Vikan - 19.10.1939, Blaðsíða 6
6
VIK AN
Nr. 42, 1939
Mickey Rooney
í hlutverki Huckleberry Finn.
II ickey Rooney, sem er orðinn frægur
iVl fyrir „Andy Hardy“ hlutverk sín, leik-
ur aðalhlutverkið í kvikmynd eftir hinni
frægu bók, „Huckleberry Finn“, eftir Mark
Twain.
Huckleberry Finn, sonur drykkjurútsins,
,,Pap“ Finn, býr í litlu þorpi við Missisippi-
fljótið hjá ekkjunni Douglas og systur
hennar, miss Watson. Þær elska drenginn
báðar. Jim, þræll, sem ekkja á, er bezti
vinur drengsins. Huck forðast skólann eins
og hann getur, reykir pípu í laumi og hefir
sínar hugmyndir um lífið og þess gang.
Faðir hans, sem veit, hvað ekkjunni þykir
vænt um drenginn, heimtar annað hvort
800 dollara af henni eða drenginn. Huck
ákveður að strjúka, til þess að ekkjan þurfi
ekki að borga, en faðir hans nær í hann
og lokar hann inni í kofa sínum.
Á meðan faðir hans fer á fund ekkjunn-
ar, strýkur Huck, en gengur þannig frá
öllu eins og hann hafi verið myrtur. Hann
flýr upp með fljótinu, þar sem hann hittir
Jim af tilviljun. Jim hefir verið kennt um
morðið, vegna þess að hann strýkur frá
ekkjunni, sem ætlaði að selja hann til að
geta borgað föður Hucks. Flóttamennirnir
sigla á fleka. Jim kemst að því, að faðir
Hucks hefir verið drepinn í slagsmálum, en
segir drengnum ekki frá því.
Tveir menn, sem kalla sig „Kónginn í
Frakklandi“ og „Hertogann af Bridge-
water“ koma til þeirra á flekann og gera
þeim margt til bölvunar. Þeir ræna í þorp-
unum við fljótið og ætla sér að fá yfirvöld-
unum Jim í hendur til að græða peninga.
Jim og Huck flýja til skógar. Þar bítur
eiturslanga Huck, og Jim ber hann til
þorps eins, þó að hann viti, að hann verði
tekinn. Þegar Huck er að ná sér, heyrir
hann, að Jim hafi verið kallaður fyrir rétt
vegna morðsins. Huck fær skipstjóra á
gufuskipi til að hraða sér með sig til bæj-
arins og kemst í tæka tíð þangað, til að
frelsa Jim. Jim er síðan gefið frelsi. Huck
fer aftur til ekkjunnar og lofar að fara í
skóla, ganga í skóm og vera góður drengur.
Mickey Rooney sem Huckleberry Finn. A mynd-
inni fyrir neðan sjást Huckleberry Finn og negr-
inn, Jim, á flekanum, þar sem þeir standa „Kóng-
inum“ og „Hertoganum" fyrir beina.