Vikan


Vikan - 14.11.1940, Síða 6

Vikan - 14.11.1940, Síða 6
6 VTKAN, nr. 46, 1940 Það versta við demantgröftinn er í raun og veru heppnin, sem sumir grafararnir verða fyrir. Vonin um, að hún komi aftur heldur þeim föstum, þó að arðurinn á síðari árum hafi naumast verið fyrir mat. Myndin er af mönnum við demantagröft. klukku hringt, sem gefur til kynna, að við- skiptin séu byrjuð í demantagötunni. — Klukkan hálf tíu taka kaupmennirnir sam- an föggur sínar, því að þá er allri verzlun lokið, og fara aftur til Lichtenburg, þar sem flestir þeirra búa. Á meðan verzlunin fer fram, er mikil umferð um götuna og menn segja hver öðrum tíðindi. Þessi eða hinn hefir fundið fallegan bláhvítan stein, annar hefir orðið gjaldþrota og orðið að fá styrk, sá þriðji hefir yfirgefið demanta- svæði sitt og leitað á betri slóðir. En nú orðið heyra menn sjaldan um stóra fundi, hina svo kölluðu ,,potta“ í jörðinni, sem eru fulhr af glitrandi steinum. Fyrir átta árum var það ekki óalgengt. Fátæktin á meðal demantagrafaranna er óneitanlega mikil, en margir vilja þó ekki fara. Á morgun er annar dagur, og maður getur enn orðið svo heppinn að finna „steininn“. Til dæmis er sagt um bónda, sem missti aleigu sína og flutti með fjöl- skyldu sína til Bakerville í von um að ná sér upp aftur. En heppnin var ekki með honum, og að lokum fékk konan hann til að hætta greftrinum og byrja aft- ur á búskapnum. Maður- inn ákvað að reyna enn í einn dag. Dagurinn leið, og hann fann ekkert. í gremju sinni fleygði hann frá sér skóflunni og — þarna lá þá sex karata bláhvítur demant. Maður- inn er ennþá að grafa eftir demöntum. Það er enginn vafi á, að demantagrafararnir græddu stórfé á árunum 1926 og ’27, fyrst eftir að demantasvæðin fundust. í Bakerville og þar í grend má sjá gryfjur, þar sem menn höfðu fundið dem- anta fyrir meira en hálfa milljón króna á einni viku. I Granfontein fundust í einni gryfju eða ,,potti“ demantar fyrir tvær milljónir króna. Fundir eins og þetta eru sífellt umræðuefni demantagrafaranna og þeir gefa þeim kjark til að halda áfram og vona. Ég hafði nú talað við demantagrafarann og hlustað á kvartanir hans, og því fór ég til demantakaupmanns til að heyra hans álit. „Já, það er rétt, það gengur ekki eins vel og fyrir átta eða tíu árum. En við fáum þó einstaka sinnum góða steina, þó að þeir séu naumast eins góðir og þeir, sem fund- ust nær yfirborði jarðar. Hvers vegna verðið er lágt? Af því að Búarnir, sem raunverulega eru einráðir á demantsmark- aðinum, hafa dembt á markaðinn demönt- um fyrir tvö hundruð milljónir króna, og það hefir auðvitað áhrif á verðið. Annars er demantsverzlunin mjög háð hinni al- mennu heimsverzlun og stríðið hefir auð- vitað í þeim sökum mjög mikil áhrif. Hvað mundi ske, ef Þýzkaland fengi nýlendur sínar í Afríku aftur? Það er vitað, að þar eru auðugar demantsnámur. Hvað mundi ske, ef framleiðsla Þjóðverja yrði enn meiri en Búanna? Þér sjáið, að útlitið er allt annað en gott núna. Afsakið augnablik á meðan ég skoða þennan stein.“ Ungur maður hafði komið og látið stein Framhald á bls. 15. Þegar kaupmennirnir hafa opnað búðir sínar í Bakarville, er það tilkynnt með klukknahringingu. Þá streyma graf- ararnir inn á ,,aðalgötuna“, en fæstir hafa nokkuð til að selja. Hinir koma til að spjalla saman um nýja fundi.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.