Vikan - 29.10.1987, Síða 46
HHÍÍiö
■iiiiiiiiiiiiiii
iiiiiliilliiiiiiii
411 fk; 1
■ - ■ ■ n iii lr
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
BÍLAR /
Hann er tröllvax-
inn Broncoinn
hans Gylfa
Pústmann og
snáðinn stakk
sér vandræðalaust
undir stuð-
ara hans. Dekkin
eru 48 tonimur
að stærð, en
undir venjuleg-
um fjölskyldu-
bílum eru
13-14 tommu
dekk.
Tæplega níu þúsund sýningargestir litu á sýningu Ferðaklúbbs-
ins 4x4 í Reiðhöllinni, enda jeppaeign landans fræg.
Fjórhjólafákar
í Reiðhöllinai
Risadekk og gljáandi jeppar
fylltu hvem krók og kima á
jeppasýningu Ferðaklúbbsins
4x4 í Reiðhöilinni á dögun-
um. Klúbburinn hélt þá fjár-
öflunarsýningu á 55 farartækj-
um sem komu fýrir augu á ní-
unda þúsund gesta.
Þarna gat á að líta gamla og nýja
jeppa, sem flestir eru í eigu klúbb-
meðlima sem ferðast um fjöll og
firnindi allan ársins hring. Sumir
jeppanna voru svo háir að litlir
fjölskyldubílar hefðu sjálfsagt
komist fyrir undir þeim. Sumir
jeppaeigendur hugsuðu greinilega
um að hafa útlitið sem best, króm
og gljái réðu ríkjum, á meðan aðrir
hugsuðu meira um að þeir virkuðu
þegar á reyndi í torfærum. Báðar
tegundir jeppaeigenda skildu sátt-
ir við sitt og bíða sjálfsagt spenntir
eftir snjókomu og vetri. Þá hefst
gamanið fyrir alvöru.
Nýir og gamlir torfærumeistarar kepptu á fjarstýrðum jeppum í
torfæruakstri. Veltur og aðrar hefðbundnar keppnislistir litu
dagsins ljós að venju, þó jeppamir væru í minna lagi. Frá
vinstri: Bergþór Guðjónsson, margfaldur íslandsmeistari, Ben-
edikt Eyjólfeson fyrrum kvartmílu- og torfeerukempa, Gunnar
Hafdal nýkrýndur íslandsmeistari í flokki óbreyttra jeppa og
Guðbjöm Grímsson meistari í sérútbúnum flokki, ekki leik-
fangajeppa heldur alvöm ...
46 VIKAN