Vikan - 09.08.1990, Síða 14
TEXTI: ÓLAFUR GEIRSSON
SKRIFSTOFU- OG RITARASKOLISTJORNUNARFELAGSINS:
OPNAÐIÞEIM DYR
Menntun er orð dagsins.
Þeim fækkar óðum, mögu-
leikunum sem ómenntaðir
einstaklingar hafa til
starfa, svo ekki sé talað
um fjölbreytt og áhugaverð framtíðarstörf.
Framboð á menntun hefur aukist hér á
landi á síðustu árum og nú er orðið auð-
veldara en áður fyrir fólk á öllum aldri að
taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í
námi - kannski fyrir löngu. Fólk á kost á
endurnámi og nýju námi og getur auk þess
valið um ýmsa kosti hvað varðar náms-
tíma.
SKRIFSTOFU- OG RITARASKÓLINN er
einn þeirra skóla sem bjóða fólki fjölbreytt
nám á viðskiptasviði. Þessi skóli, sem rek-
inn er af Stjórnunarfélagi Islands, byggir á
gömlum merg og á sér sautján ára sögu.
Hann byggir á enskri fyrirmynd - Pitman
Secretarial College of London - víðfrægum
skóla. Skrifstofu- og ritaraskólinn býður
upp á tveggja ára nám sem þó er skipulagt
þannig að hvort ár er sjálfstæð eining. Gert
er ráð fyrir að nemendur hafi i það minnsta
gagnfræða- eða grunnskólapróf en það er
þó ekki án undantekninga.
Á fyrsta ári Ijúka nemendur námi og prófi
í almennum skrifstofustörfum og kynnast
bókfærslu, tölvum, vélritun, reikningi og
ensku. Reyndar velja nemendur á fyrsta ári
um hvort þeir vilja vera á enskusviði eða
bókfærslusviði.
Á öðru ári skiptist námið í fjármála- og
rekstrarbraut og sölu- og markaðsbraut.
Skilyrði til þess að hefja þar nám er að hafa
lokið fyrsta ári Skrifstofu- og ritaraskólans
eða verslunarprófi eða hafa sambærilega
menntun.
Nemendur greiða nokkur skólagjöld en
til að létta undir í þeim efnum býður ís-
landsbanki hagstæð lán til allt að þriggja
ára. Nám á öðru ári er auk þess lánshæft
samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra
námsmanna fyrir framfærslu.
VIKAN fór á stúfana og ræddi við fjóra
nemendur sem allir stunduðu nám í Skrif-
stofu- og ritaraskólanum á liðnum vetri. All-
ir eru þeir nú í störfum sem þeir telja sig
hafa fengið vegna náms síns í skólanum.
GUÐRÚN SVANSDÓTTIR:
FINNST ÉG „RÍKARI“ EN ÁÐUR
Guðrún: „Starfið ennþá stöðugur lærdómur frá
níu tll fimm.“
„Ég vildi kynnast fleiru og auka tækifæri
min á vinnumarkaðinum í framtíðinni og
þegar ég kynntist því sem boðið var upp á
í Skrifstofu- og ritaraskólanum ákvað ég
síðastliðið haust að fara í nám á öðru ári
þar og valdi mér sölu- og markaðsbraut,"
sagði Guðrún Svansdóttir sem nú starfar
hjá Einari J. Skúlasyni hf. Þar er hún á skrif-
stofu i fjölbreyttu og skemmtilegu starfi, að
því er hún segir sjálf - starfi sem hún hóf í
vor að loknu prófi úr skólanum. „Og það
má segja að þetta sé enn einn allsherjar
lærdómur hvern dag frá níu til fimm.“
Guðrún, sem er fæddur og uppalinn Þor-
lákshafnarbúi, lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Egilsstöðum árið 1988 og fór síð-
z an til Þýskalands þar sem hún starfaði sem
o „aupair". Þegar heim var snúið að nýju sagðist
z Guðrún hafa verið nokkuð óráðin í hvað skyldi
^ gera.
< „Nám í Háskólanum hér vakti ekki áhuga
£ minn en hins vegar fann ég að möguleiki á að
“ kynnast sölu- og markaðsmálum vakti forvitni
g mína. Mér fannst það áhugaverð tilbreyting frá
§ því að hafa verið á uppeldisbraut í mennta-
5; skóla, þar sem helst var lögð áhersla á félags-
^ og sálarfræði.
g Námið í Skrifstofu- og ritaraskólanum var
3 mjög áhugavert. Mér fannst ég læra mikið.
Kröfurnar voru líka miklar. Til dæmis verður
maður að fá sjö í öllum greinum og það eru
vissulega mikil viðbrigði frá því í menntaskóla,
þar sem nægir að fá 4,5 til að standast próf. Ég
var í skólanum fyrir hádegi en vann síðan hjá
tannlækni eftir hádegi."
Hvernig kynntist Guðrún Svansdóttir skólan-
um?
„Móðir mín stundaði þarna nám á sínum
tíma og aflaði sér þannig viðurkenningar sem
læknaritari," segir Guðrún. „Henni líkaði nám-
ið vel og mælti með skólanum. Þannig voru
mín fyrstu kynni af Skrifstofu- og ritaraskólan-
um.
Fyrir áramót lærðum viö aðallega ýmislegt
varðandi tölvur, auk tölfræði. Eftir áramótin var
síðan farið f sölu- og markaðsfræði." Var það
mjög áhugavert að sögn Guðrúnar. Auk þess
var verslunarenska kennd allan veturinn en á
hana er lögð sérstök áhersla á sölu- og
markaðsbraut.
„í prófunum í vor gengumst við síðan undir
sérstakt alþjóðlegt próf í viðskiptaensku. Það
er nefnt „Pitmanspróf" og er viðurkennt um all-
an heim sem góður vitnisburður um kunnáttu.
Við vorum svolftið kvíðnar fyrir þetta próf en
það fór allt vel,“ segir Guðrún.
„Já, tvímælalaust - mér finnst ég miklu rík-
ari heldur en áður, ef svo má taka til orða, eftir
að hafa stundað þetta nám“ svarar Guðrún
þeirri spurningu hvort hún hafi haft gagn af
náminu. „Svo eitt dæmi sé tekið þá kynntumst
við ýmsu sem maður ekki vissi áður í verslun-
arréttinum, efni sem nauðsynlegt er að vita. Ég
tel mig bæði öruggari en áður og ég veit líka
meira. Af mörgu fengum við auðvitað aðeins
nasasjón og gaman væri að kynnast því betur
í framtíðinni."
Guðrún sagði okkur til dæmis að henni hefði
meira en flogið í hug að fara í lögfræðinám eft-
ir kynni sfn af verslunarréttinum, þó svo ekkert
væri ákveöið í þeim efnum. Einnig getur verið
að hún fari í tannfræðinám í Svíþjóð. En tann-
fræði er ný grein hér og nokkurs konar millistig
á milli tannlæknis og „klinikdömu".
„Skrifstofu- og ritaraskólinn er að mínu mati
góður skóli og ekki síst fyrir konur sem ekki
héldu áfram hefðbundnu skólanámi áður fyrr
eða jafnvel hættu því á einhverju stigi vegna
barneigna og heimilisreksturs," sagði Guðrún
Svansdóttir okkur að lokum.
14 VIKAN 16TBL. 1990