Vikan


Vikan - 29.10.1987, Blaðsíða 18

Vikan - 29.10.1987, Blaðsíða 18
Hróbjartur Lúðvíksson skrifar: Allar græjur dagsins önn Ég þurftí bráðnauðsynlega að ræða við einn kunningja minn um daginn sem rekur iðnfyrirtæki. Við mæltum okkur mót á skrifstofunni hans en það var ekki nokkur möguleiki að ræða við hann því símarnir hringdu látlaust. Annar var tengdur firá skiptiborðinu en hinn var beinn sími. Þar að auki var mikill erill og virtust margir eiga erindi við hann kunningja minn, bæði starfsmenn og viðskiptavinir sem flestir óðu inn án þess að banka. Samræður okkar urðu því slitróttar og mér gekk seint, eða öllu heldur alls ekki, að ljúka erindi mínu. Þegar hann kunningi minn heyrði að erindi mitt væri brýnt trúnaðarmál stakk hann upp á því að ég kæmi með sér á bíln- um því hann þyrfti í snarheitum að ná í banka. Yfirleitt gerir hann kunningi minn allt í snar- heitum. Hann er einn af þessum ungu uppum sem setja svo mik- inn svip á viðskiptalífið og borgarbraginn. Hann hefur æðislega mikið að gera og er yfirleitt alltaf á fúllri ferð. Bissnissinn gengur vel, segir hann, en hann kvartar oft yfir blankheitunum. Yfirleitt byrjar hann á því að segja mér hvað hann hafi mikið að gera og síðan hvað hann er blankur, því hann á svo mikið útistandandi og bankarnir eru svo erfiðir, segir hann. I þetta sinn átti ég brýnt erindi við hann kunningja minn og ætlaði því að hafa frumkvæði í samræðunum — ef ég kæmist að og hann gæti hætt að tala um sínar annir og erfiðleika. Við snöruðum okkur upp í nýja fjórhjóladrifna Pajero-bíl- inn hans sem hann keypti í fyrrahaust á kaupleigusamningi. Slíkir bílar eru nefnilega þeir einu sem hæfa manni í hans stöðu, fræðir hann mig á hann vinur minn. Reyndar tók ekki betra við þegar við vorum sestir upp í nýja bílinn, því þrátt fyrir yfir- lýst blankheit og greiðsluerfið- leika, þá hafði hann vinur minn getað keypt sér farsíma. Hann sýnir mér með miklum fjálgleik hvernig þessi bráðnauðsynlegu tæki geti geymt símanúmer og lagt þau á minnið. Við vorum rétt búnir að spenna á okkur beltin þegar farsíminn byrjaði að láta í sér heyra. Fleiri símtöl tóku við en ekki var allt skrafið um bissniss. Kunningi minn ákvað í gegnum farsímann að bregða sér á rjúpnaskyttirí um næstu helgi. Það var kollega hans sem var með frábæra hugmynd um hvernig eyða skyldi helginni við veiðar. Og nú ganga menn helst ekki til rjúpna, því að þó að hollt sé að ganga, þá er miklu hagkvæmara að fara á þessum nýju fjórhjólum sem fara næst- um hvað sem er. Það vildi svo heppilega til að hann kunningi minn fékk sér eitt svoleiðis í fýrra. Og hann lýsir fyrir mér hvað hann gerði hagkvæm kaup á hárréttum tíma. Það er sko klassi yfir því að fara á skyttirí á fjórhjóli. Ég fékk til viðbótar smá fyrir- lestur um hollustu og útilíf. Að vísu ganga menn ekki mikið við veiðar á fjórhjóli. Hann kunn- ingi minn virtist lesa hugrenn- ingar mínar og efasemdir því hann bætti þegar við, að hreyf- ingarleysið bætti hann sér upp í golfi og svo auðvitað í heilsu- rækt maður. Alltaf tvisvar í viku í heilsurækt, alveg bráðnauðsyn- legt fýrir mann í hans stöðu. Við vorum komnir að bankan- um án þess að ég hefði fengið tækifæri til að ræða erindi mitt við hann. Ég reyndi að sýna still- ingu og þolinmæði. Kunningi minn bölvaði af- greiðslunni í bankanum um leið og hann settist upp í bílinn aftur. Þær skilja bara ekkert þessar stelpur og halda bara að maður hafi ekkert að gera. Um leið og hann hafði með sínu dæmigerða fasi fjargviðrast um afgreiðsluna í bankanum skipti hann skyndilega um um- ræðuefhi og varð dolfallinn yfir kaupæðinu í kvenfólkinu, og veistu hvað, sagði hann, held- urðu að eiginkonan hafi bara ekki upp á eindæmi pantað vatnsrúm. Hann hafði lofað að fara og líta á það ef hann hefði tíma. Þessar konur skilja sko ekki hvað menn hafa mikið að gera og bisnissinn verður auð- vitað að ganga fýrir. Já, og svo lofaði ég að fara með vídeóið í viðgerð, sagði hann. Og svo vantaði víst batterí í nuddpúð- ann. Þessar konur eru alveg ósjálfbjarga. Ég reyndi enn að sýna þolin- mæði og fannst enn ekki alveg rétti tíminn til að brydda upp á erindi mínu. Hann vinur minn fór að segja mér ffá spilaklúbbnum sínum en þeir spila alltaf bridds kunn- ingjarnir einu sinni í viku. Bráð- skemmtilegt og svo er nauðsyn- Iegt að slappa af, skilurðu, fyrir mann í minni stöðu. Þetta virtist vera notalegur spilaklúbbur. Þeir tóku sig til í fyrrahaust og fóru á snjósleðum yfir hálendið. Geysigóð og spennandi .ferð. Þeir fjárfestu nefnilega í snjó- sleðum spilafélagarnir. En það hefúr Iítill tími gefist til að fara í fleiri snjósleðaferðir því það hefur verið svo mikið að gera. Og svo líka það að snemma í vor fengu þeir sér spíttbát, einn svona Sóma-bát með 120 hest- afla vél. Alveg hörkufleyta sem liggur eins og fjöl á 20 sjómílun- um. Það er nefnilega alveg nauðsynlegt að slappa af öðru hvoru. Það er allt í lagi að skreppa jafhvel út fyrir Garð- skaga þegar menn eru með far- síma í farteskinu. Spilafélagarnir höfðu að vísu ekki oft tíma til að fara á skak en náðu því þó að fara nokkrum sinnum og ná í soðið. En svo byrjaði laxveiðin og það var í ekki hægt að breyta veiðidögun- um í Grímsá. Og svo kórónaði konan allt saman því hún heimt- aði að leigja sumarhús í Hol- landi á sama tíma og vinkonurn- ar í saumaklúbbnum. Þarna sérðu, sagði vinur minn, að það þarf mörgu að sinna. Það er bæði bissnissinn, félagarnir og svo þarf auðvitað að hafa eiginkonuna góða. Ég beið enn eftir að koma að erindi mínu en gat ekki stillt mig um að vera svolítið mein- fýsinn fyrst og spurði hvort hon- um hefði aldrei dottið í hug að fá sér hesta. Og viti menn, hon- um hafði meira en dottið það í hug, því það voru nefhilega þrír af hans allra bestu kúnnum sem áttu gæðinga saman í hesthúsi og ríða stundum út um helgar. Og svo eru það hestamótin maður, þau eru víst æðisleg, svaka fjör. Og vinur minn lýsti fýrir mér hvað það væri nauð- synlegt að vera í sambandi við réttu mennina. Hann kunningi minn var víst búinn að gleyma því að ég ætl- aði að bera upp við hann brýnt erindi. En svei mér þá, ég held ég verði að láta það bíða þangað til næst, enda var hann að flýta sér á skrifstofúna aftur, því dam- an við símann var búin að hringja í farsímann til að segja honum að það biði eftir honum áríðandi telex frá Þýskalandi. Og svo beið hann eftir peninga- greiðslum og afgreiðslu í bank- anum því hann átti eftir að redda nokkrum víxlum á síðasta degi fyrir lokun. Ég stóð hugsi við bílinn og horfði á hann vin minn geysast inn á skrifstofuna sína með nýju stresstöskuna með talnalásnum og gat ekki annað en dáðst að því hvað nýju fötin frá Sævari Karli fóru honum vel. Það var líklega munur að vera uppi nú á dögum þrátt fyrir amstrið og annríkið. Eg gat ekki annað en hugsað til þess hvort ég væri á rangri hillu og hefði misst af einhverju ... en nú þarf ég að fara að flýta mér. 18 VIKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.