Vikan


Vikan - 09.02.1939, Blaðsíða 22

Vikan - 09.02.1939, Blaðsíða 22
22 VIKAN Nr. 6, 1939 4 >p4. J'-.ma i ■ »v* Varveitið fatnaðinn frá tilraunum með léleg þvotta- efni, nú, þegar FLIK FLAK fæst •4 ‘Wmin aftur í hverri búð. W'4l* §&}& Silkisokkar, hinir fín- ustu dúkar og undir- föt eru örugg fyrir skemmdum, þegar þér notið FLIK FLAK í þvottinn. FLIK-FLAK er bezta þvottakonan. Kunninginn: Þú hefir sjálfsagt valið þér væna konu, vinur minn. Kaupmaðurinn: Já, það getur þú reitt þig á. Hún er afbragð — alveg fyrirtak, ég þori að mæla með henni við hvern, sem vera skal. # Jói: Hvað varð þér að orði, þegar hann Pétur strauk burt með konuna þína? Björri: Ég sagði bara: Það var gott; þarna náði ég mér niðri á Pétri, því ég átti honum grátt að gjalda, hann sveik mig í hestakaupum í fyrra. * Bónda, sem kom úr sveit í kaupstað, varð sú slysni á að stíga á kjólfald hefð- arfrúr. Frúin lítur við og segir bálvond: Hef- urðu ekki augu í hausnum, nautið þitt? Bóndinn svaraði: 1 sveitinni höfum við ekki kýr með svona löngum hala, svo að ég varaði mig ekki á þessu héma. * Hún (reið): Ef ég væri konan þín, skyldi ég gefa þér inn eitur. Hann: Og ef ég væri maðurinn þinn, skyldi ég sjálfur taka inn eitur. * Bjarni: Mögur em blöðin orðin og sumt af nýju bókmenntunum ykkar. Jón: O-já — eftir því sem skilvindun- um fjölgar, vex undanrennan. Dmkkinn maður sat í kirkju og þótti ræðan, sem lesin var upp af blöðum, bæði löng og leiðinleg, segir hann þá svo hátt, að margir heyrðu: — Æ, flettið þér nú við, séra Bjöm minn, ef það kynni að vera svolítið skárra hinum megin. * Dómarinn: Hefir yður verið hengt áður ? Óli: Já, fyrir 10 ámm var ég sektaður um 20 kr. fyrir það, að ég fór í bað, sem ekki var leyfilegt. Dómarinn: En síðan? Óli: Nei-nei, — ég hefi ekki baðað mig síðan. * Pétur: Vertu ekki að berja þér, — þú, sem ert einbimi, og faðir þinn orðinn gamall og fer bráðum að deyja frá öllum peningunum. Páll: Ojá — hann getur lifað lengi enn þá, karlinn, ekki sízt, ef haldið er áfram að dekra við hann með nýmjólk og Brama, meinhollu helvíti. # Fréttaritari heimsótti fanga í hegning- arhúsi og segir við einn þeirra: — Hver er nú orsökin til þess, að þér vomð svo ólánssamur að komast hingað? Fanginn: Hin sama, sem kom yður til að tala við mig, það er forvitnin, sem rekur nefið í allt, þó manni komi það ekk- ert við. Munurinn er aðeins sá, að þér komuð inn um dymar, en ég inn um kjall- araglugga. Gesturinn: Myndin er prýðisvel máluð, en ég skil ekki, hvers vegna þér hafið valið svona herfilega ljótan kvenmann til að mála mynd eftir? Málarinn: Hún er systir mín. Gesturinn: Ó, hvað ég er aulalegur! Hefði ég gætt mín, þá gat ég séð það. * Ákærði: Kerlingin jós yfir mig svo óþol- andi skömmum, að ég gat ekki stillt mig um að berja hana. Dómarinn: Þú veizt, að það er yfir- valdið, en ekki þú, sem á að refsa. Ákærði: Er það þá meining dómarans, að ég eigi að draslast með kerlinguna mína hingað í hvert skipti, sem hún verðskuld- ar að fá löðrung. Jón (á sáttafundi): Ég vil ekki þola það bótalaust, að hann Pétur þarna barði mig 72 högg í einu. Sáttamaðurinn: Hvaða ógnar þolinmæði er þér gefin maður, að standa undir 72 höggum og nenna að telja þau. * Baróninn (þóttafullur): Ég held, að því minna sem maðurinn veit, því ánægðari sé hann. Ungfrúin (með hægð): Þér er uð líklega mjög ánægður maður. Kaldhreinsað þorskalýsi sent um allan bæ. BJÖRN JÓNSSON, Vesturgötu 28. Sími 3594.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.