Vikan - 09.08.1990, Síða 24
TEXÍI: ÞJM
ÞAÐ ER NÆSTA VIST
Bjarni Felixson er þekkt-
asti íþróttafréttamaður
landsins. Hann hefur ár-
um saman unnið hjá Sjónvarp-
inu og er sjaldnast langt undan
þegar miðla skal fréttum af
íþróttaviðburðum, stórum sem
smáum. Nafn hans er í hugum
fólks fasttengt íþróttum í sjón-
varpi. Eins og títt er um þá
sem um langan aldur hafa
fengist við áberandi störf hefur
Bjarni orðið viðfangsefni eftir-
herma og grínara við ýmis
tækifæri. Þar hefur Laddi farið
fremstur í flokki. Til marks um
hvernig Bjarni tekur því þegar
eftir honum er hermt er þátt-
taka hans í gríninu með Ladda
þegar tækifæri hafa gefist. Nú
er hins vegar Bjarni sjálfur
kominn á hljómplötu. Hann tal-
ar og syngur með Þorgeiri Ást-
valdssyni í lagi sem oft heyrist
um þessar mundir og heitir þvf
snaggaralega nafni Stöngin
inn. Það er að finna á nýrri
fjögurra laga hljómplötu
Frammara sem nefnist ein-
faldlega Framlögin.
„Það var kominn tími til að
ég gerði eitthvað í málunum
sjálfur, láta ekki aðra um að
leika Bjarna Fel,“ segir Bjarni
og hlær. ^Svona í alvöru talað
þá bað vinur minn, Þorgeir
Ástvaldsson, mig um að lýsa
glæsimörkum [ þessu lagi og
syngja nokkur erindi og ég sló
til því lagið er fjörugt og
skemmtilegt. Innan raða okkar
KR-inga eru margir stórsöngv-
arar og það er sjálfsagt að
leggja öðrum lið ef með þarf,
svo ég tali nú ekki um þá blá-
klæddu. Svo þurfum við
Þorgeir og Óskar Páll upp-
tökumaður bara að fylgja
þessu eftir með því að fara
hringferð um landið og veita
eiginhandaráritanir gegn
vægu gjaldi í helstu verslun-
um.“ Og nú skellihlær hann og
bætir við: „Það er aldrei að vita
hvað gerist ef lagið slær í
gegn. Annars hef ég alltaf í
mínu starfi reynt að viðhalda
léttleikanum og hafa gaman af
með ýmsum hætti, vera maður
sjálfur og halda sínu striki. Þótt
íþróttir séu hörkukeppni
manna í milli og alvaran oft
með í spilinu má hátíðleikinn •
aldrei ná yfirhöndinni. Það er
regla hjá mér. Söngurinn
styrkir og eykur samheldni og
hafi ég, KR-ingurinn sjálfur, átt
þátt í því hjá Frömmurum þá
er það vel. Ég óska þeim til
hamingju með skemmtileg
Framlög og þetta Framtak
gæti orðið öðrum til eftir-
breytni." □ |
Stöngin inn! Bjarni Fel og Þorgeir Ástvaldsson bregða á leik fyrir
Ijósmyndara Vikunnar. Á litlu myndinni fyrir ofan sést hljóðupptöku-
maðurinn Óskar Páll aka þeim af veliinum eftir átökin
24 VIKAN 16TBL. 1990
LJÓSM.: DANlEL GUÐJÓNSSON