Vikan


Vikan - 09.02.1939, Side 4

Vikan - 09.02.1939, Side 4
4 VIKAN Nr. 6, 1939 Stefán Þorsteinsson: Charles \ ofanverðri átjándu öld lifði í Englandi maður að nafni Erasmus Darwin. Hann var læknir, náttúrufræðingur og skáld. Eftir hann liggja tvær ljóðabækur og eitt náttúrufræðilegt vísindarit. Maður skyldi næstum halda, að miklar hugsjónir væru arfgengar, því í verkum Erasmus Darwin liggja grafnar margar þær hugsjónir, sem sonarsonur hans, Charles, síðan blés lífi í og fékk viður- kenndar. Til að byrja með leit ekki út fyrir, að Charles Darwin ætti eftir að gefa heim- inum nýjar og miklar hugsjónir, ný þrætu- efni, og opna ný sjónarmið um framþróun lífveranna á jörðinni. 1 skóla þótti hann lélegur námsmaður. Foreldrum hans og kennurum þótti hann vera latur og jafn- vel heimskur. Hann skeitti skólafögunum lítið, vildi heldur safna skordýrum úti í náttúrunni eða vinna að efnafræðirann- sóknum með bróður sínum. Ekki batnaði ástandið, þegar Charles Darwin kom í háskólann og átti að fara að lesa læknisfræði. Honum fannst fyrir- geymir einnig leifar suðrænna tegunda, og eru sumar þeirra nú útdauðar með öllu. Efsti og yngsti jarðlagakaflinn ber vott um norrænni skilyrði. Þar eru komnar til sögunnar skeljar, sem á vorum dögum hfa ekki sunnar en við Reykjanes. Sé dýralíf Tjörneslaganna skoðað í heild, ber það augljóslega vott um, að sjáv- arhitinn á þessum slóðum hafi minnkað, meðan lögin hlóðust upp. Nemur kólnun- in því, sem verða myndi við strendur Bret- landseyja, er þær flyttust þaðan, sem þær eru, og norður á hnattstöðu Islands. En kóinunin hélt áfram. Jökultíminn var að hefjast. V. Meðan Tjörneslögin mynduðust, virðist hlé hafa orðið á hinum áköfu eldgosum, sem geysuðu í norðanverðu Atlantshafi, er eldra basaltið brann. En jarðeldarnir hafa aftur færzt í ásmegin hér á landi á önd- verðum jökultíma, og síðan hafa þeir hamazt hvíldarlítið. Dr. Helgi Péturss hefir bennt á, hve geysi mikilsverð störf þessir „post-pliocene“ jarðeldar hafa unn- ið. Ef til vill verður mönnum ljósust þýð- ing þeirra, sé nútímans Island borið sam- an við Færeyjar, þar sem jarðeldar hafa ekki látið á sér bæra síðan fyrir ísöld. Svipað þeim hefði þá ísland litið út. Eyja- klasar, en aðeins þeim mun óbyggilegri, sem hnattstöðumuninum nemur. Jóhannes Áskelsson. Darwin. lestramir drepandi leiðinlegir og hafði andstyggð á, jafnvel þoldi ekki hið „verk- lega“ læknisfræðinám. Hann hættir við læknisfræðina og á að verða prestur. Faðir hans vill, að hann nái einhverju prófi. Árangurinn varð hér litlu betri. Hann hélt áfram að safna skordýrum, hlustaði auk þess á fyrirlestra um grasa- fræði og fór að safna grösum og plönt- um. Á sumrin flakkaði hann um landið, gangandi eða ríðandi. Á stúdentsámm sínum var hann mikið með öðram ungum mönnum, sem unnu að vísindalegum náttúmfræðistörfum, og sérgáfur hans komu betur og betur í ljós. Brátt varð hann náttúrufræðingur með lífi og sál. Charles Darwin lauk eins konar lægra guðfræði-prófi, en síðan hugsaði hann ekki meira um hempuna. 1 þess stað lagði hann sig eftir líffræði og jarðfræði. Þegar hann var fullra tuttugu ára að aldri, bauðst honum að ferðast með her- skipinu „Sporhundinum“, sem fór í 5 ára ferðalag umhverfis hnöttinn. Hann var víða í Suður-Ameríku; fór til Galapagos- eyjanna, Tahiti, Nýja-Sjálands, og heim- sótti auk þess margar eyjar í Kyrrahaf- inu og víðar. Um þessa för hefir hann skrifað bók, sem hefir langa fyrirsögn og enn lengra efni. Þetta er mjög fróðleg ferðasaga og einhver sú bezta, sem út hefir verið gefin. 1 þessari för fékk hann að sjá ýmislegt geysi merkilegt, sem vakti hann til um- hugsunar. Fuglalífið á Galapagos-eyjun- um í Suður-Ameríku, steingjörvinga fornra plantna og dýra o. s. frv. Það var nú sem augu hans opnuðust og hann fengi að sjá allt — náttúruna, dýra- og jurtalífið — í nýju ljósi. Jarð- fræðin hjálpaði honum til þess að fá sam- hengi og finna þráðin í þetta allt saman. Eftir að hann kom heim aftur, lagði hann áherzlu á og vann að ýmsum grein- um náttúruvísindanna og hann samdi hvert fræðiritið af öðm, allt til hann lézt 19. dag aprílmánaðar árið 1882. Vísindaiðkanir hans stefndu nú meira og meira að því, sem í dag kallast fram- þróunarkenning eða kenningin um upp- runa og framþróun h'fveranna á jörðinni. Dýr og jurtir „standa aldrei í stað“. Hin- ar æðri og fullkomnari tegundir eiga rót sína að rekja til hinna lægri og ófullkomn- ari. Dýr og jurtir em ekki „sköpuð" eins og þau em í dag. Þetta era ekki óbreytilegar vemr, heldur breytilegar. Og steingjörvingar hinna fomu, útdauðu jurta og dýra gefa oss til kynna, að jörð- Vi k a n TJtgefandi: VIKAN H.F. RITSTJÓRN OG AFGREIÐSLA: Austurstræti 12. Sími 5004. RITSTJÓRI OG ABYRGÐARM.: Sigurður Benediktsson. Sími heima 3715. FRAMKVÆMDARSTJÓRI: Einar Kristjánsson. Sími 4292. Áskrif targjald : kr. 1,50 á mánuði; 1 lausasölu 40 aurar. STEINDÓRSPRENT H.F. >____________________________________* jn er gömul -—- mjög gömul — og að allt líf hefir breytzt með hinum ýmsu breyti- legu jarðtímabilum. Margir vísindamenn höfðu haldið þessu sama fram — meira eða minna ákveðið — á undan Darwin. Annar enskur nátt- úmfræðingur, Wallace að nafni, hélt þessu sama fram einmitt á sama tíma og Darwin. En enginn hefir verið eins stórvirkur í því að ryðja braut framþróunarkenningarinn- ar eins og Charles Darwin. Það eru störf hans í þágu þessarra mála, sem á sínum tíma orsökuðu byltingu í öllum náttúm- vísindunum, já og ekki að eins þar. I 20 ár vann Darwin að rannsóknum sínum og safnaði efni í hið mikla rit sitt: „Um uppmna tegundanna“. Það kom út árið 1859 og frá þeim tíma er tahð, að renni nýr dagur í sögu náttúmvísindanna. Viðbæti við rit þetta nefnir hann „Um uppmna mannsins“ og í þessu verki fylg- 'ir hann framþróunarkenningu sinni út í yztu æsar. Hann heldur því fram, að það verði að líta á mannvemna með hliðsjón til ahs annars lífræns lífs á jörðu hér. Miklar og langvarandi deilur risu út af ritverkum þessum. Enn þann dag í dag heyrir maður fólk, sem ekki hefir lesið bækur Darwins, segja, að hann hafi haldið því fram, að langa-langa-afi mannsins hafi verið api. Darwin hefir gefið út mikið safn af jarð- og grasafræðilegum ritum. Á síðari ámm sínum vann hann mest að líffræðilegum vísindaiðkunum og skrifum. Eitt af því bezta, sem eftir hann ligg- ur, er bókin „táf og bréf“, er sonur hans gaf út eftir hans dag. Eftir þeirri bók að dæma, var maðurinn Charles Darwin ekki síðri en vísindamaðurinn Charles Darwin. Hann var einn af mestu byltingamönn- um veraldarinnar, og byltingin verður ekki minni fyrir það, að hún hefir engin manns- líf á samvizkunni. # Sorg og áhyggjur em oft fljótar að ná oss, af því vér göngum helming vegarins á móti þeim. * Ef þú giftir þig, þá iðrast þú þess stund- um, en giftir þú þig ekki, iðrast þú þess alltaf.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.