Vikan - 09.08.1990, Page 22
AÐ LEYNDARDÓMUM SN/EFELLSJÖKULS
Jökulhettan nálgast og bílarnlr fara að festast.
Aðferðum sjóskíðamanna beltt á jökllnum.
unnar brá sér upp á jökulinn með kunningja-
fólki sínu eigi alls fyrir löngu og reyndi að
kanna málið.
FÖSTUDAGURINN ÞRETTÁNDI
13. júlí síðastliöinn bar upp á föstudag; upp-
lögð dagsetning fyrir leiðangur að leyndardóm-
um Snæfellsjökuls. Þetta er um 270 kílómetra
löng leið frá Reykjavík en ég lét það ekki á mig
fá þar sem ég hef aldrei lært að aka bifreið og
lét henni Fjólu vinkonu minni eftir aksturinn.
Um þrem klukkustundum eftir að Reykjavík
var að baki fóru áhrif jökulsins að gera vart við
sig þótt hann sæist ekki fyrir svartaþoku.
Næmt fólk skynjar þessi áhrif rétt áður en kom-
ið er að afleggjaranum heim að Búðum á
Snæfellsnesi. En ferðinni var heitið á Arnar-
stapa þar sem sextán manns biðu okkar í
félagsheimilinu sem hafði verið leigt sérstak-
lega fyrir hópinn. Kvöldvaka var hafin og nokk-
ur börn sýndu dansatriði á sviðinu sem er lítið
og heimilislegt með gluggum á bakhliðinni.
Daginn eftir lagði lest fimm fólksbíla á jökul-
inn og var kerra með tveim vélsleðum tengd
aftan í jeppa sem fór fyrir drossíunum. ( aust-
urhlíðum Stapafells, sem er eins konar útvörð-
ur jökulsins í suðri, var kikt inn í Sönghelli en
hann er frægur fyrir góðan hljómburð.
JÖKULLINN TÓK OFAN
Svolítið lengra, við rætur jökulsins, er Vega-
mannahellir; dularfullt fyrirbæri sem lætur lítið
yfir sér að utanverðu en geymir því fleiri leynd-
ardóma innra með sér. Aö þessu sinni var
hann fullur af snjó en ég kannaði hann nokkr-
um sinnum fyrir rúmum tuttugu árum ásamt
Sigurði S. Bjarnasyni sem einnig fórfyrir hópn-
um í þetta sinn. Við höfðum haft með okkur
langt snæri og sterk Ijós en við komumst aldrei
að því hvað hann var langur því snærið langa
dugði okkur skammt. Ekki er víst að nokkur
maður viti það því að auðvelt er að villast inni
í honum. Hann var fullur af dropasteinum þá
en núna hafa ferðamenn brotið marga þeirra
við innganginn og tekið til minja. Þegar gengið
hefur verið spölkorn inn í hellinn kemur í Ijós
að víða i honum eru aukagöng sem liggja til
allra átta. Á einum stað er meira að segja gat
í gólfinu og rúmgóður kjallarahellir undir því.
Annars halla göngin svolítið niður á við, lengra
og lengra inn í jökulinn. Sums staðar upp við
veggina eru steinmyndanir sem minna á bekki
til að setjast á og á einum stað er eitthvað sem
er einna líkast steingervingi af ævagömlu tré.
Og göngin halda áfram og áfram. Kannski hef-
ur Jules Verne einhvern tíma hitt ferðalang
sem sagði honum frá þessum helli og leyndar-
dómum nágrennisins. Hins vegar er ég hrædd-
ur um að frásögn Vernes sé stórlega ýkt. Kjall-
arinn undir hellisgólfinu ertil dæmis ekki nema
tveir til þrír metrar á dýpt en ekki margar
mannhæðir.
Nú var allt á kafi í snjó og bílalestin hélt
áfram gegnum þokuna. Þegar nær dró jökul-
hettunni gáfust tveir bílanna upp og við Fjóla
þurftum að labba f rúman klukkutíma eftir
krókóttum stígum yfir landslag sem gæti allt
eins verið á fjarlægri plánetu. Stöku sinnum
rákumst við á eldgömul og yfirgefin mannvirki
sem minntu einna helst á gullgröft en í Ijós
kom aðfyrr átímum hafði vikri úrjöklinum ver-
ið veitt eftir löngum rennum alla leið til sjávar
og í skip. Sæluhús, sem við ætluðum að hvíla
okkur í, reyndist vera rústir einar þegar að var
komið. Og svo tók jökullinn ofan þokuna svo
við sæjum hettuna betur. Þá fórum við að
mæta einum og einum ferðamanni á stangli.
SNJÓSKÍÐI í STAÐ SJÓSKÍÐA
Þetta voru þá þýskar konur í ævintýraleit og
þegar við vorum orðin úrkula vonar um að hitta
félaga okkar aftur sagði Fjóla allt i einu: „Þarna
eru þau. Á skíðum." Og það stóð heima. Rétt
fyrir framan okkur voru kunningjar okkar, börn
og fullorðið fólk, að leika sér á skíðum á snjó-
fláka í austurhlíð jökulsins þótt hásumar væri.
Vélsleðarnir, sem sumir kalla snjósleða, voru
þá ýmist notaðir sem kappakstursbílar eða
dráttarbátar fyrir snjóskíðafólk sem nú minnti
einna helst á sjóskfðafólk, dregið af sleðunum
upp á jökulinn til að geta rennt sér niður aftur.
Við þetta skemmtu sumir sér um tíma i
steikjandi hita og svo fórum við aftur niður á
Arnarstapa að skoða okkur um. Við mættum
bíl þar sem rennblaut hafmeyja sat framan á
húddinu en þegar betur var að gáð var þetta
ung kona sem hafði verið að synda í höfninni.
Það kom líka í Ijós aö nokkrir krakkar voru að
synda þarna og leika sér innan um smábát-
ana. Það minnti mig á að þegar ég var þarna
fyrir rúmum tuttugu árum gengu innfædd börn
berfætt út um allt á þessum slóðum og ég fékk
stundum berfættan strák til aö lóðsa mig og
breska vinkonu mína á trillubáti um hellana
sem eru grafnir inn í bergið undir þorpinu.
Þarna gýs sjór upp um brimgjárnar þrjár á tún-
inu við Eyri þegar hvasst er í veðri. Þær heita
Músagjá, Miðgjá og Hundagjá. Þarna kemur
foss út úr þverhníptu bergi þótt engin á sjáist
fyrir ofan svo að það er engu líkara en sjálf
náttúran sé að gera gys að manni því það ligg-
ur stundum við að maður trúi ekki sínum eigin
augum eða skilningarvitum.
DULARFULLIR ATBURÐIR FARA
AÐ GERAST
Um kvöldið skruppum við á sveitarkrána en þá
fékk Fjóla þvílíkar kvalir í ökklann og ristina að
hún varð draghölt. Daginn eftir kenndi hún sér
einskis meins en þá hrökk bíllykill Sigurðar í
tvennt án nokkurrar sýnilegrar ástæðu og fleiri
höfðu lent í ýmsu misjöfnu. Stálarmband á
sterkbyggðu úri konu úr hópnum hrökk í
sundur af engu tilefni og hljóðkútur brotnaði í
tvennt undan einum bílnum. Gert við hann á
Ólafsvík með hálfdós undan gulrótum og
grænum baunum og tveim hosuklemmum. Við
Fjóla höfðum tekið með okkur myndavél og
Siggi sömuleiðis en þegar myndirnar komu úr
framköllun kom í Ijós að allar bestu tökurnar
höfðu misheppnast - voru illsjáanlegar og
grænbrúnar á lit - en aðeins myndir af grjóti,
föstum bílum og öðru sem ekki skiptir neinu
máli höfðu heppnast prýðilega. Ég varð því aö
taka það til bragðs að teikna myndir með
ferðasögunni.
„Þetta eru áhrif frá jöklinum," sagði Jóna í
Skjaldartröð; ættuð af Stapanum og formaður
á fiskibátum til margra ára. „Annars var hann
góður við ykkur í gær að taka ofan fyrir ykkur.
Aftur á móti eru til staðir hér um slóðir sem
hleypa næmu fólki ekki nálægt sér. Til dæmis
22 VIKAN 16TBL. 1990