-
inn hefur fylgst með því sem er að gerast. Þegar hann hefur fullvissað sig
um að krakkarnir séu ekki í hættu er hann alveg sáttur við að vera laus við
þá og leyfir þeim að vera í sambúð með innbrotsþjófunum... Margt fer
þó öðruvísi en ætlað er. Móðir barnanna birtist og er ekki ánægð með
kæruleysi afans gagnvart börnunum og lögreglan kemst einnig í spilið.
Allt endar þó vel eins og til var ætlast. No Deposit No Return er hin besta
fjölskylduskemmtun.
THE JEWEL OF THE NILE ★ ★
Leikstjóri: Lewis Teague.
Aðalleikarar: Michael Douglas, Kathleen Turner og Danny DeVito.
Sýningartími: 101 mín. - Útgefandi: Steinar hf.
Eftir miklar vinsældir Romancing the Stone þótti sjálfsagt að gera fram-
haldsmynd um rithöfundinn Joan Wilder og ævintýramanninn Jack Cotton.
Jewel of the Nile er afraksturinn og satt best að segja veldur myndin nokkr-
um vonbrigðum. Ekki er sama leikgleðin og var í fyrri myndinni og munar
mest um að hinn smávaxni Danny DeVito, sem sló svo eftirminnilega í gegn
í Romancing the Stone, er ámóta ófyndinn hér og hann var fyndinn þar.
Sögusviðið er nú Afríka í stað Suður-Ameríku. Wilder fær tilboð sem hún
getur ekki hafnað, enda eru Joan og Jack að verða leið hvort á hvoru í
byrjun myndarinnar. Ástin blossar samt aftur þegar fer að líða á myndina
og Joan sér að hún hefur farið úr öskunni í eldinn. Mikið er lagt í The Jewel
of the Nile og í myndinni eru nokkur stórfengleg atriði. Gallinn er bara sá
að handritið er frekar slappt og geta hinir ágætu leikarar lítið hjálpað til.
EMANON ★
Leikstjóri: Stuart Paul.
Aðalleikarar: Stuart Paul, Cheryl M. Lynn og Jeremy Miller.
Sýningartimi: 92 min. - Útgefandi: Háskólabíó.
Jason er fatlaður drengur sem hefur misst föður sinn. Móðir hans hefur
erft mikið tískufyrirtæki sem hún stjórnar frekar af áhuga en kunnáttu. Á
daginn lætur Jason einkabílstjóra keyra sig um rónagötur New York borg-
ar. Þar tekur hann eftir róna einum sem hjálpar nauðstöddum oft, að því
er virðist með kraftaverkum. Róninn nefnist Emanon og Jason vingast við
þennan dularfulla mann. Fljótt er áhorfandanum ljóst að kraftaverkin eru
eins og lýst er i Biblíunni að frelsarinn hafi gert. Hér er það sem aðstandend-
ur myndarinnar komast í vandræði með söguþráðinn eftir ágæta byrjun.
Látið er að því liggja að Emanon sé Kristur endurborinn. Þrátt fyrir öll
góðverkin og kraftaverkin verður þessi Kristsímynd lítið annað en góðlátleg-
ur hippi sem vill öllum vel. Emanon er mynd með boðskap. Gallinn er bara
sá að í vandræðalegu handriti kemst hann ekki til skila.
UM HÁNÓTT ★
Leikstjóri: Daniel Haller.
Aðalleikarar: Mike Connors, David Birney og Christine Belford.
Sýningartimi: 105 mín. - Útgefandi: Laugarásbíó.
Miskunnarleysi og spilling lögreglunnar í Bandaríkjunum er þema Um
hánótt (High Midnight). Nokkrir fikniefnalögreglumenn myrða konu og
barn þegar þeir í misgripum gera árás á hús saklausrar fjölskyldu. I stað
þess að viðurkenna mistökin ákveður yfirmaður þeirra að láta sem ekkert
sé og býður jafnframt aðstoð við að hafa uppi á morðingjunum. Tony
Gianetti, sá er varð fyrir því að kona hans og barn voru myrt, grunar að
ekki sé allt sem sýnist með störf lögreglunnar. Hann ákveður að rannsaka
málið sjálfur og kemst að hinu sanna. Snýst nú myndin upp í hefndarað-
gerðir Tonys. Það hefði sjálfsagt mátt gera ágæta spennumynd úr efniviðn-
um. Hér tekst það ekki. Mótsagnirnar eru of margar og leikur slæmur,
enginn verri en David Birney sem leikur Tony. Þrátt fyrir allar hörmungarn-
ar, sem hann lendir í, nær hann aldrei samúð áhorfandans.
14. TBL VIKAN 23