Vikan


Vikan - 14.11.1940, Side 3

Vikan - 14.11.1940, Side 3
VIKAN, nr. 46, 1940 3 4Ch.Lstl<iiÆ 'Jónssoii Qjiá Q.axbsstödimi: Þáttur úr sögu Alþingiskosninga. Allt frá því að Alþingi var endur- reist og hinar fyrstu kosningar fóru fram 1844 og til ársins 1903, var hin sama kosningatilhögun í lögum hér á landi. Kosningar voru háðar fyrir opnum dyrum, í heyranda hljóði, og kjörfundur á einum stað í kjördæmi hverju. Kjörfund- irnir voru oftast ákveðnir af landsstjórn- inni í sama mánuði um land allt, en kjör- stjórar (sýslumenn) réðu kjörfundinum hver í sinni sýslu. — Það var fyrst með leynilegu kosningunum, sem kjörfundur var settur hinn sami fyrir allt landið. Þingmannaefnin lýstu þá oft ekki fram- boði sínu fyrr en á kjörfundi. Oftast var þó framboðið tilkynnt sýslumanni nokkuru áður, og þingmannsefnið lét það berast um kjördæmið, og sérstaklega eftir að lög- gjafarþingin komu til sögunnar. Þegar er sýslumaður hafði sett kjör- fund og lýst framboðum, fluttu þing- mannaefnin ræður, jafnan eftir stafrófs- röð. — Tveir voru oftast meðmælendur hvers frambjóðanda. Oftast tóku þeir til máls, og mæltu með þingmannsefni sínu. — Kappræður milli frambjóðenda tíðkuð- ust og víða, einkum er dró fram að alda- mótum, eins og nú gerist á þingmáiafund- um, en ekki máttu þær standa lengi, er kjörfundur var fjölsóttur, því kosningin tók jafnan æði langan tíma. Að ræðuhöld- um loknum settist kjörstjórn í fundarsal. Voru kjósendur síðan kallaðir fram, tek- inn hver hreppur út af fyrir sig og oft- ast byrjað á öðrum enda kjördæmisins. Ekki mun þessi háttur hafa verið hafður, er kjörfundir voru fámennir, svo sem á þeim, er hér segir frá. Síðan skýrðu kjós- endur kjörstjóra munnlega frá því, hvern eða hverja frambjóðendur þeir kysu. Ann- ar kjörstjórnarmanna hafði kjörskrána og merkti við nafn þess, er atkvæði greiddi, svo sem enn tíðkast. Hinn þeirra skrifaði inn í litla bók nafn kjósandans öðru meg- in á opnuna, og nafn þess frambjóðanda, er hann kaus hinu megin. Síðan brá hann striki yfir opnuna á þann veg, að nafn kjósandans og þess er hann kaus er sér í línu. Á þenna hátt geta menn enn í dag séð í kjörbókunum hvaða frambjóðendur alþingiskjósendur þeir, er sótt hafa kjör- fundi um 60 ára skeið, hafa greitt atkvæði. Þá þurfti og að öðlast meiri hluta greiddra atkvæða til þess að ná kosningu. Varð því oft að endurtaka kosninguna, stundum oft- ar en einu sinni. Hér verður nú sagt nokkuð frá tveimur kjörfundum í Isafjarðarsýslu. Norður- og vestursýslan ásamt Isafjarðarkaupstað voru þá eitt kjördæmi. Báðar þessar kosn- ingar munu þó hafa verið að ýmsu frá- brugðnar því, sem venjulega gerðist um þær mundir. Aukakosningin 1879 mun hafa verið óundirbúin með öllu og fór í handa- skolum hjá kjörstjórn. Hin kosningin, 1880, var jafnan allmjög umtöluð, mikið Þórður Masrnússon. Th. Thorstemsson. vegna þess að svo virðist sem kjósendur hafi alls ekki átt von á að Þórður í Hatt- ardal yrði í kjöri og framboð hans hefir sennilega fyrst verið afráðið á kjörfundin- um. Áhrifamenn sýslunnar höfðu ætlað öðrum þingsætin og gert ráð fyrir að bar- áttan stæði milli ann- arra, en hinna kjörnu þingmanna, og eink- um ekki Þórðar. — Jón Sigurðsson hafði sagt af sér þing- mennsku, er sýnt þótti að sjúkdómur bannaði honum þing- för 1879. — Fyrir- mæli amtmanns um kosningu þingmanns í hans stað, bárust svo seint til sýslumanns að kjörfundur varð ekki haldinn fyrr en 8. ágúst, er langt var liðið á þingtímann. Carl Fensmark, sá er sekur varð um sjóðþurrð nokkru síðar, hafði gerzt sýslumaður ísfirðinga um sumarið, og í kjörstjórn með honum voru þeir séra Árni Böðvarsson á Isafirði og Árni Jóns- son cand. theol, er um það leyti hafði tek- ið við forstöðu Ásgeirs verzlunar. Eftir því, sem ráðið verður af kjörbók- inni, hafa engin ræðuhöld farið fram á þessum kjörfundi né formleg framboð verið lögð fram. Kjörstjóri hefir sett fund, lesið bréf amtmanns um kosninguna og lát- ið þegar í stað hef ja atkvæðagreiðslu. Ber atkvæðagreiðslan það með sér, að viðstadd- I eftirfarandi grein lýsir höf- undurinn kosningu til Al- þingis á Isafirði árin 1879 og 1880, en þá hafði Jón for- seti Sigurðsson látið af þing- mennsku. — Kosningar þess- ar voru mjög ólíkar því, sem gerist nú á tímum. ir kjósendur hafa verið óundirbúnir og lítt eða ekki talað sig saman fyrir kosning- una. Atkvæðagreiðslan féll á þessa leið: Gunnar Halldórsson hreppstjóri í Skála- vík fékk 7 atkvæði, Th. (Þorsteinn) Thor- steinsson bakari á Isafirði 6, Stefán Bjarnason sýslumaður þá í Árnessýslu 5, Benedikt Oddsson bóndi í Hjarðardal 2, Einar Hálfdánarson hreppstj. á Hvítanesi 2, Þórður Magnússon bóndi í Hattardal 2, C. Fensmapk sýslumaður 1, Sigurður Andrésson smiður 1 og Þorvaldur læknir Jónsson 1 atkvæði. — Kjörstjórn hefir síðan skrifað svohljóð- andi klausu í kjörbókina: „Þingmaður Isa- fjarðarkjördæmis er altsvo réttilega kos- inn Gunnar Halldórsson í Skálavík með 7 atkv. af 25.“' Er fundargerðin síðan undir- rituð. Brátt hefir þó kjörstjórnin séð sig um hönd. Er ekki ólíklega til getið, þótt eigi sé þess getið í kjörbókinni, að Th. Thor- steinsson, sem næst hæstur varð að at- kvæðatölu, hafi krafist þess að kosið yrði að nýju, sem skylt var að gera, þar sem enginn hafði fengið lögmætan atkvæða- fjölda. — Hefir því kjörstjórnin innilokað bókun sína um kosningaúrslitin og dregið eitt strik yfir. Bókar hún síðan: ,,að þar eð sá, er flest atkvæði fékk, hafi ekki feng- ið helming greiddra atkvæða og hafi því orðið að greiða atkvæði að nýju.“ Urðu nú úrslitin þau, að Th. Thorsteins- son var kosinn með 12 atkv. — Þórður Magnússon fékk 3 atkv. Gunnar Halldórs- son 2 og Bened. Oddsson 1 atkvæði. Eftir því að dæma hafa 10 kjósendur nú verið farnir af fundi. — Þykir mér sennilegt að aldrei hafi atkvæði fallið jafn dreift við alþingiskosningarnar og í þetta skipti. Flestir þeir, er atkvæði hlutu munu og hafa verið kosnir án vitundar þeirra. Gunnar í Skálavík mætti ekki á kjörfundinum né Þórður í Hattardal. Th. Thorsteinsson virð- ist einn hafa lagt sig eitthvað eftir að ná þingsætinu, og kom sá áhugi hans betur í 1 1 kjörbókinni stendur 25 atkv., en á víst að vera 28, því sú atkvæðatala kemur fram við atkvæðagreiðsluna.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.