Vikan - 02.04.1987, Síða 38
Vfglundur og eiginkona hans, Sigurveig Jónsdóttir, fréttamaöur á Stöö 2.
Vallá féll frá. í kjölfar þess var haft samband
við mig og ég beðinn um að taka við fram-
kvæmdastjórn fyrirtækisins. Og hér hef ég
verið síðan.“
Umræða á villigötum
Það er óhætt að fullyrða að steinsteypa
hefur verið íslendingum nokkuð hugleikin
seinni ár. Hins vegar hefur hún valdið sumum
búsifjum og skemmdir hafa gert vart við sig
í þessu undraefni. Við hvern er að sakast?
„Ég held að umræðan í dag sé á villigötum.
Vandræðamálin i steinsteypumálum voru alk-
alískemmdirnar á sínurn tíma. Þau vandamál
er búið að leysa. Steinsteypuframleiðslan í dag
er mjög góð og örugg. Hins vegar koma
margir að þessari framleiðslu og þetta er ekki
bara spurningin um að steypustöð vandi sína
framleiðslu. Þetta er spurning urn miklu fleiri
þætti. Við verðum að gera okkur grein fyrir
því að hér á Suðvesturlandi er eitthvert erfið-
asta veðrunarálag í heiminum á mannvirki.
Við verðum að hætta að storka náttúruöflun-
um og gera ráð fyrir þessu strax í vali réttrar
steypu. Það verður líka að nota þetta efni
skynsamlega. Það verður að skoða þátt eins
og uppbyggingu á útveggjum. Þeir hafa verið
að þynnast undanfarið. Sumir segja að það
sé vegna þess að ég vilji selja rneiri steypu en
ég er þeirrar skoðunar að við verðum að hafa
útveggina þykkari og með minni járnabind-
ingu. Niðurlagning steypunnar er rnjög
misjöfn. „Selvbyggeri-tíminn" var mjög slærn-
ur. Menn, sem aldrei höfðu komið nálægt
steypu, voru að eiga við þetta. Ég er að vona
að þessi tími sé liðinn. Við eigum ekki að
standa þannig að húsbyggingum að menn séu
að þessu á kvöldin, urn helgar og á nóttunni
með fjölskyldunni."
Víglundur telur að ástæða sé til að setja
harðari reglur um val á steyputegundum því
brögð séu að því að ekki sé notuð rétt steypa
þegar verið er að byggja mannvirki.
Fjölskyldumál
Víglundur er rúmlega fjörutíu og þriggja
ára gamall og ólst upp í Reykjavík. Hann
flutti á Seltjarnarnes, fyrst 1968, aftur til
Reykjavíkur, en hefur búið á Seltjarnarnesi
frá 1972.
„Ég er stúdent frá Verslunarskólanum 1964
og útskrifaðist sem lögfræðingur 1970,“ segir
Víglundur sem aðeins starfaði sem lögfræð-
ingur í sex vikur.
Hann var mikið í íþróttum á sínum tíma,
spilaði með KR í fótbolta en hætti þegar há-
skólanámið byrjaði og hann eignaðist fjöl-
skyldu. „Það var nóg að gera að hugsa um
nám og fjölskyldu."
Víglundur er kvæntur Sigurveigu Jónsdótt-
ur, fréttamanni á Stöð 2. Þau eiga þrjá stráka.
En getur ekki verið erfitt að vera kvæntur
fréttamanni þegar verið er að sentja og reynt
er að halda öllu leyndu fyrir fréttamönnum.
„Það er nú oftast þannig að þegar ég er að
koma heim af samningafundi síðla nætur þá
er konan mín sofandi og ég er svo steinsof-
andi þegar hún vaknar til að fara í vinnunna
næsta morgun. Nei, það hefur nú ekki reynst
erfitt. Henni þykir það kannski erfitt ogkvart-
ar undan því að það sé erfiðara að ná út úr
rnér upplýsingum heldur en flestum öðrum
samningamönnum, báðum megin við borðið.
Það má segja að það hafi myndast sú sam-
skiptaregla hjá okkur báðum að hjónabandið
er hjónabandið og vinnan er vinnan og við
blöndum því ekkert saman."
38 VIKAN 14. TBL